Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.04.2007, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 12.04.2007, Qupperneq 86
Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum hyggst stórsveitin Síðan skein sól koma saman á nýjan leik síðasta vetrardag, 18. apríl, og leika mörg af sínum bestu lögum í Borgarleikhúsinu. Samkvæmt Ís- leifi B. Þórhallssyni, framkvæmda- stjóra Concert, er þegar uppselt á fyrri tónleikana og hefur því öðrum verið bætt við seinna um kvöldið. Hljómsveitin verður þó ekki ein á sviðinu því sannkallað landslið tón- listarmanna mun leggja þeim lið. Þá munu gamlir vinir og nýir reka inn nefið en meðal þeirra eru sjálf Silvía Nótt, KK og Björn Jörundur. Þegar Fréttablaðið náði tali af Helga Björnssyni var ekki annað að heyra á honum en hann væri spenntur fyrir þessum gestum. „Ég nefndi það við Silvíu að hún myndi syngja Nostalgíu, lagið sem Ingi- björg Stefánsdótt- ir söng með okkur á sínum tíma,“ segir Helgi. Þeir KK og Björn Jör- undur eru hins vegar sveitinni að góðu kunn- ir. Og upp- lýsir Helgi meðal ann- ars að KK hafi spilað með þeim á plötunni Einmanna sem kom út árið 1999. „Ætli við reynum ekki að fá hann til að spila með okkur eitt eða tvö lög af þeirri plötu,“ segir Helgi. Björn Jörundur hefur einnig komið töluvert við sögu sveitarinnar. Var reyndar í harðri baráttu við Síðan skein sól á sveitaballamarkaðin- um með Ný dönsk á sínum tíma en gróf síðan stríðsöxina og tók smá túr með sveitinni þegar bassaleik- arinn Jakob Smári var í fríi. „Ætli við tökum ekki saman Þú ert ekk- ert betri en ég, það ætti að vera við hæfi,“ segir Helgi og hlær. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég borða yfirleitt hafragraut.“ Gamlir vinir Sólarinnar og nýir Eins og fram kom í Fréttablaðinu í júlí á síðasta ári var Óttar Guðnason ráð- inn sem kvikmyndatökumaður í nýjustu kvikmynd Jan De Bont, Stopping Power. Þá stóð til að tökur hæfust í september en yrði síðan lokið í október. Eitthvert bakslag kom í málið, nýir fjárfestar tóku við kvikmyndinni og nýir leikarar voru ráðnir til verksins. Óttar hélt hins vegar sinni stöðu og skömmu fyrir páskahelg- ina barst honum tölvupóstur frá leik- stjóranum þar sem hann bað Óttar um að fara að gera ferðatöskurnar klárar. „Það á allt saman að skýrast öðru hvor- um megin við helgina hvenær ég fer út og núna er þetta svona áttatíu prósent að þetta fari allt að rúlla,“ segir Óttar, sem var í langþráðu páskafríi á Spáni þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Myndin verður tekin upp í Berlín og á svæðinu þar í kring. Óttar sagðist ekki vita hvaða leikarar hefðu verið ráðnir í staðinn fyrir þá gömlu en verið væri að hnýta síðustu hnútana á þeim bænum. Um er ræða spennumynd sem fjall- ar um orrustuflugmann sem fer í frí til Evrópu á húsbíl. Í för með honum er dóttir hans og kærasta en þegar húsbíln- um er rænt með stúlkunni hans innan- borðs hefst æsilegur eltingaleikur. Og þetta mun því krefjast mikillar útsjón- arsemi hjá kvikmyndatökumanninum ís- lenska að festa kappakstra og annað tengt því á filmu. Hinn hollenski Jan De Bont hóf sjálfur störf sem kvik- myndatökumaður en hefur að undanförnu aðallega fengist við leikstjórn og gerði meðal ann- ars Speed og fyrstu Löru Croft- myndina. Óttar gerir sig kláran í bátana Krummi Björgvinsson í Mínus fer með hlutverk Jesú Krists í upp- færslu Vesturports á söngleikn- um Jesus Christ Superstar. „Jesús Kristur var og er enn þekktasta stjarna og rokkstjarna heims- ins. Auðvitað vill maður leika aðal fyrst,“ sagði Krummi, sem fetar þannig fyrstu skref sín á leiklistarsviðinu. „Ég hef náttúrlega oft spilað á leiksviði, sem tónlistarmaður,“ benti hann réttilega á. „Þetta er heldur ekki svo langt frá því sem ég hef verið að gera frá því að ég var lítill krakki, að syngja rokk- músík á sviði. En þetta er öðru- vísi tjáning. Ég þarf að tjá karakt- er og sögu, sem er svolítil áskor- un, og líka það skemmtilegasta við þetta,“ sagði Krummi. Hann kvaðst ekki stressaður yfir að leika sjálfan Jesú Krist. „Nei, nei. Ég er kaþólikki og var í kaþólskum skóla. Trú hefur allt- af verið mikill partur af mínu lífi, þó ég sé kannski ekki að fara að skrifta hvern einasta dag,“ sagði hann. „Þetta verður líka svolítið nú- tímalegri uppsetning, Jesús Krist- ur með tattú og attitjúd,“ bætti hann við. „Það er kominn tími til að hrista upp í þessu og gera þetta að ótrúlega flottu rokksjóvi. Ég er allavega hundleiður á að horfa á sömu uppsetningu á þessu fram og til baka,“ sagði hann. Krummi segir Jesus Christ Superstar vera einn besta söng- leik allra tíma. „Tónlistin er meiri háttar, og það hafa líka frábærir söngvarar sungið þetta. Ian Gillan úr Deep Purple og Ted Neely, sem gerði þetta rosalega vel í kvik- myndinni,“ sagði hann. „Ég geri þetta að mínu eigin. Ég er ekkert að fara að setja klemmur á eistun á mér til að ná háa séi, sko,“ sagði hann sposk- ur. Með honum á sviðinu verða aðrir reynd- ir tónlistarmenn, því Jens Ólafson, betur þekktur sem Jenni úr Brain Police, og Bjarni Hall úr Jeff Who? fara með hlutverk Júdasar og Pét- urs. Pontíus Pílatus verður í hönd- um Ingvars E. Sigurðssonar, Ólaf- ur Darri Ólafsson leikur Kaífas, Heródes verður Ólafur Egill Ól- afsson og Lára Sveinsdóttir leikur Maríu Magdalenu. Félagar Krumma úr Mínus, þeir Bjössi og Bjarni, verða honum til halds og trausts í hljómsveit- inni. „Það er rosalega gott, enda eru þeir þéttasta tempótvíeyki sem Ísland hefur séð, að mínu mati,“ sagði Krummi. Karl Sig- urðsson úr Baggalúti verður kór- stjóri, og halda hann og leikstjór- inn Björn Hlynur Haraldsson kór- prufur annað kvöld. Þeir sem vilja spreyta sig á þeim og syngja í kapp við Krumma í sumar geta látið vita af sér á rakel@artbox.is. Handrit er að sögn Krumma enn í vinnslu, en frumsýningin verður væntanlega um mitt sumar. FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.