Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 72
Alþjóðlega síkis- fyrirtækið Fólk sem er aðeins minna en fullorðið er reglulega krafið svara við spurn- ingunni um hvað það ætli að verða þegar það er orðið stórt. Nú á dög- unum las ég frétt um að ungt fólk í dag setji helst stefnuna á að verða sérfræðingar, svona arki- tektar, læknar og lögfræðingar sem mér finnst gott og blessað því ekki áttum við von á að komandi kynslóð- ir dreymi upp til hópa um að vinna í framleiðslu og ræstingum, eða hvað? Það ætla jú flestir að verða „eitt- hvað“ og ekki bara ungt fólk held- ur litar þessi verðandi allt okkar líf. Sem betur fer stefna flestir að því að bæta sig, okkur býðst fjöldi náms- leiða og leiðbeininga í því hvernig við getum orðið betri og „eitthvað“ meira en við erum í dag. En það er bara eins og að við séum aldrei „til- búin“. Mér varð hugsað til þessa þegar ég sá leikritið Lífið – notkunarreglur hjá Leikfélagi Akureyrar um daginn. Í þessu leikriti Þorvaldar Þorsteins- sonar fullyrðir persónan Bjalla að hún hafi aldrei orðið neitt… nema glöð og hamingjusöm. Hún er þó alveg jafn týnd og aðrar persónur verksins sem þó hafa nokkuð skýr hlutverk og verkaskiptingu en ráfa samt um í algjöru stefnuleysi. Boð- skapur þessa gæti verið sá að ekki er allt fengið með því að vera „eitt- hvað“ og eru þau sannindi alls ekki ný undir sólinni. Lengi var líka lagt blátt bann við því að fólk „héldi að það væri eitt- hvað“ og þá var stundum spurt: „Hver heldurðu eiginlega að þú sért?“ Þá stóð oftast á svörunum og gerir líklega enn þá. Ein afleiðing þessa eru heilu hjarðirnar af fólki með botnlitla minnimáttarkennd sem heldur áfram að spyrja hvort annað hvað það „haldi eiginlega að það sé“. Þegar ég var að alast upp – og ég er jú að því enn þá – var ég líka spurð hvað ég ætlaði að verða. Líkt og margir af minni kynslóð yppti ég oftast öxlum og sagði: „Bara eitt- hvað.“ Nú er ég nokkuð viss um að vera orðin bæði glöð og hamingju- söm, nema með þessa mynd þarna af mér enda líkist hún mér ekki neitt. Stærðir 155/70R13 4,499 kr. 165/70R13 4,799 kr. 175/70R13 4,999 kr. 175/65R14 5,499 kr. 185/65R14 5,599 kr. 17570R14 4,999 kr. 185/70R14 5,499 kr. 185/65R15 5,999 kr. 195/65R15 6,499 kr. 205/55R16 8,999 kr. 215/55R16 9,999 kr. 215/45R17 11,999 kr. 225/45R17 12,999 kr. 235/40R18 17,999 kr. Stærðir 205/75R15 9,499 kr. 30X9,50R15 13,499 kr. 31X10,50R15 14,999 kr. 33X12,50R15 16,999 kr. 35X12,50R15 17,999 kr. 265/75R16 15,499 kr. 265/70R17 15,999 kr. 35X12,50R17 26,999 kr. 285/65R18 31,999 kr. 35X12,50R18 33,999 kr. Stærðir 195/70R15 9,999 kr. 225/70R15 10,999 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.