Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 68

Fréttablaðið - 26.04.2007, Síða 68
KL. 15.00 Myndlistarsýningar í Lindaskóla. Á sýningunni eru málverk eftir nemendur í olíumálun sem valfagi undir stjórn Kristínar Andersen mynd- menntakennara. Sýningin verður í Lindaskóla, Núpalind 5, Kópavogi. Boðið verður upp á léttar veitingar á opnuninni. Myndlistarmaðurinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu í 101 gallery við Hverfisgötu í dag. Yfirskrift sýn- ingarinnar er „La Grande Coll- ine“ sem vísar til Breiðholtsins, æskustöðva listamannsins, en úthverfin eru henni einkar hug- leikin þessa stundina. Lóa Hlín útskrifaðist af myndlistarbraut Listaháskóla Íslands árið 2003. Hún starfar aukinheldur við myndskreytingar, myndasögu- gerð og tónlist. „Umhverfi sýningarinnar gæti samt verið hvaða úthverfi sem er því umhverfið virkar meira eins og tilfinningalegt landslag. Sýn- ingin fjallar á vissan hátt um fólk sem ekki passar inn í umhverfi sitt – til dæmis að vera of dram- atískur lítill greifi fyrir blokkar- hverfið sem þú býrð í,“ útskýr- ir Lóa. Á sýningunni eru blý- antsteikningar, portrett-myndir af úthverfabarónessum og öðru hefðarfólki en Lóa líkir sýning- unni við uppblásna teiknimynda- sögu. „Þetta eru myndir af fólki sem tekur sig aðeins of hátíð- lega, er of mikil fórnarlömb. Svo- leiðis fólk býr ekkert frekar í út- hverfunum. Það myndar bara skemmtilegar andstæður að hafa þau í þannig umhverfi.“ Lóa áréttar að tilvistarangist, hvort heldur í úthverfum eða annars staðar, sé þó ekki mæl- anleg. „Gallup hefur ekkert gert könnun á því hvernig fólki í út- hverfum líður. Þessi sýning er meira um stemninguna og svona grátbrosleg hlutskipti.“ Á sýningunni eru einnig skúlpt- úrar eftir Lóu sem vakið hafa töluverða athygli. „Ég kalla þá „Taugahrúgur“, þetta eru litlir tenntir skúlptúrar, svona um- komulausir svanir og ýmsar fíg- úrur en þær hafa allar sinn veik- leika, til dæmis myrkfælni eða lofthræðslu.“ Hún segir að teikn- ingarnar og skúlptúrarnir eigi það sameiginlegt að vera í senn fallegir og aumkunarverðir. Lóa hefur fengið mjög sterk viðbrögð við „Taugahrúgunum“ sínum og virðist fólk almennt eiga mjög auðvelt með að tengja við fígúr- urnar því flestir búa jú yfir ein- hvers konar veilu. Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag en henni lýkur 31. maí. Grátbrosleg hlutskipti Hátíðin List án landamæra hefst með veglegri opnunar- hátíð í Ráðhúsinu í Reykja- vík í dag. Þetta er í fjórða sinn sem efnt er til þessarar hátíðar og hefur vegur hennar aukist með ári hverju. Markmið Listar án landamæra er sem fyrr að brjóta niður þá múra sem aðgreina fatlaða og ófatlaða. Á hátíðinni hafa ólíkir einstakl- ingar unnið saman að ýmiss konar listtengdum verkefnum með frá- bærum árangri og segir Margrét M. Norðdahl, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, slík samstarfsverk- efni einnig á dagskránni nú. Alls verða um tuttugu og fimm viðburðir á vegum hátíðarinn- ar næstu tvær vikurnar, flestir þeirra verða á höfuðborgarsvæð- inu en einnig á Akureyri, Selfossi og Egilsstöðum. Margrét segir að þátttakendum og viðburðum hafi fjölgað mjög milli ára og það hafi jafnframt sýnt sig að hér á landi sé mikið af frambærilegu lista- fólki sem eigi fullt erindi út í hið „almenna“ menningarumhverfi. Hátíðin verður sett kl. 17 í dag en þá verður jafnframt opnuð samsýning í austursal Ráðhússins þar sem gefur að líta fjölbreytta myndlist. Ágúst Guðmundsson, forseti Bandalags íslenskra lista- manna, setur hátíðina en á dag- skránni verður einnig tónlistar- flutningur, ljóðalestur og mynda- sýning frá hátíðinni í fyrra. Opnunarhátíðin verður einnig túlkuð á táknmáli. Viðburðir á hátíðinni eru af öllum toga, kvikmyndasýning- ar verða í Háskólabíói þar sem stuttmyndir gerðar af nemendum í sérdeildum framhaldsskólanna verða sýndar, leikhópar troða upp í Borgarleikhúsinu á mánudaginn og föstudaginn 4. maí verða ár- legir stórtónleikar Fjölmenntar í Salnum í Kópavogi. Síðar verður einnig opnuð sam- sýning í Norræna húsinu þar sem pör atvinnufólks og áhugamanna í myndlist sýna samstarfsverk- efni sín. Meðal þátttakenda þar eru Guðrún Bergsdóttir og Gjörn- ingaklúbburinn, Tolli og Gígja Thoroddsen og Halldór Dungal og Hulda Hákon. Líkt og fyrri ár verður líka boðið upp á „geðveikt“ kaffihús í Hinu húsinu þar sem félagar úr Hugarafli bjóða upp á geðgrein- ingar, ljóðalestur og tónlistaratr- iði með kaffinu í léttmanísku um- hverfi og ljóðakvöld á Hressó. Næstkomandi laugardag verður efnt til nýrrar uppákomu á vegum Listar án landamæra en þá verð- ur efnt til gjörningsins „Tökum höndum saman“ við Reykjavík- urtjörn. Skipuleggjandi hans og höfundur er Kolbrún Dögg Kjart- ansdóttir en markmið hans er að efla samstöðu og auka skilning milli alls konar fólks. Gjörning- urinn er öllum opinn en í honum felst að þátttakendur taka hönd- um saman og mynda hring kring- um Tjörnina, óháð stétt og stöðu, útliti eða bakgrunni. Til þess að mynda heilan hring kringum Tjörnina þarf um 800-1000 þátt- takendur og hvetja skipuleggj- endur hátíðarinnar því borgar- búa og gesti til þess að fjölmenna og taka þátt kl. 13 á laugardaginn. Spáin er víst alveg ágæt líka. Samstarfsaðilar í stjórn hátíð- arinnar eru Fjölmennt − fullorð- insfræðsla fatlaðra, Átak − félag fólks með þroskahömlun, Hitt húsið, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands. Dagskrá hátíðarinnar og nánari upplýsingar má nálgast á slóðinni, www.listanlandamaera.blog.is FÖSTUD. 27. APRÍL 2007 LAUGARD. 28. APRÍL 2007 FLAUTAR TIL LEIKS FRAM KOMA M.A. BAGGALÚTUR SPRENGJUHÖLLIN SKE MY SUMMER AS A SALVATION SOLDIER SÁLIN ROKKAÐ GEGN BIÐLISTUM FRITT INN HÚSIÐ OPNAR KL. 21.00 18 ÁRA ALDURSTAKMARK Í BOÐI UNGS SAMFYLKINGARFÓLKS HÚSIÐ OPNAR KL. 24.00 ALDURSTAKMARK 20 ÁRA MIÐAVERÐ 1900 KR. FORSALA MIÐAÁ NASA FÖSTUD. MILLI KL. 13OG 17 , Kvennakór Hafnarfjarðar og Tangósveit lýðveldisins Tónleikar: Fimmtudaginn 26. apríl kl 20:30 í sal SÁÁ í Efstaleiti 7. Laugardaginn 28. apríl kl. 16:00 í sal Flensborgarskóla, Hamri. Stjórnandi: Hrafnhildur Blomsterberg Einsöngur: Jóhann Friðgeir Valdimarsson Forsala aðgöngumiða hjá kórfélögum og í Súfistanum, Máli og Menningu og Strandgötu 9, Hafnarfirði Miðaverð: 1500 kr.- www.kvennakorinn.org i l l i i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.