Fréttablaðið - 19.04.2007, Qupperneq 84
We Were Dead Before the Ship
Even Sank − hér getur ekki verið
um að ræða nokkra aðra sveit
en Modest Mouse. Fyrsta lagið,
March Into the Sea, er líka eins
Modest Mouse-legt og lag getur
hugsast orðið. Annað lagið, Dash-
board, er síðan kennimerki hinn-
ar nýju Modest Mouse sem er allt
í einu farin að semja slagara sem
fá ofspilun í útvarpi. Flott upphaf
á plötu og sannar strax að Modest
Mouse er eðalsveit. En síðan kárn-
ar gamanið.
Platan á augljóslega að fylgja
eftir vinsældum síðustu plötu,
Good News For People Who Love
Bad News, sem var óvæntur hitt-
ari og líklegast poppaðasta plata
Modest Mouse til þessa. Þessi plata
verður því miður að teljast sem
slakur eftirbátur síðustu plötu.
Innkoma Johnnys Marr (fyrrver-
andi gítarleikara The Smiths og
80’s hetja) gerir lítið fyrir sveit-
ina og ummerki hans eru ekki auð-
sjáanleg. Í fyrsta skiptið á ferlin-
um virðist Modest Mouse vera að
reyna eitthvað og mistekst þannig.
Ég get samt ímyndað mér að Mod-
est Mouse hafi reynt ýmsa hluti
áður en þá hljómuðu tónarnir svo
áreynslulausir, svo yfirgengilega
rökréttir þrátt fyrir ringlureiðina.
Lög eins Fly Trapped In a Jar, Fire
It Up og Education eru öll ekkert
nema skugginn af sjálfum sér, hið
síðastnefnda líklegast eitt versta
lag sem komið hefur úr smiðju
hljómsveitarinnar.
Plúsarnir við plötuna eru þó
blessunarlega fleiri en mínus-
arnir enda eins framúrskarandi
góð hljómsveit á borð við Modest
Mouse vandfundin. We’ve Got Ev-
erything er líklegur slagari, Miss-
ed the Boat er melódísk ballaða,
Florida er Modest Mouse á sínum
besta degi og Steam Engine af-
slappað stuðlag. Þessi lög sanna
að Modest Mouse hefur þetta enn
alveg í sér og textar Isaacs Brock
halda sveitinni ennþá í fremstu
röð. Ég get samt ekki að því gert
að platan We Were Dead Before
the Ship Even Sank veldur von-
brigðum og er sísta plata Modest
Mouse til þessa, ekki versta, því
Modest Mouse er ófær um að gera
lélegar plötur.
Gott en slæmt
plata Modest Mouse til þessa
en samt sem áður margslungin
og heldur Modest Mouse enn í
fremstu röð.
Hljómsveitirnar Reykjavík!, Ultra
Mega Technobandið Stefán, Retro
Stefson og <3 Svanhvít! spila á
tónleikum á Grand Rokk í kvöld.
Útvarpsþátturinn Frank á X-inu
stendur fyrir tónleikunum til að
fagna sumardeginum fyrsta sem
og 450 daga afmæli þáttarins.
Reykjavík!, Ultra Mega Techno-
bandið Stefán og Retro Stefson
eru allt hljómsveitir sem hafa
vakið athygli upp á síðkastið fyrir
frumlega og skemmtilega tónlist
og afar líflega sviðsframkomu.
Hljómsveitin <3 Svanhvít! er
ellefu manna band sem varð í öðru
sæti í síðustu Músíktilraunum.
Sveitin vakti mikla athygli fyrir
líflega sviðsframkomu og frum-
lega hljóðfæraskipan þar sem
meðal annars var leikið á ryksugu,
potta og töfragítar.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og
það kostar 1.000 krónur inn.
Sumargleði á Grandrokk
Tónleikaferð þeirra Ólafar
Arnalds, Lay Low og Péturs
Ben um landið hefst í kvöld.
Fyrstu tónleikarnir eru á
Egilsstöðum.
„Ég er mjög spennt yfir þessu
öllu saman því það er lengi búið
að vera draumur hjá mér að fara
í svona tónleikaferð um landið. Ég
hef spilað úti á landi aður en aldrei
farið á svona túr,“ segir Ólöf Arn-
alds tónlistarkona sem ásamt þeim
Pétri Ben og Lay Low mun gleðja
eyru landsmanna á tónleikaferð
hringinn í kringum landið. Þau
munu spila á Egilsstöðum, Akur-
eyri, Hrísey, Stokkseyri, Bolung-
arvík, Akranesi og enda svo á því
að spila í Reykjavík.
„Ég hef komið á alla staðina
nema Hrísey og hlakka mikið til
að koma þangað. Staðurinn sem
við spilum á þar er pínulítill og
það verður ábyggilega bara fólk-
ið sem býr þarna sem kemur og
kannski nokkrir ferðamenn. Ann-
ars verður þetta örugglega allt
mjög skemmtilegt.“
Það er Rás 2 sem er bakhjarl
ferðarinnar og tilgangur hennar
er að að gefa tónlistaráhugafólki
á landsbyggðinni tækifæri til að
sjá og heyra fremsta tónlistar-
fólk landsins af yngri kynslóðinni
í heimabyggð.
Bæði Pétur Ben og Lay Low
spila með hljómsveitum sínum en
Ólöf verður ein með kassagítar.
Öll hafa þau vakið mikla athygli
fyrir nýútkomnar plötur sínar og
þykja afar skemmtileg á tónleik-
um. Því er það mikill happafeng-
ur fyrir landsbyggðarbúa að eiga
þess kost að sjá þau spila á tón-
leikum.
Nánari upplýsingar um tíma-
setningar og tónleikastaði má
finna á heimasíðu Rásar 2, www.
ruv.is/poppland.
Þá er viðtal við Ólöfu Arnalds
í tengslum við nýútkomna plötu
hennar Við og við í Fréttablaðinu
á laugardaginn.