Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 59

Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 59
Áhersla á atvinnu, öflugt og stöðugt hagkerfi og velferð allra þjóðfélagsþegna er samof- in hugmyndafræði Framsóknar- flokksins. Til þess að líf einstakl- inga, fjölskyldna og samfélagsins í heild sé í jafnvægi verða þessi þrjú grunnstef ávallt að vera til stað- ar. Stöðugleiki og næg atvinna er undirstaða öflugs hagkerfis sem er nauðsynlegt til að standa undir þeirri samneyslu og þeirri almennu velferð sem við viljum að allir búi við. Það er ekki sjálfgefið að alltaf sé næg atvinna en fátt er verra fyrir fólkið í land- inu og afkomu- möguleika fjöl- skyldna en at- vinnuleysi. Sem betur fer hefur okkur á undan- förnum árum tekist að halda atvinnuleysi í al- gjöru lágmarki eða að meðal- tali um 3%. Framsóknarflokkur- inn leggur áherslu á fjölbreytta og trygga atvinnu um land allt og í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur störfum fjölgað jafnt og þétt og nú eru um 170.000 störf á íslenskum vinnumarkaði. Öflugt atvinnulíf sem skilar tekjum í þjóðarbúið er lykillinn að því samfélagi sem við höfum byggt upp á síðustu árum og viljum viðhalda. Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að skapa atvinnulífinu það umhverfi að það nái að blómstra og vill áfram standa fyrir atvinnu fyrir alla, óháð búsetu og menntun. Það er markmið okkar Framsóknar- manna að stækka þjóðarkökuna því þannig fáum við meira til skiptanna. Við höfum séð það á undanförn- um árum að breytingar í rekstrar- umhverfi fyrirtækja s.s. lækkaðar álögur hafa styrkt stoðirnar, hleypt lífi og krafti í atvinnulífið og skilað auknum skatttekjum í ríkiskassann, öfugt við það sem ýmsir vinstri- menn spáðu. Landsmenn hafa fund- ið fyrir hagsæld enda hefur hag- vöxtur hér á síðustu árum mælst allt að 8%. Það hafa orðið ýmsar breyt- ingar á skattakerfinu sem bæði ein- staklingar og fyrirtæki hafa notið góðs af og kaupmáttur og ráðstöf- unartekjur heimila hafa aukist um- fram verðbólgu. Það þarf ekki að fjölyrða um það að Framsóknar- flokkurinn hefur tekið þátt í því að auka um tugi prósenta framlög til heilbrigðis-, mennta- og félags- mála enda er hér um að ræða mála- flokka sem mynda sameiginlegan grunn samfélagsins sem Framsókn- arflokkurinn vill standa vörð um. Almenn velferð og styrkar grunn- stoðir byggja á atvinnu fyrir alla og stöðugleika í efnahagslegu um- hverfi. Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur miðjuflokkur sem byggir á samvinnuhugsjón. Fram- sóknarflokkurinn er eini flokkur landsins sem getur allt frá stofn- un skilgreint sig sem miðjuflokk þó svo að aðrir flokkar vilji nú skreyta sig með þeirri nafnbót. Framsóknar- menn hafa sýnt það og sannað, bæði í ríkisstjórnum og sveitarstjórnum að þeir geta fengið fólk úr ólíkum áttum til þess að vinna saman, vinna að settum markmiðum og náð ár- angri. Engum er betur treystandi en Framsóknarflokkum til þess að halda áfram að koma með beinum hætti að stjórn landsins, móta þá framtíðar- sýn sem við viljum stefna að. Höfundur er kennari og skipar 6. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Vinna, vöxtur og velferð Fram undan er formannskjör í Sjúkraliðafélagi Íslands og heyrir það til tíðinda að þrír sjúkraliðar hafa gefið kost á sér í formannssæt- ið en framboðs- frestur rennur út 26. apríl og því gætu fleiri bæst í hópinn. Áskorun hefur komið frá sjúkralið- um til greinar- höfundar um að gefa kost á sér til for- mannskjörs SLFÍ og hefur hann orðið við þeirri áskorun. Mörg- um sjúkraliðum finnst tímabært að skipta um formann. Hér er um verðugt verkefni að ræða og ekki hægt að skorast undan áskorun- inni. Styrkur án vilja er eins og stýris- laust skip og veit greinarhöfund- ur að einstaklingur gefur ekki kost á sér til formannsstarfsins án þess að hafa eitthvað til brunns að bera. Sjúkraliðar ættu ekki að kvíða því, að félagið þeirra liggi niðri um skemmri eða lengri tíma vegna breytinga á forystu þess, en slíkt hefur verið látið í veðri vaka. Það mun verða hlut- verk sjúkraliða að taka ákvörðun um hverjum þeir fela það starf næstu þrjú árin að stýra félag- inu sínu. Þau verkefni sem unnin eru á borðum stéttarfélags eru mörg og margvísleg. Það þarf að gæta hagsmunar stéttarinnar út á við og ekki síður í innviðum henn- ar. Samstilltur hópur sjúkra- liða sem starfar að málefnum fé- lagsins þarf í engu að kvíða þótt stýrimanni sé skipt út, skip verð- ur sjófært jafnt sem áður, siglir kannski aðra leið á miðin en á miðin fer það og heldur áfram að afla. Höfundur er sjúkraliði og fram- bjóðandi í formannskjöri SLFÍ. Sjúkraliðar einn, tveir og þrír FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN OPNAR KOSNINGASKRIFSTOFU Í KÓPAVOGI Hamraborg 14, Kópavogi í dag kl. 17.30 Hamraborg 14 | Kópavogur | sími 554 7744 Kjóstu F ! forysta fyrir íslenska þjóð www.xf.is RILLA !RINMOKLEV Við opnum kosningaskrifstofu í Hamraborg 14, Kópavogi í dag kl. 17.30. Guðjón Arnar Kristjánsson, Formaður Frjálslynda flokksins og Kolbrún Stefánsdóttir oddviti listans í Kraganum munu ávarpa gesti. Tónlist og léttar veitingar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.