Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 68
U
mboðsmenn Grob-
ans passa greini-
lega vel upp á skjól-
stæðing sinn því
beita þurfti nokkr-
um brögðum til að
ná sambandi við söngvarann. Að
endingu hafðist það og söngvar-
inn reyndist vera spenntur fyrir
komu sinni hingað til lands. Gro-
ban sagðist ætla að dveljast hér á
landi í nokkra daga til að venjast
tímamismuninum en hann kemur
fram ásamt Gospelkór Reykjavík-
ur og sinfóníuhljómsveit. Groban
ákvað að hefja heimsferð sína á Ís-
landi vegna allra þeirra góðu hluta
sem hann hafði heyrt um landið
hjá fólki í tónlistarbransanum. Og
hann segist vera auðmjúkur yfir
því hversu hratt seldist upp á fyrri
tónleikana.
Groban býr einn í Englaborginni,
á hvorki konu né börn en segist
eiga hund. Það er erfitt fyrir hann
að sinna fjölskyldulífi um þess-
ar mundir en hann vonast þó til að
eignast góða konu og börn fyrr en
síðar. „Núna er ekki rétti tíminn,“
segir Groban. „Ég á sjálfur mjög
góða foreldra sem hafa stutt vel
við bakið á mér,“ bætir hann við
en faðir hans er sonur pólskra og
rússneskra innflytjenda en móðir
hans af norskum ættum. „Það er
hins vegar ekki ómögulegt að eiga
fjölskyldulíf í þeirri stöðu sem ég
er. Ég geri mér fyllilega grein fyrir
því að það að eiga fjölskyldu skipt-
ir miklu máli fyrir manns eigin
hamingju,“ segir Groban. „Og ég
vonast til að sá tími renni upp, fyrr
eða síðar.“
Söngvarinn hefur heimsreisu
sína hér á Íslandi. Við taka svo
löng ferðalög á landi sem og láði,
fjarri vinum og ættingjum þar
sem oftar en ekki er dvalist á
misgóðum hótelum. Groban seg-
ist hins vegar njóta þess að vera
á ferðalagi, hann sé á þeim aldri
þar sem ævintýrin eru rétt hand-
an við hornið. „Ég byrjaði á þess-
um tónleikaferðalögum mínum
fyrir þremur eða fjórum árum
síðan en það var ekkert sjálfgefið
að mér líkaði þetta líferni. Ég von-
aðist hins vegar til þess enda eru
ferðalög í kringum heiminn mikil
guðsgjöf,“ segir Groban. „Ferða-
lögin víkka út sjóndeildarhring-
inn og ég er 26 ára þannig að þetta
er akkúrat það sem mann á mínum
aldri dreymir um að gera,“ bætir
hann við og segist aldrei hafa velt
því fyrir sér af hverju í ósköpun-
um hann er að þessu á annað borð
þegar hann hvílir lúin bein á hót-
elherbergi. „Það getur gengið á
ýmsu, bæði fyrir tónleika og eftir
tónleika, en á þessum tveimur
tímum sem ég stend á sviðinu er
eins og allar áhyggjur séu á bak og
burt,“ útskýrir Groban. „Skjól mitt
á þessum ferðalögum er sviðið og
þá tilfinningu sem maður fær við
það að standa fyrir framan áhorf-
endur er ekki hægt að toppa. Hún
er algjörlega einstök og allt verð-
ur þess virði.“
Groban var orðinn fjórtán ára
þegar hann uppgötvaði að hann
gæti sungið. Hinar illviðráðanlegu
mútur voru þá að baki. „Strákar
verða að bíða þar til unglingsárin
eru að baki,“ grínast Groban með.
„Ég komst síðan í kynni við David
Foster sautján ára gamall og eftir
það gerðust hlutirnir frekar hratt,“
segir Groban. „Þetta hefur verið
mikið ævintýri en vonandi er fram-
tíðin bara björt því mér finnst eins
og ég eigi mikið eftir ógert í list-
inni,“ segir Groban. Hann viður-
kennir að hann hafi alltaf dreymt
um að standa á sviði en aldrei
þorað að vona að sá draumur yrði
að veruleika. „Þegar maður fær
tækifærið grípur maður það. Og
ég er ótrúlega þakklátur því fólki
sem hefur veitt mér mín tæki-
færi,“ bætir hann við.
Þótt Groban hafi selt plötur í
milljónum eintaka og verið til-
nefndur til Grammy-verðlauna
hafa engu að síður ófáir horn í
síðu söngvarans. Segja tónlistina
væmna og sérsniðna handa mið-
aldra konum. Groban segist vissu-
lega hafa fundið fyrir því á upp-
hafsárum sínum að konur á miðj-
um aldri væru í meirihluta á
tónleikum hans en í dag komi fólk
á öllum aldri. „Ég veit ekki hvern-
ig þetta verður á Íslandi en þegar
við erum að spila á þessum stóru
tónleikastöðum í Bandaríkjunum
eru áhorfendur af báðum kynj-
um,“ segir Groban en eilítið fát
kemur á söngvarann og hann spyr
af einskærri einlægni hvort það
sé satt að bara konur hafi keypt
miða á tónleikana hér á landi. Eftir
að hafa verið fullvissaður um að
þetta séu einungis gróusögur kref-
ur hann blaðamann um tíu dollara
ef einhverjir á hans aldri láti sjá
sig í Laugardalshöllinni.
Groban segist ekki vilja skilgreina
tónlist sína sem sígilda. Og hefur
aldrei reynt að brjóta sér leið inn
í óperuheiminn en segir að sín tón-
list sé einhvers staðar á milli popps
og sígildrar tónlistar. „Ég ber
mikla virðingu fyrir sígildri tónlist
og geri mér grein fyrir því að þar
er krafist mikillar hæfni og hæfi-
leika, ólíkt því sem mörgum þykir
vera í poppinu,“ útskýrir Groban.
„Á hinn bóginn býður klassíkin
ekki upp á þær tilraunir sem mig
langar að gera. Ég er mikill aðdá-
andi popptónlistar þegar hún er
vel gerð og að því leytinu lýtur hún
sömu lögmálum og aðrar listgrein-
ar. Hið sama á við um klassíska
tónlist, þar er alveg jafn marga lé-
lega tónlistarmenn að finna eins
og góða,“ segir Groban.
Groban var í tilraunaham
þegar hann hóf að vinna að sinni
nýjustu plötu, Awake. Fékk til
sín upptökustjóra sem hann hafði
lengi langað til að vinna með,
þeirra á meðal Glenn Baillard
sem hefur unnið með Alanis Mor-
risette og Dave Matthews Band,
Herbie Hancock og Marius DeVr-
ies en hann hefur meðal annars
verið Björk okkar Guðmundsdótt-
ur innan handar. „Þetta er fólk sem
hefur verið að vinna í þeim hluta
tónlistargeirans sem er mjög ólík-
ur því sem ég hef verið að gera,”
útskýrir Groban og hann er þeim
innilega þakklátur fyrir að hafa
tekið tíma til að vinna með sér.
„Nýjasta platan mín er því góð
blanda af því sem ég hef hingað til
gert og einhverju sem fólk hefur
ekki heyrt frá mér áður,“ segir
Groban. „Hún er því nokkuð fjöl-
breytt þó að auðvitað voni ég að
hún hafi heildstæðan svip,“ bætir
hann við.
Tónleikagestir í Laugardalshöll
geta átt von á því að fá mikið fyrir
sinn snúð um miðjan maí. Gro-
ban er annálaður fyrir mikla fag-
mennsku á sviði og gagnrýnend-
ur hafa hælt honum á hvert reipi
fyrir frammistöðu sína á tónleik-
um. „Sumir tónlistarmenn leggja
ekki mikla rækt við aðdáendur
sína og þeir um það. Mér finnst
það hins vegar vera skylda mín að
sinna þeim sem hafa gert mig að
því sem ég er í dag og það eru að-
dáendurnir. Mín tilfinning er sú að
aðdáendur krefjast sífellt meira af
sínum eftirlætistónlistarmönnum
og mér finnst ekkert nema sjálf-
sagt að bregðast við þeirra kröf-
um.“
Syng ekki bara
fyrir miðaldra konur
Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára hefur Josh Groban afrekað meira en margur. Hann hefur sungið í Vatíkaninu
og dúetta með söngvurum á borð við Barböru Streisand og Celine Dion. Þrátt fyrir þessa afrekaskrá segist Gro-
ban þó enn eiga sitt besta eftir. Freyr Gígja Gunnarsson lagði á sig krókaleið og hafði að endingu uppi á Groban
á heimili hans í Los Angeles.