Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 10
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
0 kr. í útborgun*
28.412* kr. á mánuði
fyrir beinskiptan Opel Astra 1.6 ( Verð: 1.890.000 kr. )
31.836* kr. á mánuði
fyrir sjálfskiptan Opel Astra 1.8 ( Verð: 2.120.000 kr. )
Olíublautir fuglar
sáust í Hvalsnesfjöru í gær, þar á
meðal dauður fýll sem talið er að
hafi drepist af öðrum orsökum.
Helgi Jensson, verkefnisstjóri hjá
Umhverfisstofnun, segir að ekki
sé um bráða hættu að ræða. Beðið
verði með að hreinsa fjöruna þar
til á morgun, föstudag, þar sem
dagurinn í dag er frídagur.
Ríkharður Friðriksson, starfs-
maður Heilbrigðiseftirlits Suður-
nesja, gekk fjörur í Sandgerði í
gær að beiðni Umhverfisstofnun-
ar til að kanna umfang olíumeng-
unarinnar. Hann sagði að olíu-
slikja lægi yfir en aðeins einn
olíublautur fýll hefði fundist.
Guðmundur Ásgeirsson, stjórn-
arformaður Nesskipa, segir að
smurolía hafi farið undan vélinni í
sjóinn þegar Wilson Muuga var
dreginn af strandstað í fyrrakvöld.
Búast megi við að um nokkur tonn
af smurolíu geti verið að ræða.
Wilson Muuga liggur nú við
bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.
Guðmundur segir að hreinsa þurfi
vélarbotninn og dæla upp smáveg-
is af sjóblandaðri olíu. Meira verði
ekki gert í bili. Mestar líkur séu á
því að siglt verði með skipið til
viðgerða eða niðurrifs á ódýrum
stað austarlega við Svartahaf. „Ég
á ekki von á því að strákarnir
hérna geti ráðið við þetta,“ segir
hann.
Vinna við að ganga frá tækjum
og björgunarbúnaði hófst á strand-
stað í gær.
Beðið með hreinsun