Fréttablaðið - 19.04.2007, Qupperneq 94
Bræðurnir Tolli og Bubbi Morthens
halda til Lúxemborgar í byrjun maí,
þar sem þeir verða með listviðburði
á vegum Kaupþings. „Ég er að fara
að halda sýningu í einhverju menn-
ingarsetri þarna, sem mig minnir
að heiti Le Moulin. Þetta er gamalt
klaustur sem var síðar notað sem
fangelsi. Þarna eru miklir salir og
mikið pláss, og flottur tónleikasal-
ur sem Bubbi heldur tónleika í,“ út-
skýrði Tolli. Verkin sem hann sýnir
hafa áður verið til sýningar í Maga-
sin du Nord, en hafa enn ekki komið
fyrir augu almennings hér heima.
Sýning hans og tónleikar Bubba
eru hluti af árlegum viðburði sem
bankinn stendur fyrir, að sögn
Tolla. „Um helgina eru þeir með
golfmót sem íslenskum viðskipta-
vinum er boðið á. Þá labba menn
um grænar grundir, berja kúlur og
ræða málin eins og menn á þessum
vettvangi gera iðulega,“ sagði Tolli.
Eftir helgina tekur listin svo við.
„Við verðum þarna annan maí,“ út-
skýrði Tolli.
Bræðurnir hafa ekki unnið saman
að verkefni á borð við þetta í lengri
tíma. „Við gerum eitt og annað
saman þegar þannig stendur á, en
það er langt síðan við höfum gert
eitthvað af þessari stærðargráðu
saman,“ sagði Tolli. Aðspurður hvort
það hafi þá þurft banka til að sam-
eina bræðurna hlær Tolli við. „Ja,
einu sinni gengum við saman undir
rauðum fána fyrsta maí. Nú göng-
um við saman undir merkjum Kaup-
þings,“ sagði hann sposkur.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er rétt og þessi samstaða
er vægast stórkostleg,“ segir
Randver Þorláksson, formaður
Félags íslenskra leikara, en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa þó nokkuð margir ungir leik-
arar hafnað hlutverkum í sjón-
varpsþáttaröðinni Pressu vegna
ósættis um launamál. Meðal
þeirra sem hafa hafnað hlutverk-
um eru þeir Gísli Pétur Hinriks-
son og Jóhannes Haukur Jóhann-
esson auk annarra og hafa þeir
fengið mikinn stuðning í þess-
ari kjarabaráttu frá leikurum
af eldri kynslóðinni í tölvupósti.
„Launaumhverfi leikara breytt-
ist mjög mikið fyrir nokkrum
árum þegar verktakasamning-
ar voru teknir upp en þá reyndist
það erfiðara fyrir félagið að fylgj-
ast með,“ segir Randver. „En það
hefur alltaf verið krafa hjá FÍL
að staðið sé við gerða samninga,“
segir Randver og ljóst að leikar-
ar ætli ekki lengur að láta undir-
bjóða sig.
Pressa er hugarfóstur þeirra
Óskars Jónassonar og Sigurjóns
Kjartanssonar en það er Saga
Film sem framleiðir þættina fyrir
Stöð 2. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins hafa nokkrir leik-
arar þegar skrifað undir samn-
inga og ætla sér að standa við þá.
Aðrir íhuga að rifta þeim sökum
þessarar miklu undiröldu meðal
leikarastéttarinnar en þættirn-
ir þykja bjóða upp á skemmtileg
og bitastæð hlutverk. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins fékk
Leikfélag Hafnarfjarðar síðan
bréf frá Saga Film þar sem fram-
leiðslufyrirtækið óskaði eftir að
fá að koma á fund félagsins og
halda prufur.
Þór Freysson, framleiðandi
þáttanna, kannaðist vissulega
við þennan óróa en sagði ekki
um neitt upphlaup að ræða. „Við
erum langleiðina komnir með að
ráða í hlutverk þannig að þetta
hefur ekki verið vandamál. Og
satt að segja kemur þetta okkur
spánskt fyrir sjónir,“ segir Þór en
Saga Film hefur framleitt þætti
á borð við Stelpurnar og nú síð-
ast Næturvaktina. „Það er miðað
við annað verð fyrir svona lokað-
ar stöðvar en fyrir til dæmis RÚV
sem hefur breiðari áhorfenda-
hóp,“ útskýrir Þór. „Og eftir því
sem okkur skilst eru samningar
FÍL við SÍK, Sambands íslenskra
kvikmyndagerðarmanna,
útrunnir auk þess
sem félagið hefur
ekki haft neinn
samning við Stöð
2 eins og háttur-
inn er hafður á í
öðrum löndum,“
bætir hann við.
„Ég hef nú lagt það í vana
minn að fá mér hafragraut með
brytjuðum banönum og lýsi í
eftirrétt. Það fer síðan allt eftir
því hvenær ég vakna hvað þessi
morgunmatur dugar mér.
Bubbi og Tolli undir merkjum Kaupþings
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins hefur Kristj-
án Hreinsson Skerjafjarðarskáld
unnið fullnaðarsigur í deilu sinni
og Sveins Rúnars Sigurðsonar
vegna Eurovsion-lagsins Valent-
ine‘s Lost.
Málavextir voru þeir að Kristj-
án samdi íslenskan texta við lag
Sveins Rúnars, Ég les í lófa þínum,
sem Eiríkur Hauksson flutti til
sigurs. Og höfðu þeir bundist
fastmælum um að ef lagið sigr-
aði myndi enskur texti Kristjáns
vera notaður í Helsinki. Eftir að
sigurvíman hafði runnið af þeim
kom í ljós að Sveinn Rúnar hafði
gengið á bak orða sinna, fengið
Eurovision-skáldið Peter Fenner
til að semja enskan texta og skil-
ið Kristján eftir í sárum. Eins og
komið hefur fram í fjölmiðlum
undi Kristján því ekki en hefur þó
enn ekki viljað tjá sig um það sem
fram hefur farið á bak við tjöld-
in. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur þó mikið gengið á
og mun Sveinn Rúnar meðal ann-
ars hafa reynt að beita lygum.
En hreyfing komst á málið
þegar Sveinn Rúnar hugðist gefa
út geisladisk með íslenskri út-
gáfu sigurlagsins og enskri út-
gáfu með texta Fenners og Kristj-
áns auk annars lags sem Skerja-
fjarðarskáldið samdi texta við.
Og Kristján krafðist þess að lög-
bann yrði sett á útgáfuna vegna
þess að ekki hafði fengist leyfi
fyrir einum texta sem átti að fara
á plötuna. Til að liðka fyrir út-
gáfunni neyddist Sveinn því til
að fallast á alla skilmála Kristj-
áns; að hann fengi hlut í höfund-
arverkinu auk þess sem Sveinn
greiðir honum laun fyrir þá vinnu
sem Kristján innti af hendi við
gerð enska textans sem ekki verð-
ur notaður. Og ku Kristján vera
alsæll með þessa niðurstöðu þótt
hann vildi ekki tjá sig um málið
við Fréttablaðið að svo stöddu.
Fullnaðarsigur Skerjafjarðarskáldsins
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is