Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 76
Franski rithöfundurinn Alain
Robbe-Grillet er væntanlegur til
landsins síðar í mánuðinum. Hann
verður gestur frönsku menning-
arhátíðarinnar Pourquoi pas?
sem nú stendur yfir en skáldið
mun halda fyrirlestur í Háskóla
Íslands 20. apríl og síðan verður
forsýning á kvikmynd Grillet dag-
inn eftir þar sem hann mun ræða
við áhorfendur um myndina.
Torfi Tulinius, prófessor í frönsku
og miðaldabókmenntum við Há-
skóla Íslands, þekkir vel til skálds-
ins Alain Robbe-Grillet og er ágæt-
is vinur þeirra hjóna. „Robbe-Grill-
et er eitt fremsta skáld Frakka og
var einn af forvígsmönnum skálda-
stefnunnar „nouveau roman“ eða
„nýsögunnar,“ útskýrir Torfi.
„Hann var talsmaður þessa hóps
skálda í Frakklandi sem brutust
fram á sjónarsviðið snemma á
sjötta áratugnum og höfðu mikil
áhrif á skáldsöguna. Og Grillet var
fremsti maður í víglínunni þrátt
fyrir að vera yngsti meðlimur-
inn í hópnum,“ bætir prófessorinn
við. „Markmið þeirra var fyrst og
fremst að koma á sömu formbreyt-
ingu í skáldsögunni og hafði orðið í
ljóðlistinni skömmu áður,“ útskýr-
ir Torfi. „Þetta þótti nýstárlegt og
erfið lesning en átti líka að vera
það enda er það sem er nýtt oft erf-
itt,“ bætir Torfi við. Hann segir
að þá hafi þeir orðið mjög frægir
en lítið lesnir en í dag hafi dæmið
snúist við.„Nú eru þeir ekki sömu
frægðarpersónurnar en
mikið lesnir og kennd-
ir við alla stærstu há-
skólana.“
Robbe Grillet og kona hans
Catherine hafa verið áberandi í
frönsku menningar- og þjóðlífi
síðastliðna áratugi og þá ekki síst
fyrir frjálslynt viðhorf sitt gagn-
vart kynlífi og öllu sem því teng-
ist. Hefur Catherine meðal ann-
ars skrifað umdeildar greinar
þar sem hún mælir fyrir lögleið-
ingu vændis. „Jú, þau hafa lagt
ákveðna rækt við frábrigði af
venjulegri kynhegðun og það er
mjög auðvelt að sjá hversu upp-
tekinn Robbe-Grillet er af sam-
bandi kynlífs og ofbeldis í verk-
um sínum,“ útskýrir Torfi. Hann
bætir því við að þetta sjáist ef til
vill hvað best í þeim kvikmynd-
um sem Robbe-Grillet hefur gert.
Að mati Torfa er Robbe-Grillet
reyndar jafnmikill frumherji í
kvikmyndagerð og skáldsögunni.
„Hann ætlar að sýna C’est Grad-
iva qui vous appelle sem er nýj-
asta verk hans og þar má glöggt
sjá þetta samhengi kynlífs og of-
beldis,“ útskýrir Torfi en þetta
ku vera í fyrsta skipti sem mynd-
in er sýnd fyrir utan kvikmynda-
hátíðina í Feneyjum. „En hann er
hins vegar algjörlega andsnúin
því að fólk sé beitt ofbeldi held-
ur segir að þetta séu sviðsetning-
ar á valdbeitingu þar sem tveir
þátttakendur taka þátt af fúsum
og frjálsum vilja af því að þeir
fá eitthvað út úr því,“ útskýrir
Torfi. „Að mati Robbe-Grillet er
það sem sumir kalla klám erótík
í hans augum og svo öfugt.“
Hrifinn af sambandi
kynlífs og ofbeldis
Það er skammt stórra högga
á milli í ástarmálum söngv-
arans Justin Timberlake.
Hann hefur verið orðaður
við ófáar fegurðardísirn-
ar síðan hann hætti með
Cameron Diaz og er iðulega
úti á lífinu.
Síðasta stúlkan sem Justin
Timberlake var orðaður við er
leikkonan Jessica Biel. Í síðustu
viku sást til þeirra í partíi á Mal-
ibu þar sem þau kysstust og föðm-
uðust fyrir allra augum. Þetta var
á föstudaginn langa í afmælis-
veislu sameiginlegs vinar þeirra.
Justin og Jessica mættu saman til
veislunn- ar hönd í hönd.
„Ef Jessica stóð og talaði við
vinkonur sínar kom Justin allt-
af til hennar, kyssti hana á háls-
inn og þau enduðu í innilegum
faðmlögum,“ sagði heimildarmað-
ur úr partíinu í viðtali við tíma-
ritið US Weekly. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem sögur af sam-
bandi þeirra fara af stað. Skömmu
eftir að Justin hætti með Camer-
on Diaz sást til þeirra að daðra við
hvort annað í partíi sem söngvar-
inn Prince hélt eftir Óskarsverð-
launahátíðina. Skömmu seinna
fóru þau saman í skíðaferðalag.
Justin og Jessica neituðu á þeim
tíma að þau væru par.
Eftir þetta skellti Justin sér á
stefnumót með hinni sjóðheitu
leikkonu Scarlett Johansson. Var
strax talað um að þar færi heitasta
parið í Hollywood. Á sama tíma
fór Jessica Biel á nokkur stefnu-
mót með leikaranum Ryan Reyn-
olds, en þau léku saman
í kvikmyndinni Blade:
Trinity. Þessum sam-
böndum tveimur lauk
þó snögglega.
Nú er Justin sem sagt
aftur farinn að gera
sér dælt við Jess-
icu Biel en dram-
atíkinni lýkur
ekki alveg með
því. Þau Ryan
Reynolds og
Scarlett Johans-
son láta þetta
nefnilega ekki
ganga yfir sig.
Sama kvöld og
Justin og Jess-
ica kysstust í
afmælisveislu
fóru þau Ryan og Scarlett á róm-
antískan veitingastað í New York
og létu mjög vel að hvort öðru.
„Þau eru klárlega saman,“ sagði
einn gestanna á veitingastaðnum.
Þannig er nú lífið í henni Holly-
wood.
Katie Holmes mætti með dótt-
ur sína Suri í kvikmyndaver í síð-
ustu viku. Í kjölfarið ganga sögur
um að hún og Tom Cruise hygg-
ist láta dótturina birtast á hvíta
tjaldinu innan tíðar. Katie mætti í
Silvercup-stúdíóið þar sem marg-
ar prufuupptökur eru gerðar. „Það
er ekkert frágengið enn, meðan
Katie var í prufum passaði barn-
fóstra dótturina,“ sagði heimildar-
maður New York Daily News.
Dóttirin Suri verður eins árs í
næstu viku.
Suri á
hvíta tjaldið