Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 46
fréttablaðið sumarhús 19. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR4
Falleg viðarhúsgögn í gamal-
dags stíl eru nýkomin í verslun-
ina Virku. Áferð og handbragð
húsgagnanna er sérstaklega
vandað.
Hlýleg viðarhúsgögn í gamal-
dags stíl virka vel hvort sem er í
sumarbústaði eða á heimili. Slík
húsgögn var verið að taka upp í
Virku í Mörkinni 3 nú fyrir helgi.
Þau komu frá nýjum framleið-
anda í Bandaríkjunum. Litirnir
eru hvítur, svartur, grænn og ant-
ikblár og flest húsgögnin eru líka
máluð að innan. Dagbjört Helga-
dóttir verslunarkona lýkur lofs-
orði á handbragðið.
„Þessi húsgögn eru hömruð,
máluð í einum lit og olíuborin en
síðan pússuð niður. Sú meðhöndl-
un gefur sérstaka áferð og það er
mjög vönduð vinna á þeim. Einnig
má segja má að hver hlutur sé ein-
stakur því engir tveir hlutir verða
alveg eins þegar þeir eru hand-
unnir á þennan hátt,“ segir hún.
Skápar, borð, og ruggustólar eru
meðal þess sem kemur úr gámun-
um. „Það er mikið búið að bíða eftir
ruggustólunum,“ segir Dagbjört
brosandi. Einnig segir hún horn-
skápana alltaf njóta vinsælda enda
séu þeir litlir og nettir. „Þetta eru
sniðug húsgögn að því leyti að þau
taka lítið pláss og komast því víða
fyrir. Reyndar er hægt að fá þau í
breiðari gerðum líka.“ - gun
Handunnið og
huggulegt
Borð sem hentar í eldhúsið. Gott að vinna við og leggja frá sér hluti.
Vinalegur ruggustóll í sumarbústaðinn.
Þessi fallegi viðarskápur er einkennandi
fyrir húsgögnin í Virku.
Hornskáparnir njóta vinsælda í Virku.
Sýningin Sumar 2007 verður í Fíf-
unni í Kópavogi helgina 20.-22.
apríl og er í raun þrjár sýningar
í einni: Ferðir, golf og sumarhúsið
og garðurinn. Auður Ottesen held-
ur utan um þá síðastnefndu og
lofar stórskemmtilegri sýningu.
„Þetta er í sjötta sinn sem sýningin
Sumarhúsið og garðurinn er hald-
in og hún hefur aldrei verið stærri
en nú,“ segir Auður en yfir 300
sýningaraðilar verða með kynn-
ingar í Fífunni um helgina.
Spurð hvort börn geti unað sér
á sýningunni segir Auður: „Já, við
erum gjörn á að vera með eitt-
hvað fyrir börnin þannig að þeim
líði vel. Þau fá að föndra, kubba,
lita og reisa bjálkahús en eru allt-
af í seilingarfjarlægð frá foreldr-
unum.“
Auður segir að fólk komi á sýn-
inguna og sé þar hátt í þrjár til
fjórar klukkustundir. „Það er bæði
margt að sjá og alls konar upplif-
un fyrir fólk. Þar má nefna hönn-
unarsýningu sem er gaman að
skoða en þar eru hönnunarnemar
að keppa um umhverfislistaverk
með fræðslu- og notagildi. Þar eru
alveg stórkostlegar hugmyndir.
Síðan er blómaskreytingarkeppni
á laugardeginum þannig að það
er hægt að una sér vel þarna alla
helgina,“ segir Auður og reiknar
með að um 20-22 þúsund manns
muni heimsækja sýninguna um
helgina. sigridurh@frettabladid.is
Líf og fjör í Fífunni
Auður Ottesen vinnur hörðum höndum við undirbúning sýningarinnar Sumar 2007
en hún heldur utan um sumarhús og garða á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Four Seasons glerbyggingar
e ru f rábær lausn sem he fur
ve r ið mikið notuð á Ís landi .
Gle r ið e r háe inangrandi ,
með mjög góðr i sólarvörn
og öryggisgle r sem e r
skylda að nota í þök.
Gle r ið ge r i r húsin að 100%
he i l sárshúsum.
Sem dæmi um notkun hér á landi er:
Fyrir einkaheimili: Stofur, sólstofur, borðstofur,
eldhús, svalalokanir, sumarbústaðir og margt fleira.
Fyrir atvinnuhúsnæði: Veitingahús, hótel, verslunar-
hús, söluskálar, barnaheimili og margt fleira.
Verkhönnun
Kirkjulundi 13, 210 Garðabæ
Sími 565 6900
Netfang verkhonnun@simnet.is
SÓLSTOFUR - SVALALOKANIR
Viðhaldsfríar í húsið eða sumarbústaðinn