Tíminn - 30.01.1980, Qupperneq 9

Tíminn - 30.01.1980, Qupperneq 9
Miðvikudagur 30. janúar 1980 9 i mar Simenon orðinn leiður á hinni nýju eigin- konu sinni, en hann þarf meiri örvun, en hún getur veitt hon- um. Hann fer ekkert dult með að hann stundar vændiskonur, og það sem er heldur flöknara, uppástendur, að konan fari með honum i vændishús og á svall- staði til að taka þátt, sem þriðji aðili i þvi „tilgerðarlausa” kyn- svalli, se.m hann nýtur. Til að gera málið enn flóknara er Simenon svo afbrýðisamur, að óheilbrigf má teljast. Hvað eftir annað segir hann: — bú fæddist daginn, sem við hitt- umst. Þegar Denyse var ung stúlka hafði hún verið i tygjum við pilt sem hét George, sama fornafni. Simenon bannar henni þvi að kalla sig Georgés, Jo skal það vera og þannig er það bók- ina i gegn. Hún á bunka af bréf- um frá heitt elskuðum látnum föður sinum. Bál er kveikt og hún fær skipun um að brenna þau að honum ásjáandi. Hún skrifar nafn sitt Denyse,hann breytir þvi i Denise i skjölum til yíirvfalda. Hún fær fyrirmæli um að klippa'hár sitt, sem var höfuðprýði hennar og þyngjast um nokkur kiló. Hún skal um- myndast eftir óskum eigin- mannsins. Sinar helgustu hugsanir skal hún skrá niður, svo að hann geti fylgst með þvi, hvort hún er orðin aðlöguð ósk- um hans. Það, sem hún hefur sagt Simenon frá elskhugum sinum, sem hún átti áður en hún kynntist honum, notar hann i bókum sinum, þar sem þeir eru teknir i karphúsið af persónu sem ber sterk sjálfsmyndarein- kenni. Uppáhaldsávarpsorð hans i garð þeSsarar sauðtryggu eigin- konu er „hóra”. Hún er með barni og hann misþyrmir henni og öskrar „hóra”. Hún er með ör á kviðnum eftir móðurlifs- uppskurð. Sá skurðlæknirinn hana þá ekki nakta? Jú. „Hóra!” Hún er komin á átt- unda mánuð. Hann strýkur um kvið hennar 'og snöktir, að vesalingurinn litli ,þar inni... Hvernig þá? Jú, hann (það varð lika strákur) fær hóru að móður. Siðan fór hann til vændiskonu. Þau hafa sest að i Sviss. Denyse hefur nú umsjón með öllu, sem heldur „verksmiðj- unni Simenon” gangandi, kem- ur honum i rúmið á kvöldin er sjálf á fótum og vinnur til kl. 4 á næturnar. Þau hafa eignast þrjú börn, sem er augljóst, að hann elskar. En, þvi miður! Móðir þeirra er hóra. Sálfræðingur er keyptur. Denyse er lögð á sjúkrahús á þeim forsendum, að rithöfundurinn sem nú er orðinn þunglyndur, hafi ofnæmi fyrir henni. Börnin eru tekin frá móður sinni, heimilið er henni lokað. Hann grætur af með- aumkun með sjálfum sér. Eng- inn Maigret gripur inn i at- burðarásina. En bók Denyse Simenons er meira spennandi en hinn sigildi Maigret og miklu óhugnanlegri. Fuglinn hafði enga möguleika gegn kettinum. Denyse Simenon. 3.2.0. Frádráttur vegna fargjalda: 3.2.1. Fargjöld vegna ferða á vegum atvinnurekanda. Frá fargjöldum, sem vinnuveitandi hefur greitt vegna ferða launþega á vegum hans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn hefur taliö til tekna, skal leyfa sömu upphæö sem frádrátt, enda sýni launþeg- inn fram á aö kostnaður hans vegna fargjalda hafi numið jafnhárri fjárhæð. 3.2.2. Fargjöld vegna langferða milli heimilis og vinnu- staðar. Launþegar, sem stunda atvinnu sina I a.m.k. 25 kiló- metra fjarlægö frá heimili sinu og þurfa dag hvern að fara milli heimilis og vinnustaöar, mega draga frá tekjum sinum greidd fargjöld með áætlunarbif- reiöum, eða samsvarandi fjárhæð sé notaö annaö flutningstæki, enda sé sá flutningskostnaður sem vinnuveitandi kann að hafa endurgreitt launþega talinn að fullu til tekna. A sama hátt skulu þeir laun- þegar sem hafa húsnæðisaöstööu á vinnustaö á veg- um vinnuveitanda njóta frádráttar frá tekjum vegna greiddra fargjalda i samræmi viö tilhögun vinnu á hverjum stað, þó eigi hærri fjárhæð en svarar til einnar feröar fram og til baka með áætlunarbifreiö fyrir hverja unna viku. Launþegi sem starfar fjarri heimili sinu óslitið i a.m .k. 3 mánuöi að jafnaöi má draga frá tekjum sin- um fargjald fram og til baka meö áætlunarbifreiö, eða samsvarandi f járhæö sé annað farartæki notaö, enda sé fjarlægð milli heimilis og vinnustaðar a.m.k. 100 km. 3.3.0. Frádráttur vegna greidds risnufjár. Frá risnufé, sem vinnuveitandi hefur greitt launþega og hann hefur talið til tekna, skal leyfa sannanlegan risnukostnað, þó eigi hærri fjárhæð en talin er til tekna sem risnufé. Til sönnunar á risnukostnaði ber að senda sundurlið- un kostnaðar, tilefni risnu, svo og greinargerö frá vinnuveitanda um ástæður fyrir greiðslu risnufjár og hvernig hún hefur veriö ákvörðuð. Frá kröfu um sönnun risnukostnaðar til frádráttar, sem aldrei má nema hærri fjárhæö en talin hefur verið til tekna sem risnufé, má falla: a. hjá þeim sem fá greitt risnufé skv. ákvörðun lög- gjafarvaldsins án greinargeröar, b. hjá öðrum opinberum sýslunarmönnum sem taka laun sambærileg við launaíiokka B.S.R.B. 031 og 032 og B.H.M. 122, þó að hámarki til frádráttar 50.000 kr. og 30.000 kr„ hjá þeim sem taka laun sambærileg viö launaflokka B.S.R.B. 026 - 030 og B.H.M. 117 - 121, enda fylgi greinargerð frá vinnuveitanda, c. hjá fyrirsvarsmönnum I þjónustu annarra aðila sem hafa hærri eða jafnhá laun og umræddir emb- ættismenn, að þvi tilskildu að þeir séu I forsvari fyrir fyrirtækjum eða stofnunum þar sem bersýnilega þarf á risnufé að halda, þó að hámarki til frádráttar 50.000 kr., enda fylgi greinargerð frá vinnuvéitanda, d. hjá yfirmönnum á farmskipum: 1. hjá skipstjórum þar sem enginn bryti er um borö 250.000 kr. á ári, 2. hjá skipstjórum þar sem bryti er um borð 180.000 kr. á ári, 3. hjá brytum 66.000 kr. á ári, 4. hjá I. stýrimanni og yfirvélstjóra 45.000 kr. á ári, enda fylgi greinargerö frá vinnuveitanda. 3.4.0. Frádráttur kostnaöar vegna öflunar ökutækja- ' styrks. Frá ökutækjastyrkjum, sem launþegi hefur fært til tekna, skal leyfa sem frádrátt sannanlegan kostnað vegna öflunar þessara tekna. Þvi aðeins telst ökutækjakostnaður sannaður að full- nægt sé öllum neðangreindum skilyrðum: 1. að fram sé lögö á þar til geröu eyöublaði (Oku- tækjastyrkur og ökutækjarekstur), eða á annan jafn fulinægjandi hátt, nákvæm sundurliðun á heildar- rekstrarkostnaöi ökutækisins, þ.m.t. árleg fyrning bifreiöar sem reiknast 385.000 kr. Arleg fyrning ann- arra ökutækja en bifreiða reiknar 10% af kaupverði (stofnverði). Fyrning ökutækis sem notað er hluta úr ári reiknast hlutfallslega. 2. að fram sé lögð á sama eyöublaöi og um ræðir I 1, eða á annan jafn fullnægjandi hátt, greinargerð um heildarnotkun ökutækisins á árinu, þannig sundur- liðuð: a. Einkaafnot i km. b. Notkun I þágu vinnuveitanda I km. c. Akstur á milli heimilis og vinnustaöar I km. Hafi framteljandi ekki rétt til frádráttar fargjalda vegna langferöa milli heimilis og vinnustaöar skal reikna til notkunar I þágu vinnuveitanda 70% og til einka- þarfa 30% aksturs milli heimilis og vinnustaöar. Hafi framteljandi hins vegar rétt til frádráttar far- gjalda vegna langferöa milli heimilis og vinnustaöar skal allur akstur milli heimilis og vinnustaðar telj- ast til einkaþarfa. 3. aö fram sé lögö greinargerð frá vinnuveitanda um ástæöur fyrir greiðslu ökutækjastyrksins og hvernig hún hefur verið ákvöröuö. Til frádráttar skal leyfa þann hluta af heildar- rekstrarkostnaöi bifreiðarinnar sem svarar til af- nota hennar i þágu vinnuveitanda, þó að hámarki þá fjárhæð sem út kemur með þvl að margfalda með 86 kr. þá kilómetratölu sem ákvöröuö hefur veriö sem akstur I þágu vinnuveitanda. Aldrei leyfist þó hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem öku- tækjastyrkur. Þó skal þess gætt við ákvöröun þessara afnota aö eölilegur akstur vegna einkanota hafi komiö fram. (7.000 km án aksturs milli heimilis og vinnustaðar eru taldir hæfileg viðmiöun I flestum tilvikum.) Séu einkaafnot lægri,ber framteljanda að láta fylgja fullnægjandi skýringar á þessu fráviki, t.d. á framhliö eyðublaðsins. Frá kröfunni um sannanlegan ökutækjakostnað og þar með um útfyllingu og skil greinds eyðublaðs er þó falliö i eftirtöldum tilvikum: a. hafi framteljandi i takmörkuöum og tilfallandi til- vikum notað ökutæki sitt i þágu vinnuveitanda slns aö beiðni hans og fengið endurgreiðslu (sem talin er til tekna eins og hver annar ökutækjastyrkur) fyrir / hverja einstaka ferð. 1 sllkum tilvikum skal fram- teljandi leggja fram akstursdagbókaryfirlit eða reikninga sem sýna tilgang aksturs, hvert ekið og vegalengd I km ásamt staðfestingu vinnuveitanda. Sé þessum skilyrðum fullnægt og taliö að hér sé um raunverulega endurgreiöslu afnota aö ræöa I þágu vinnuveitanda, enda fari þau ekki I heild sinni yfir 3.000 km á ári, má leyfa til frádráttar fjárhæð sem svarar til kilómetranotkunar margfaldaörar með 86 kr., þó aldrei hærri fjárhæö eh talin var til tekna. b. hafi framteljandi fengiö greiðslu frá ríkinu á árinu 1979 fyrir akstur (eigin) ökutækis síns i þess þágu og greiöslan verið greidd skv. samningi, samþykktum af fjármálaráðuneytinu, er framteljanda heináilt, án sérstakrar greinargeröar, aö færa til .frádráttar sömu upphæð og talin var til tekna vegna þessarar greiðslu, enda liggi fyrir eöa framteljandi láti I té eftir áskorun ótvlræöa sönnun þess að samningur, samþykktur af fjármálaráöuneytinu, hafi verið I gildi á árinu 1979. Sama regla skal gilda um þá ökutækjastyrki sem ákveönir eru af Alþingi. Skattstjórum er heimilt að fallast á notkun þessarar matsreglu i sambandi við ökutækjastyrki sem greiddir eru af sveitarstjórnum, stofnunum, sjóöum og félögum, enda sýni þessir greiðsluaöilar fram á það við hlutaöeigandi skatt- stjóra að akstursþörf og ákvöröun greiðslu öku- tækjastyrkja sé innan svipaðra reglna og gilda við ákvörðun á greiðslu ökutækjastyrkja sem sam- þykktir hafa verið af fjármálaráðuneytinu. 3.5.0. Frádráttur frá hlunnindamati fatnaðar. Frá hlunnindamati fatnaðar sem ber aö telja til tekna, sbr. lið 2.2.2., skal leyfa sem frádrátt: 50% af hlunnindamati einkennisfatnaðar hjá áhöfn- um loftfara og skipa, svo og tollvöröum. 100% af hlunnindamati einkennisfatnaðar þegar hann er nær aldrei notaður i starfi og af hlunnindamati einkennisfatnaðar sem er eign vinnuveitanda en lát- in launþega I té vegna tlmabundinna starfa sem ekki vara lengur en 4 mánuði á ári. 3.6.0. Frádráttur frá hlunnindamati fæðis eða greiddra fæðisstyrkja (fæðispeninga). Frá hlunnindamati fæðis launþega og greiddra fæðisstyrkja (fæðispeninga) til launþega, sem ber að telja til tekna, sbr. lið 2.2.3., skal leyfa sem frá- drátt 1.050 kr. á dag miöað við sama fjölda fæðis- daga eða fjölda daga þegar greiddur var fæðisstyrk- ur (fæðispeningar), þó ekki fyrir þá daga sem laun- þegi fékk greiddan fæöisstyrk (fæöispeninga) meðan hann var I orlofi eða veikur. Enginn frádráttur leyfist frá hlunnindamati fæðis sem vinnuveitandi lét fjölskyldu launþega I té endurgjaldslaust né heldur frá fjárhæö fæðisstyrkja (fæðisþeninga) sem vinnuveitandi greiddi launþega vegna fjölskyldu hans. 3.7.0. Frádráttur frá hlunnindamati húsnæðis eða greiddra húsaleigustyrkja. Eigi launþegi íbúðarhúsnæöi eöa leigi Ibúoarhús- næöi til eigin nota, sem ekki er notað meðan hann. nýtur húsnæðishlunninda, skal leyfa honum sem frá- drátt frá hlunnindamati húsnæðis sömu fjárhæö og honum bar að telja til tekna, sbr. liö 2.2.4. Frá greiddum húsaleigustyrk, sem launþega ber aö telja til tekna, sbr. lið 2.2.4., skal leyfa til frádráttar sem hér segir: Eigi launþegi íbúöarhúsnæði eöa leigi Ibúðarhúsnæöi til eigin nota innan heimilissveitar sinnar og þetta Ibúðarhúsnæði er ekki notað meðan hann fær greidd- an húsaleigustyrk skal draga frá greidda húsaleigu fyrir Ibúðarhúsnæöi, þó eigi hærri fjárhæð en nemur húsaleigustyrk, enda hamli fjarlægð milli heimilis- sveitar og dvalarstaöar búsetu i heimilissveit. Noti launþeginn hins vegar Ibúöarhúsnæði, sem hann á I stað þess aö taka ibúðarhúsnæöi á leigu, skal frá- dráttur nema sama sannanlegum kostnaöi og leyfð- ur er til frádráttar skv. gildandi skattalögum frá leigutekjum manna af útleigu ibúðarhúsnæðis, þó eigi hærri fjárhæð en nemur húsaleigustyrk. 3.8.0. Fæðisfrádráttur sjómanna. Hjá sjómönnum á islenskum fiskiskipum, sem þurfa sjálfir að sjá sér fyrir fæði og njóta ekki fæðis- greiðslu frá áhafcfiadeild aflatryggingasjóðs, skal sjómannafrádráttur frá tekjum hækkaöur um 1.650 kr. fyrir hvern úthaldsdag. 3.9.0. Fæðisfrádráttur hjá vinnuveitanda. Vinnuveitendur, sem ekki færa sérreikning yfir fæöiskostnaö launþega sinna, mega draga frá tekj- um sinum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starf- semi 1.650 kr. fyrir hvern heilan fæðisdag sem þeir láta launþegum slnum I té fæði án endurgjalds. Sama gildir um fæði sem vinnuveitandi lætur fjöl- skyldu launþegans I té án endurgjalds. Reykjayik 25. janúar 1980 1 Sigurbjörn Þorbjörnsson rlkisskattstjóri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.