Fréttablaðið - 26.04.2007, Page 4
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Endanlegt skipulag
svokallaðs Höfðatorgs verður
kynnt í dag. Höfðatorg afmarkast
af Borgartúni, Skúlatúni,
Skúlagötu og Höfðatúni. Að því er
segir í tilkynningu frá Höfðatorgi
ehf. verða eldri hús við Skúlagötu
og Höfðatún rifin til að rýma
fyrir nýbyggingum. Andstaða
hefur verið meðal íbúa í Túnunum
vegna verkefnisins, sem þegar
hefur staðið í nokkur ár með
ónæði og raski. Íbúarnir hafa
meðal annars áhyggjur af því að
væntanleg háhýsi varpi dimmum
skuggum yfir hverfið og telja
óljóst hvernig vindar leiki
byggðina. Eitt húsanna er þegar
risið. Fljótlega hefjast fram-
kvæmdir við nítján hæða
skrifstofuturn.
Útlit háhýsa
kynnt í dag
Börn í leikskólum
hérlendis hafa aldrei verið fleiri. Í
desember voru rúmlega 17.300
börn í leikskólum á Íslandi og
hafði fjölgað um rúmlega 350 frá
fyrra ári, um 2,1 prósent. Í frétt á
vef Hagstofunnar segir að þetta
sé töluvert meiri fjölgun en
undanfarin ár.
Viðvera barna í leikskólum
lengist stöðugt og fer hlutfall
þeirra barna sem eru skráð í
minnst átta tíma viðveru á dag
hækkandi. Árið 1998 voru rúm
fjörutíu prósent barna í leikskól-
um skráð í svo langa viðveru en
fjórum árum síðar var hlutfallið
komið í rúm sextíu prósent.
Fjölgar stöðugt
og eru lengur
Franski stjórnmála-
maðurinn François Bayrou, sem
varð í þriðja sæti í fyrri umferð
forsetakosninganna um síðustu
helgi, sagðist í gær hvorki ætla að
styðja hægrimanninn Nicolas
Sarkozy né sósíalistann Ségolène
Royal í seinni umferð kosning-
anna, sem haldin verður 6. maí.
„Ég ætla ekki að gefa neinar
leiðbeiningar um það, hvernig fólk
á að kjósa,“ sagði Bayrou í gær, og
bætti því við að hann vissi ekki
sjálfur hvernig hann ætti að verja
atkvæði sínu.
Í kosningabaráttunni höfðaði
hann til miðjunnar í frönskum
stjórnmálum og uppskar sjö millj-
ónir atkvæða. Þau Sarkozy og
Royal gera sér bæði vonir um að
hljóta þau atkvæði í seinni umferð-
inni. Í skoðanakönnunum nú í vik-
unni hefur Sarkozy mælst með
örlítið meira fylgi en Royal.
„Nicolas Sarkozy og Ségolène
Royal, í elífri baráttu milli hins
eilífa vinstris og hins eilífa hægris,
munu ekki bæta heldur gera illt
verra, hvort heldur litið er til efn-
hagsmála, félagsmála eða stjórn-
mála.“
Hann beindi spjótum sínum í
báðar áttir, sagði Sarkozy vilja
ganga allt of langt í efnahagsum-
bótum en að Royal væri of varkár.
Hann sagði Sarkozy vera allt of
stjórnsaman og hreinlega stofna
lýðræði Frakklands í voða, en
sagðist á hinn bóginn óttast að
Royal myndi sóa almannafé og
kæfa hagvaxtarmöguleika.
Hann sagði að þau hefðu bæði
hringt í sig á mánudaginn og sagð-
ist alveg til í ræða málin við þau
bæði. Skoðanakannanir sýna að
fylgið sem hann hlaut, alls sjö
milljónir atkvæða, skiptist nokkuð
jafnt á milli þeirra beggja.
Í gær tilkynnti Bayrou síðan
stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem
hann nefndi lýðræðisflokk og
stefnir á framboð í þingkosning-
unum í sumar. Hann hefur starfað
með UDF-flokknum, sem venju-
lega hefur greitt atkvæði með
íhaldsöflunum á þingi, en í kosn-
ingabaráttunni reyndi Bayrou að
fara bil beggja og höfða ekki síður
til vinstrimanna en hægrimanna.
Sumir flokksfélagar hans í UDF
fóru þó ekki að fordæmi Bayrous
heldur lýstu yfir stuðningi við Sar-
kozy. Í kosningunum á sunnudag-
inn hlaut Royal nærri 26 prósent
atkvæða en Sarkozy rúmlega 31
prósent.
Gefur kjósendum
engar leiðbeiningar
François Bayrou segir bæði Nicolas Sarkozy og Ségolène Royal vera slæma kosti
fyrir kjósendur í Frakklandi. Hann neitar að taka opinbera afstöðu.
Í fyrsta sinn beinist
athygli almennings og fjölmiðla á
Norður-Írlandi meira að hópum
herskárra mótmælenda heldur en
að herskáum kaþólikkum í Írska
lýðveldishernum (IRA).
Óháð sérfræðinganefnd sem
hefur eftirlit með starfsemi
ólöglegra vopnaðra hópa greindi
frá því í gær að tveir stærstu
hópar herskárra mótmælenda
neituðu enn að afvopnast og að
rækju umfangsmikla undirheima-
starfsemi. Tvö ár eru síðan IRA
afvopnaðist og hafnaði ofbeldi.
Nefndin sagði þó hættu geta
stafað frá nokkrum klofnings-
hópum úr IRA.
Neita að af-
henda vopn sín
Löggjafarþing
Mexíkóborgar samþykkti í gær að
gera fóstureyðingar á fyrstu tólf
vikum meðgöngu löglegar í
borginni. Í Mexíkó eru fóstureyð-
ingar aðeins löglegar ef um er að
ræða nauðgun, alvarlega fæðingar-
galla eða ef líf móður er í hættu.
Meirihluti Mexíkómanna
tilheyrir kaþólsku kirkjunni, sem
stóð fyrir miklum mótmælum í
aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.
Andstæðingar fóstureyðinga
hyggjast áfrýja ákvörðuninni til
hæstaréttar landsins.
Fóstureyðingar
gerðar löglegar
Boris Jeltsín, fyrr-
verandi Rússlandsforseti, var
jarðsettur í gær í Novodevitsí-
kirkjugarðinum þar sem eru
grafnir margra helstu listamanna
og stjórnmálaleiðtoga Rússlands.
Vladimír Pútín, arftaki Jeltsíns í
forsetaembættinu, sagði stuttu
eftir athöfnina að hann myndi
halda í heiðri þau markmið sem
Jeltsín hefði barist fyrir.
Athöfnin var hátíðleg og haldin í
samræmi við gamlar hefðir sem
lítið hefur verið hampað í Rúss-
landi nútímans. Tveir fyrrverandi
forsetar Bandaríkjanna, þeir Bill
Clinton og George H. W. Bush,
voru viðstaddir athöfnina ásamt
John Major, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, og fjölmörg-
um öðrum fyrrverandi ráðamönn-
um á Vesturlöndum.
Pútín sagði Jeltsín hafa „af fullri
einlægni reynt að gera allt til þess
að bæta líf milljóna Rússa“. Pútín
sagðist ætla að vinna áfram að
sömu markmiðum, en útskýrði þó
ekki nánar hvað hann ætti við.
Pútín hefur verið gagnrýndur
fyrir að ganga þvert gegn lýðræðis-
umbótum Jeltsíns með því að
þagga niður í stjórnarandstæðing-
um og krefjast skilyrðislausrar
hlýðni af stuðningsmönnum
sínum, sem eru í meirihluta á rúss-
neska þinginu.
Pútín segist fylgja stefnu hans