Fréttablaðið - 19.04.2007, Page 72
Alþjóðlega
síkis-
fyrirtækið
Fólk sem er aðeins minna
en fullorðið er reglulega
krafið svara við spurn-
ingunni um hvað það
ætli að verða þegar það
er orðið stórt. Nú á dög-
unum las ég frétt um að
ungt fólk í dag setji helst stefnuna
á að verða sérfræðingar, svona arki-
tektar, læknar og lögfræðingar sem
mér finnst gott og blessað því ekki
áttum við von á að komandi kynslóð-
ir dreymi upp til hópa um að vinna
í framleiðslu og ræstingum, eða
hvað?
Það ætla jú flestir að verða „eitt-
hvað“ og ekki bara ungt fólk held-
ur litar þessi verðandi allt okkar líf.
Sem betur fer stefna flestir að því að
bæta sig, okkur býðst fjöldi náms-
leiða og leiðbeininga í því hvernig
við getum orðið betri og „eitthvað“
meira en við erum í dag. En það er
bara eins og að við séum aldrei „til-
búin“.
Mér varð hugsað til þessa þegar
ég sá leikritið Lífið – notkunarreglur
hjá Leikfélagi Akureyrar um daginn.
Í þessu leikriti Þorvaldar Þorsteins-
sonar fullyrðir persónan Bjalla að
hún hafi aldrei orðið neitt… nema
glöð og hamingjusöm. Hún er þó
alveg jafn týnd og aðrar persónur
verksins sem þó hafa nokkuð skýr
hlutverk og verkaskiptingu en ráfa
samt um í algjöru stefnuleysi. Boð-
skapur þessa gæti verið sá að ekki
er allt fengið með því að vera „eitt-
hvað“ og eru þau sannindi alls ekki
ný undir sólinni.
Lengi var líka lagt blátt bann við
því að fólk „héldi að það væri eitt-
hvað“ og þá var stundum spurt:
„Hver heldurðu eiginlega að þú
sért?“ Þá stóð oftast á svörunum og
gerir líklega enn þá. Ein afleiðing
þessa eru heilu hjarðirnar af fólki
með botnlitla minnimáttarkennd
sem heldur áfram að spyrja hvort
annað hvað það „haldi eiginlega að
það sé“.
Þegar ég var að alast upp – og
ég er jú að því enn þá – var ég líka
spurð hvað ég ætlaði að verða. Líkt
og margir af minni kynslóð yppti
ég oftast öxlum og sagði: „Bara eitt-
hvað.“ Nú er ég nokkuð viss um að
vera orðin bæði glöð og hamingju-
söm, nema með þessa mynd þarna af
mér enda líkist hún mér ekki neitt.
Stærðir
155/70R13 4,499 kr.
165/70R13 4,799 kr.
175/70R13 4,999 kr.
175/65R14 5,499 kr.
185/65R14 5,599 kr.
17570R14 4,999 kr.
185/70R14 5,499 kr.
185/65R15 5,999 kr.
195/65R15 6,499 kr.
205/55R16 8,999 kr.
215/55R16 9,999 kr.
215/45R17 11,999 kr.
225/45R17 12,999 kr.
235/40R18 17,999 kr.
Stærðir
205/75R15 9,499 kr.
30X9,50R15 13,499 kr.
31X10,50R15 14,999 kr.
33X12,50R15 16,999 kr.
35X12,50R15 17,999 kr.
265/75R16 15,499 kr.
265/70R17 15,999 kr.
35X12,50R17 26,999 kr.
285/65R18 31,999 kr.
35X12,50R18 33,999 kr.
Stærðir
195/70R15 9,999 kr.
225/70R15 10,999 kr.