Fréttablaðið - 19.04.2007, Qupperneq 26
[Hlutabréf]
Hátt gengi krónunnar skýrist
fyrst og fremst af ofmati á gengi
hennar gagnvart Bandaríkjadal.
Raungengi gagnvart bandaríkja-
dal er nálægt sjö ára jafnvægis-
gildi. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu greiningardeildar Kaup-
þings banka.
Á fundi greiningadeildarinn-
ar í gærmorgun kynntu Þóra
Helgadóttir og Ásdís Kristjáns-
dóttir, sérfræðingar deildarinn-
ar, úttekt sína á stöðu krónunnar.
Þar kemur fram að viðskiptahalli
verði viðvarandi næstu árin í ljósi
vaxandi ójafnvægis þáttatekna,
en undir þær falla laun, vextir
og arðgreiðslur. „Slíkt ójafnvægi
skýrist fyrst og fremst af erlendri
skuldasöfnun íslenskra útrásar-
fyrirtækja. Hins vegar má velta
fyrir sér hvort slíkt ójafnvægi sé
áhyggjuefni sér í lagi ef litið er
til íslensku krónunnar. Hátt raun-
gengi krónunnar nú um stundir
skýrist fyrst og fremst af ofmati
íslensku krónunnar gagnvart doll-
ara. Raungengi krónu gagnvart
evru er hins vegar í kringum jafn-
vægi,“ segir í ritinu.
Haraldur Yngvi Pétursson, sér-
fræðingur greiningadeildar Kaup-
þings, fór yfir þróun og horfur í
Kauphöllinni á morgunverðar-
fundi með fagfjárfestum í fyrra-
dag. Hér hefur vöxturinn verið
mestur, 20,7 prósent það sem af
er árinu, en næst á eftir kæmi
sænska kauphöllin með 10,1 pró-
sents vöxt. „Enn er töluvert rúm
fyrir hækkun á úrvalsvísitölunni
og teljum við að hún endi kringum
8.500 stig í lok árs,“ segir hann.
Í fyrri spá bankans var gert ráð
fyrir að vísitalan færi í 8.000 stig.
Hann segir þó ekki ólíklegt að ein-
hverjar sveiflur kunni að verða.
Góð uppgjör fjármálafyrirtækja
og ytri vöxtur er það sem grein-
ingardeildin segir að styðji við
hækkun markaðarins.
Þannig spáir greiningadeildin
75 prósenta hagnaðaraukningu á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs frá
sama tímabili í fyrra hjá þeim fé-
lögum sem afkomuspár bankans
ná til og að hagnaður fjármálafyr-
irtækja aukist um 65 prósent.
Greiningadeildin er með þrjú
félög í yfirvogun í umfjöllun sinni,
en það eru Mosaic Fashions, Lands-
bankinn og Bakkavör. Spáð er 11 og
10 prósenta hækkun á gengi bréfa
Bakkavarar og Landsbankans til
tólf mánaða og 20,5 prósenta hækk-
un á gengi Mosaic Fashions. Þar
spili inn í jákvæðar fréttir af bresk-
um smásölumarkaði sem greining-
ardeildin telur að komi félaginu
mjög til góða.
Krónan er ofmetin og viðskiptahalli verður við-
varandi næstu ár. Á sama tíma árar vel fyrir hluta-
bréfamarkað, segir greiningadeild Kaupþings.
Peter S. Gitmark, þingmaður
Hægriflokksins á norska Stór-
þinginu og situr auk þess í fjár-
laganefnd þingsins, hefur skrifað
Kristinu Halvorsen, fjármálaráð-
herra Noregs og leiðtoga Sósíal-
istaflokksins, bréf og krafið hana
um ástæður þess að Kredittilsy-
net, norska fjármálaeftirlitið, vari
við því að Kaupþing eignist meira
en fimmtungshlut í norska fjár-
málafyrirtækinu Storebrand.
Í bréfinu vísar Gitmark til
skýrslu Fjármálaeftirlitsins sem
lak til norska dagblaðsins Dagens
Næringsliv í síðustu viku en þar
kemur fram að Kaupþing skorti
reynslu af tryggingarekstri, skorti
eigið fé, sé of áhættusækið og við-
kvæmt fyrir skakkaföllum í brot-
hættu íslensku hagkerfi til að fara
með meirihluta hlutafjár í Store-
brand.
„Er þetta stefna ríkisstjórnar-
innar?“ spyr Gitmark í bréfinu og
gagnrýnir Björn Skorgstad Aamo,
forstjóra eftirlitsins harðlega fyrir
afstöðu eftirlitsins. Ríkisstjórn-
in fór að tilmælum eftirlitsins og
setti þak á viðskipti Kaupþings við
20 prósenta hlut í Storebrand þrátt
fyrir að bankinn hefði óskað eftir
því að fá að fara með fjórðungs-
hlut í fjármálafyrirtækinu. Bank-
inn fer nú með rétt rúman sautján
prósenta hlut í Storebrand og er
stærsti hluthafi félagsins.
Dagens Næringsliv segir í gær
að Halvorsen muni svara bréfi
þingmannsins eftir viku.
Kaupþing rætt á stórþinginu
Tveir af stærstu sparisjóðum
landsins, SPRON og BYR spari-
sjóður, hafa sagt skilið við hina
sparisjóðina í sameiginlegum
markaðsmálum undir heitinu
„sparisjóðurinn“. Samanlagt eru
sparisjóðirnir tveir með um sex-
tíu prósent af umsvifum spari-
sjóðanna.
SPRON hefur reyndar unnið
undir eigin merkjum markaðs-
lega séð um nokkurra ára skeið og
BYR sparisjóður ætlar frá og með
næstu áramótum að fara eigin
leiðir þótt ekki liggi fyrir hvort
það verði alfarið út úr markaðs-
málum eða eingöngu auglýsinga-
þættinum.
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sparisjóða, segir að þetta sé að
vissu leyti eðileg þróun þegar til
verða jafn stórar einingar og Byr
sem varð til með samruna SPH og
SPV.
Þeir sparisjóðir sem eftir verða
ætla að þjappa sér saman að sögn
Guðjóns. „Það er jafnöruggt að
þeir sparisjóðir sem eru fyrir
utan þessa tvo munu enn þá frek-
ar herða samstarfið markaðslega.
Auðvitað má gera ráð fyrir að
minni peningar fari í þessi mál í
heildina.“ Hann bendir á að sam-
eiginlega ráði þeir sparisjóðir sem
eftir verða nálægt tíu prósentum
af einstaklingsviðskiptum í land-
inu þannig að mikill kraftur á að
vera til staðar.
Enn vinna sparisjóðirnir saman
á mörgum sviðum. „Það er mik-
ilvægt að átta sig á því að allir
sparisjóðir í landinu eru aðilar að
Sambandi sparisjóða og vinna náið
saman að stórum og smáum hags-
munamálum, til dæmis aðlögun og
innleiðingu Basel 2, sem er flókið
bankaverkefni, og fræðslumálum
sparisjóðanna,“ segir Guðjón.
Láta af samstarfinu
Peningaskápurinn...