Fréttablaðið - 26.04.2007, Side 28
[Hlutabréf]
Sameiginlegt hlaup fyrir höfuðborgarsvæðið
er á Laugardalsvellinum í Reykjavík.
Í tilefni af 120 ára afmæli Landsbankans endurvekjum við
hið sögufræga Landsbankahlaup.
Hlaupið hefst á sama tíma um allt land, kl. 11.00.
Glitnir og Kaupþing spá því að Ex-
ista, sem birtir afkomutölur í dag,
hafi hagnast yfir fimmtíu millj-
arða króna á fyrsta ársfjórðungi
sem yrði langmesti hagnaður ís-
lensks félags á einum fjórðungi.
Meðaltalsspáin fyrir Existu hljóð-
ar upp á 53.347 milljónir króna en
til samanburðar hagnaðist félagið
um 8.378 milljónir króna á fyrsta
ársfjórðungi 2006.
Landsbankinn spáir ekki opin-
berlega um afkomuna en reikn-
ar með að hagnaður geti orðið allt
að sextíu milljarðar króna. Exista
færir kjarnafjárfestingar sínar í
Kaupþingi (23 prósenta hlutur) og
Sampo Group (15,6 prósent) með
hlutdeildaraðferð í stað þess að
taka gengishagnað og arðgreiðslur
af fjárfestingunum inn í rekstrar-
reikning. Greining Glitnis reiknar
með að hlutdeild Existu í hagnaði
Sampo nemi 42 milljörðum króna.
Slær Exista met?
Kaupþing birtir niðurstöðutölur
fyrsta ársfjórðungs fyrir opnun
markaða í dag. Meðaltalshagnað-
ur þeirra innlendu og erlendu mark-
aðsaðila, sem spá fyrir um afkomu
bankans, hljóðar upp á 18.878 millj-
ónir króna. Jafnframt áætla þeir að
hreinar vaxtatekjur verði yfir 15,2
milljarðar og hreinar rekstrartekjur
tæpar 42 milljarðar. Bæði Glitnir og
Landsbankinn reikna með að Kaup-
þing skili meiri hagnaði í hús eða
um 21,5-21,7 milljörðum króna.
Kaupþing hagnaðist um 18,8
milljarða króna á sama tíma í fyrra
sem þá var metafkoma á einum árs-
fjórðungi.
Peningaskápurinn...
Spennufall í efnahagslífinu mun reyna
á heimili og fyrirtæki sem mörg hver
eru viðkvæm sökum skulda. Í nýrri
umfjöllun um fjármálastöðugleika segir
Seðlabankinn brýnasta verkefnið að
endurheimta stöðugleika.
Fjármálakerfið er í meginatriðum traust og viðnáms-
þróttur bankanna hefur styrkst þrátt fyrir að á sama
tíma hafi þjóðhagslegt ójafnvægi aukist, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu Seðlabanka Íslands um fjármála-
stöðugleika.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnti skýrsluna
síðdegis í gær en þetta er í þriðja sinn sem bankinn
gerir opinbert rit um fjármálastöðugleika. Í fyrra var
yfirskriftin „Vandasöm sigling framundan“. Þá voru
helstu áhyggjuvaldar óvissa um fjármögnun bankanna
og ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. „Endurfjármögn-
unin tókst vel, en hins vegar jókst þjóðhagslegt ójafn-
vægi,“ segir Davíð.
Endurheimt stöðugleika í þjóðarbúskapnum er brýn-
asta verkefni hagstjórnarinnar að mati Seðlabankans.
„Lok stórframkvæmda á Austurlandi draga sjálfkrafa
úr ójafnvægi en önnur aðlögun hefur verið hægari
en reiknað var með,“ segir bankinn, en aukin vaxta-
byrði erlendra skulda dregur síðar úr viðskiptahall-
anum en búist var við. „Og naumast horfur á að hann
verði sjálfbær án undangengins verulegs samdráttar
á eftirspurn. Ný spá í Peningamálum gefur til kynna
að slíkur samdráttur sé framundan með hjöðnun fjár-
festingar og einkaneyslu,“ segir bankinn og bendir á
í riti sínu að möguleg lækkun eignaverðs gæti valdið
enn meiri samdrætti. Davíð segir bankann þó ekki spá
hrinu gjaldþrota hjá einstaklingum þótt viðnámsþrótt-
ur mjög skuldsettra einstaklinga og jafnvel fyrirtækja
væri verulegra skertur kæmi til langvarandi aftur-
kipps í efnahagslífinu. „Við þessar aðstæður teljum
við hins vegar skynsamlegt að hafa vara á vegna þess
að við sjáum að efnahagslífið gengur í gegnum aðlög-
un. Menn hafa deilt um hversu brött sú aðlögun verður,
en ég held að í öllum spilum sé sú aðlögun fyrir hendi.
Við þær aðstæður þarf að horfa til þeirra sem lak-
ast standa,“ segir Davíð en áréttar um leið að margir
þættir efnahagslífsins standi hér vel og betur en ann-
ars staðar gerist.
Penninn og Te og kaffi hafa gengið
frá kaupum á kaffiframleiðslufyr-
irtækinu Melna Kafija Ltd. í Lett-
landi. Penninn verður eigandi að
sjötíu prósentum og Te og kaffi að
þrjátíu. Kaupverð er ekki gefið upp
Helstu umsvif fyrirtækisins fel-
ast í sölu til hótela og veitingahúsa.
Fyrirtækið framleiðir einnig kaffi
til smásölu og útflutnings, meðal
annars til Rússlands.
Penninn á þrjátíu prósenta hlut í
Tei og kaffi. „Ástæðan fyrir því að
við fjárfestum í fyrirtækinu upp-
haflega er að við teljum að það séu
samhæfingarmöguleikar í þjón-
ustu við skrifstofuna annars vegar
og kaffistofuna hins vegar,“ segir
Kristinn Vilbergsson, forstjóri
Pennans. „Sama hugmyndafræði
er á bak við þessa fjárfestingu.
Við horfum til Eystrasaltsland-
anna þriggja. Við sjáum möguleika
í samþættingu milli fyrirtækjanna
sem við eigum þar fyrir og Melna
Kafija.“
Kaupa kaffiframleiðanda