Fréttablaðið - 19.04.2007, Qupperneq 88
SMS
LEIKUR
BESTI PLAYSTATION 2 LEIKUR ALLRA TÍMA
11. HVER
VINNUR!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
SENDU SMS
BTC FGW Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU: GOD OF W
AR 2
DVD MYNDIR, FULLT AF PEP
SI,
AÐRIR TÖLVULEIKIR OG
MARGT FLEIRA
STRANGLEGA BANNAÐUR INNAN 18 ÁRA!
LENDIR
26. APR
ÍL Í BT!
Nýr David Winnie á leið upp á Skaga?
Alþjóðaleikar ungmenna
fara fram hér á landi í sumar. Um
er að ræða fimm daga keppni frá
20. júní til 25. júní.
Leikarnir eru fjölmennasti al-
þjóðlegi íþróttaviðburður sem
haldinn hefur verið á Íslandi og
skipuleggjendur ætla hvergi að
spara í því að gera þá sem glæsi-
legasta.
Von er á um 1.200 keppend-
um hingað til lands og með þeim
kemur fjöldi þjálfara og foreldra.
Stærstur hluti leikanna fer
fram í Laugardal en keppt verð-
ur í frjálsum, knattspyrnu, hand-
bolta, sundi, badminton, júdó og
golfi.
Í gær var ritað undir samn-
inga við Kaupþing og Símann sem
verða aðalstyrktaraðilar mótsins.
Von á um 1.200
keppendum
Barcelona vann öruggan
sigur á Getafe, 5-2, í fyrri leik lið-
anna í spænsku bikarkeppninni.
Leiksins verður fyrst og fremst
minnst fyrir annað markið sem
Argentínumaðurinn Lionel Messi
skoraði. Hann fékk þá boltann
fyrir aftan miðju, sólaði hvern
varnarmann Getafe af öðrum,
síðan markvörðinn og lagði bolt-
ann í netið. Ótrúlegt mark sem
þegar er byrjað að tala um í sömu
andrá og mark Maradona gegn
Englandi á HM 1986.
Eiður Smári var loksins í byrj-
unarliði Barcelona og hann nýtti
tækifærið sitt vel og skoraði eitt
marka Barcelona með góðu skoti í
teignum.
Langþráð mark
hjá Eiði Smára
Enska úrvalsdeildin:
Spænski bikarinn:
Ítalska úrvalsdeildin:
Þýski handboltinn:
Chelsea heldur áfram að
anda ofan í hálsmálið á Manchest-
er United og gefur nákvæmlega
ekkert eftir í kapphlaupinu um
enska meistaratitilinn. Meist-
ararnir lögðu Íslendingafélagið
West Ham í gær, 1-4, á Upton Park
og staða Eggerts og félaga mjög
slæm.
Leikur Lundúnaliðanna í gær
var bráðfjörugur frá upphafi.
Phillips skoraði tvö frábær mörk í
fyrri hálfeik. Carlos Tevez jafnaði
í millitíðinni með laglegu marki en
Phillips átti flottustu tilþrifin með
seinna markinu sínu.
West Ham fékk tvö ágæt færi
til að jafna í upphafi síðari hálf-
leiks en hafði ekki heppnina með
sér. Chelsea nýtti sín færi aftur á
móti betur og fagnaði því örugg-
um sigri og þrem stigum.
„Tilfinningin að hafa skorað
þessi mörk er yndisleg en ég verð
að tileinka félögum mínum mörk-
in en þeir hafa aldrei tapað trúnni
á mér,“ sagði Wright-Phillips sem
hefur ekki þótt standa undir vænt-
ingum frá því hann var keyptur á
21 milljón punda frá Manchester
City.
„Það er ósköp eðlilegt að maður
verði sterkari eftir því sem maður
leikur fleiri leiki og hlutirnir eru
loksins að koma hjá mér. Við viss-
um annars vel hvað við yrðum að
gera í þessum leik. Við verðum
að vinna hvern einasta leik til að
setja pressu á Man. Utd. Þetta var
enn ein brúin sem við þurftum að
fara yfir og viljinn í þessu liði er
hreint ótrúlegur,“ sagði Phillips að
lokum.
Félagi hans, Frank Lampard,
fékk óblíðar móttökur eins og
venjulega á Upton Park þó sex ár
séu síðan hann yfirgaf West Ham.
„Þetta truflar mig ekki neitt.
Þvert á móti hvetja baulin mig
áfram. Ég þrífst í svona umhverfi.
Það voru nokkur vel valin orð látin
fjúka en ég er ekkert að erfa það.“
Toppbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er enn æsispennandi eftir að Chelsea
minnkaði forskot Man. Utd niður í þrjú stig á ný er liðið lagði West Ham, 1-4, á
Upton Park. Staða Hamranna er mjög alvarleg og fátt annað en fall blasir við.
Ársþing Hanknatt-
leikssambands Íslands, HSÍ, fór
fram í gær og lauk ekki fyrr en
seint í gærkvöldi. Að venju biðu
þingsins nokkrar áhugaverðar
tillögur.
Sú sem vakti mesta athygli
var tillaga Hafnarfjarðarliðanna
Hauka og FH sem lögðu fram til-
lögu um fjölgun liða með úrslita-
keppni sem var felld út fyrir
ári síðan. Tillagan var dregin til
baka.
„Mótinu verður engu að síður
breytt á þá leið að áfram verð-
ur átta liða deild en nú með fjór-
um umferðum í stað þriggja,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ. „Tillaga um
umgjörð leikja var einnig sam-
þykkt og svo verður breyting
á deildarbikarnum. Sú keppni
verður spiluð á milli jóla og
nýars á einni helgi. HSÍ mun
halda utan um þá helgi. Tillaga
um ferðajöfnunarsjóð var ekki
samþykkt en mælt hafði verið
með hækkun.“
Guðmundur Ágúst Ingvarsson
var endurkjörinn formaður HSÍ
en hann var einn í framboði.
Haukar og FH drógu
tillögu sína til baka