Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 61
í farveg þar sem verður einhver
gildisauki á honum,“ sagði Björn.
Á Bláfjallasvæðinu má ekki
nota tilbúinn áburð, svo Gróður
fyrir fólk hefur notast við garða-
úrgang. „Við höfum tekið við því
sem fellur til af grænum svæðum
borgarinnar, svo sem Hljómskála-
garðinum. Vinnuskólahóparnir
hafa dreift því yfir brekkur og
sáð í, með góðum árangri,“ sagði
Björn. Eftir uppgræðslu festir
snjó betur í brekkunum, að sögn
Björns. „Þar fyrir utan er svæðið
ekki lengur þessi hrjóstruga urð
þegar það kemur undan snjó.“ Þar
með er einkunnarorðum félags-
ins náð. „Gróður fyrir fólk vinn-
ur út frá þeirri forsendu að gróð-
ursæl svæði séu vistlegri fyrir
okkur mannfólkið en auðnir og
uppblásnir melar.“
Samtökin vinna einnig að upp-
græðslu með hrossataði á bökk-
um Kleifarvatns. „Menn velta því
fyrir sér hvort að aukinn gróð-
ur og lífmagn í næsta nágrenni
við vatnið hafi jákvæð áhrif á líf-
ríki þess. Í því skyni erum við í
samstarfi við Náttúrufræðistofur
bæði í Kópavogi og á Reykjanesi
um að fylgjast með breytingum
á vatninu. Þetta er fyrsta rann-
sókn sinnar tegundar á landinu og
mjög spennandi,“ sagði Björn.
Sonny Bono verður borgarstjóri
Námskeið á vegum Heyrnar- og talmeinastöðvar
Íslands á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni, þriðju-
daginn 17. apríl frá kl. 12:30 til kl. 16:00.
Dagskrá:
Fyrirlestur um heyrn og heyrnarskerðingu.
Lög og reglugerðir.
Hvað er niðurgreitt og hversu oft?
Heyrnartæki.
Mismunandi tegundir kynntar.
Hvað þarf að stilla og af hverju?
Önnur hjálpartæki fyrir heyrnarskerta.
Umhirða og viðhald heyrnartækja.
Sýnikennsla í minni hópum um umhirðu og
viðhald heyrnartækja.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vinna með einstaklingum
og/eða eiga aðstandendur sem nota heyrnartæki.
Þátttökugjald er 3.500 kr. Skráning fer fram á hti@hti.is og
í síma 581 3855.
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands annast þjónustu við
heyrnarlausa og heyrnarskerta og þá sem eru með heyrnar-
og talmein. Stofnunin sér um að útvega hjálpartæki og veitir
viðeigandi fræðslu og þjálfun vegna þeirra.
Heyrnartæki
og hvað svo?
Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík Sími: 581 3855
hti@hti.is www.hti.is
Portúgalski knapinn og
reiðkennarinn Júlio Borba
heldur kennslusýningu á
vegum Félags tamninga-
manna í Ölfushöllinni í
kvöld. Þar sýnir hann þjálf-
unaraðferðir og hvernig
gera má góðan hest betri.
Júlio Borba hefur unnið
með margvísleg hesta-
kyn. Hann telur íslenska
hestinn skemmtilegan að
vinna með, sökum vinnu-
semi og vilja. Borba hefur
áður komið hingað til lands
á vegum einkaaðila til
að kenna fagfólki í reið-
mennsku, en að þessu sinni
stendur öllum hestamönnum til boða að
bergja af þekkingarbrunni hans.
Júlio hóf feril sinn í hesta-
mennsku aðeins sex ára gam-
all þegar hann fór í fyrstu
kennslustundina hjá föður
sínum og alnafna. Hann hefur
numið hjá mörgum þekktum
reiðkennurum, meðal annars
dr. Guilherme Borba.
Fyrstu ár sín sem atvinnu-
maður í hestamennsku reið
hann í reiðsýningum og keppni
en síðustu fimm ár hefur hann
ferðast um heiminn til að
kenna aðferðir sínar. Hann
hefur kennt á námskeiðum í
Bandaríkjunum, Englandi og
Svíþjóð.
Kennslusýningin hefst
klukkan 18.00 í Ölfushöllinni en sala að-
göngumiða fer fram við inngang.
Reiðkennari í Ölfushöll