Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 8
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 2. hæð, 105 Reykjavík
Símar: 515 1735 og 898 1720, fax: 515 1717
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingis
kosninganna 12. maí nk. er hafin.
Erlendis er kosið í sendiráðum Íslands og hjá mörgum ræðismönn-
um. Einnig er kosið á sjúkrahúsum og öldrunarstofnunum skv.
sérstökum auglýsingum þar um.
Munið að hafa skilríki meðferðis.
Utankjörstaðaskrifstofan veitir allar upplýsingar og aðstoð við
kosningu utan kjörfundar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á
heimasíðu Sjálfstæðisflokksins www.xd.is og á upplýsingavef
dómsmálaráðuneytisins www.kosning.is
Sjálfstæðisfólk!
Látið okkur vita um stuðningsmenn
sem ekki verða heima á kjördag, t.d.
námsfólk erlendis.
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Kosið er hjá sýslumönnum um allt land.
Í Reykjavík er kosið í anddyri Laugardalshallarinnar
alla daga kl. 10.00 - 22.00.
Elstu hús
Reykjavíkur
4
6a
7
10
6b
2
8
17
13
11
9
16 18
20
22
2b
2
„Það er skelfilega sárt að
horfa upp á svona merkilegar
minjar verða eldi að bráð. Þetta
horn er eitt helsta kennileiti
Reykjavíkur og þessum húsum
fylgir afar merkileg saga,“ segir
Guðjón Friðriksson sagnfræðing-
ur sem fylgdist með brunanum í
miðborginni í gær.
Húsin tvö sem brunnu eru með
eldri húsum bæjarins. Húsið við
Lækjargötu 2 var byggt árið 1852
og var fyrsta hornhúsið sem byggt
var í Reykjavík. Hitt húsið, við
Austurstræti 22, er að stofninum
til frá árinu 1801 og því eitt allra
elsta hús landsins. „Ég leyfi mér
að segja að þetta hús við Austur-
stræti sé einn merkasti sögustað-
ur landsins,“ segir Guðjón en
húsið var bústaður stiftamtmanns
og þar var landsyfirréttur til húsa.
Í húsinu var æðsti dómstóll lands-
ins og árið 1809 bjó sjálfur Jör-
undur hundadagakonungur í hús-
inu. Prestaskóli var starfræktur í
húsinu um áratuga skeið sem Guð-
jón segir að hafi verið fyrsti vísir-
inn að háskóla á Íslandi. Þá muna
eflaust margir Reykvíkingar eftir
Haraldarbúð en hún var rekin í
húsinu frá árinu 1915.
Húsið við Lækjargötu 2 á sér
einnig merka sögu. Þar rak Sigfús
Eymundsson ljósmyndastofu og
bókaverslun frá árinu 1871 og
matsala stúdenta „Mensa Acad-
emica“ var í húsinu frá 1921.
Magnús Skúlason, arkitekt og
forstöðumaður húsfriðunarnefnd-
ar ríkisins, segir að tjónið sé ómet-
anlegt. „Það er skelfilega sorglegt
að sjá svona byggingararfleifð
fara upp í reyk,“ segir Magnús
sem fagnar yfirlýsingum borgar-
stjóra um að húsin verði gerð upp
í upprunalegri mynd.
Menningarminjar
urðu eldi að bráð
Húsin sem brunnu við Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 eru með elstu húsum
bæjarins. Sérfræðingar segja að menningartjónið sé ómetanlegt.
17.20