Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 2
Á fyrsta fjórðungi
ársins voru að meðaltali 3.500
manns án vinnu og í atvinnuleit.
Eru það tvö prósent vinnuafls,
tæpu hálfu prósenti minna en á
sama tíma á síðasta ári. Athugan-
ir Hagstofunnar leiða þetta í ljós.
Atvinnuleysi nú mælist mest hjá
ungu fólki. Fjöldi starfandi á
fyrsta ársfjórðungi var 172.800 og
fjölgaði um 9.300 frá 2006.
Fram kemur að meðalfjöldi
vinnustunda fólks í fullu starfi var
rúmar 47 klukkustundir á viku,
heldur fleiri hjá körlum en konum.
3.500 án vinnu
og í atvinnuleit
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráð-
herra mun á næstu dögum leggja til að tekin verði
upp „eðlileg samskipti“ við heimastjórn Palestínu-
manna.
„Ég tel að myndun heimastjórnarinnar sé jákvætt
skref og ég er þeirrar skoðunar að við eigum að taka
upp eðlileg samskipti við stjórn sem er kosin í lýð-
ræðislegum kosningum,“ segir Valgerður.
Norðmenn hafa lengst þjóða gengið í að rjúfa
alþjóðlega einangrun stjórnar Fatah-hreyfingarinn-
ar og Hamas-samtakanna. Í síðasta mánuði sagði
norska stjórnin að eðlilegu stjórnmála- og viðskipta-
sambandi við palestínsku stjórnina yrði komið á.
Aðrar Evrópuþjóðir hafa ekki stigið þetta skref enn.
Valgerður vill þó leggja ríka áherslu á kröfur
Kvartettsins svokallaða, fjóreyki Sameinuðu
þjóðanna, Bandaríkjanna, ESB og Rússlands.
Ráðherra nefnir sérstaklega að heimastjórnin eigi
að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis.
„Á það hafa Norðmenn lagt áherslu líka og við
munum halda þeim skilyrðum á lofti. Það má túlka
orð Hamas-samtakanna þannig að þau séu að verða
jákvæðari í garð þessara skilyrða. Öllum má líka
vera ljóst að stjórnleysi á þessu svæði hjálpar
hvorki Palestínumönnum né Ísraelsmönnum,“ segir
utanríkisráðherra.
Tveir menn um þrí-
tugt, búsettir á höfuðborgarsvæð-
inu, hafa verið handteknir vegna
rökstudds gruns um að þeir hafi
átt viðskipti við erlendan barna-
klámhring. Þetta staðfesti Björg-
vin Björgvinsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Mennirnir sem um ræðir voru
handteknir í lok síðustu viku eftir
að tilkynning um tengsl klám-
hringsins hingað til lands barst frá
Europol til embættis ríkislögreglu-
stjóra, sem vísaði málinu áfram til
lögreglu höfuðborgarsvæðisins.
Um var að ræða allstórt samvinnu-
verkefni.
Í kjölfar handtökunnar var gerð
húsleit heima hjá mönnunum og
samtals sjö tölvur gerðar upptæk-
ar. Þær eru nú til rannsóknar hjá
tölvudeild lögreglunnar.
Að sögn Björgvins komst upp
um klámhringinn eftir að ítalskur
karlmaður hafði verið handtekinn
í heimalandi sínu. Ljóst þykir að
barnaklámhringurinn eigi upptök
sín á Ítalíu, en hafi síðan teygt
anga sína til fleiri Evrópulanda,
þar á meðal Íslands. Rökstuddur
grunur leikur á því að Íslending-
arnir tveir séu meðal þeirra sem
keypt hafa barnaklámefni með
þessum hætti.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er enn ekki komið í ljós
hvað tölvur tvímenninganna hafa
að geyma, enda skammt liðið frá
því að þær komust í hendur lög-
reglu. Mönnunum var sleppt að
yfirheyrslu lokinni, en lögreglan
vinnur að rannsókn á máli þeirra.
Björgvin segir að nær stöðugt sé
verið að koma upp um alþjóðlega
barnaklámhringi. Frá því að kyn-
ferðisbrotadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu hóf starf sitt
um áramót hafa 8-10 Íslendingar
komið við sögu lögreglu í slíkum
málum á ofangreindu tímabili,
annaðhvort eftir að þeir höfðu
hlaðið barnaklámi inn á tölvur
sínar eða fest kaup á því. Ekki er
langt síðan fimm manns voru
handteknir hér á landi vegna gruns
um tengsl við umfangsmikinn
alþjóðlegan barnaklámhring, sem
rakinn var til Austurríkis. Mál
þeirra hafa verið til rannsóknar
hjá lögreglu.
Tveir grunaðir um
kaup á barnaklámi
Tveir menn voru handteknir í síðustu viku vegna gruns um viðskipti við erlend-
an barnaklámhring. Sjö tölvur í eigu mannanna eru til rannsóknar. Handtakan
átti sér stað í kjölfar tilkynningar Europol um tengls klámhringsins til Íslands.
Bókverkakonan
Áslaug Jónsdóttir hlaut Barna-
bókaverðlaun menntaráðs
Reykjavíkurborgar annað árið í
röð. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri afhenti verðlaunin
við hátíðlega
athöfn í Höfða í
gær.
Verðlaunin
fær Áslaug fyrir
bókina Stór
skrímsli gráta
ekki sem hún
samdi og
myndskreytti
ásamt Svíanum
Kalle Güettler
og Rakel Helms-
dal frá Færeyj-
um. Í fyrra
hlaut Áslaug verðlaunin fyrir bók
sína Gott kvöld.
Verðlaun fyrir bestu þýðingu
barnabókar 2007 fær Rúnar Helgi
Vignisson rithöfundur fyrir
Sólvæng eftir kanadíska rithöf-
undinn Kenneth Oppel.
Verðlaunuð í
annað sinn
Samskipti við Palestínustjórn
Fjögurra manna
fjölskylda slasaðist í alvarlegu
umferðarslysi í Langadal um
klukkan sjö í gærmorgun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti þrjá á Blönduós. Einn var
fluttur með sjúkrabíl á sjúkra-
húsið á Akureyri með minni
háttar áverka á brjóstholi.
Bílstjórinn, maður um þrítugt,
er ekki alvarlega slasaður
samkvæmt upplýsingum
Landspítala. Móðir hans
slasaðist, er handleggs- og
mjaðmagrindarbrotin og fjórði
maðurinn beinbrotnaði í andliti,
öxlum og hrygg en mun ekki
hafa lamast.
Alvarlegt slys í
Langadal
Fjórar stórar sprengjur
voru sprengdar í hverfum sjía-
múslíma í Bagdad í gær. Spreng-
ingarnar drógu að minnsta kosti
164 menn til dauða og enn fleiri
særðust. Þetta voru mannskæð-
ustu árásirnar á einum degi frá
því írösk öryggismálayfirvöld
hers og lögreglu, auk bandaríska
herliðsins, efndu til átaks í að
koma á friði í höfuðborginni fyrir
tveimur mánuðum.
Flestir fórust þegar bílsprengja
var sprengd inni í hópi verka-
manna á Sadriyah-markaðnum í
miðri Bagdad. Minnst 116 dóu og
145 særðust, að sögn talsmanns Al-
Kindi-sjúkrahússins, þangað sem
flest fórnarlömbin voru flutt.
Minnst 164 far-
ast í Bagdad
Ókunnir árásarmenn myrtu í gær þrjá
starfsmenn hjá kristinni bókaútgáfu í borginni
Malatya í Tyrklandi. Fólkið var bundið á höndum
og fótum og skorið á háls þegar að var komið. Einn
var þá enn með lífsmarki, en dó á sjúkrahúsi
skömmu síðar, að sögn lögreglu. Eitt fórnar-
lambanna kann að hafa verið Þjóðverji, en ekkert
fékkst staðfest að svo komnu máli um þjóðerni
hinna myrtu.
Fjórði maðurinn komst undan árásarmönnunum
með því að stökkva út um glugga. Hann var á
sjúkrahúsi með höfuðáverka og önnur meiðsl, en
ekki í lífshættu.
Lögregla handtók fjóra menn, grunaða um að
hafa framið árásina. Hún rannsakaði einnig hvort
verið gæti að maðurinn sem stökk út um gluggann
hefði verið í hópi árásarmannanna.
Öfgaþjóðernissinnar í Tyrklandi hafa áður beint
spjótum sínum að Zirve-útgáfunni í Malatya, sem
meðal annars hefur dreift Biblíum. Saka þeir
útgáfuna um að reka áróður fyrir trúskiptum, sem
þeir álíta örgustu goðgá í landi þar sem 99 prósent
íbúanna eru múslímar.
Yfir helmingur
veitingahúsa og sjötíu prósent
mötuneyta lækkuðu ekki verð
eftir 1. mars þegar virðisauka-
skattur á matvæli lækkaði. Þetta
kemur fram í skýrslu sem
Neytendastofa hefur tekið saman.
Í 54 prósentum tilvika var
verðið óbreytt eða hærra eftir 1.
mars. Ábendingum frá almenningi
var fylgt eftir með bréfum til
veitinga- og kaffihúsa. 47 prósent
svöruðu og sögðust hafa lækkað. Í
53 prósentum tilvika bárust ekki
svör eða þau kváðust ekki ætla að
lækka. Aðeins tólf mötuneyti
lækkuðu hjá sér verð eftir 1. mars.
Minnihluti
lækkaði verð
Björn, er þetta enn ein eftir-
herman?