Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 4
Dómsmálaráðuneytið
auglýsti ólöglega eftir umsókn-
um um embætti aðstoðarríkis-
lögreglustjóra. Auglýst var eftir
„starfsmanni með embættispróf
í lögfræði, reynslu af störfum
innan réttar- og refsivörslukerf-
isins og þekkingu á starfsmanna-
málum lögreglunnar“.
Í lögreglulögum kemur fram
að allir þeir sem hafi „lokið námi
frá Lögregluskóla ríkisins svo og
stjórnunarnámi eða öðru sam-
bærilegu námi“ geti gegnt stöðu
aðstoðarríkislögreglustjóra.
Sigurður Líndal, fyrrverandi
lagaprófessor, segir auglýsing-
una ekki hafa uppfyllt skilyrði
samkvæmt lögum. „Í auglýsing-
unni hefði átt að taka fram öll
skilyrðin sem fram koma í lögun-
um. Hafi það ekki verið gert,
eins og útlit er fyrir, er auglýs-
ingin ekki í samræmi við lög.“
Auglýsingin birtist aðeins í
vefútgáfu Lögbirtingablaðsins.
Blaðið kom út á pappírsformi
sama dag og umsóknarfrestur-
inn rann út. Páll Winkel, nýskip-
aður yfirmaður stjórnsýslusviðs
hjá ríkislögreglustjóra, var sá
eini sem sótti um starfið. Páll er
sonur Guðnýjar Jónsdóttur, rit-
ara Björns Bjarnasonar í dóms-
málaráðuneytinu. Björn þvertók
fyrir að Páll fengi fyrirgreiðslu
af einhverju tagi vegna þeirra
tengsla.
Björn segir það blasa við að
umsækjandinn þurfi að hafa lög-
fræðimenntun til þess að geta
gegnt fyrrnefndu starfi. „Væru
verkefnin þess eðlis að þau féllu
að manni með lögreglumenntun
eða reynslu hefði verið óskað eftir
manni með þá menntun.“
Auglýst starf er annað tveggja
embætta aðstoðarríkislögreglu-
stjóra en Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir gegnir hinu. Björn
svaraði ekki skýrt spurningum
sem beint var til hans, um hvort
auglýsingin samræmdist lögfest-
um skilyrðum í lögum.
Steinar Adolfsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
lögreglumanna, segir það vera
skýrt í lögunum að lögreglumenn
eigi þess kost að sækjast eftir og
gegna embætti aðstoðarríkislög-
reglustjóra. „Samkvæmt lögun-
um, og nýlegum breytingum sem
hafa komið til framkvæmda, er
það alveg skýrt að lögreglumenn
geta gegnt stöðu aðstoðarríkislög-
reglustjóra, líkt og stöðu aðstoðar-
lögreglustjóra. Að því leytinu til
snertir þetta lögreglustéttina í
heild.“
Landssambandið ætlar að skoða
málið enn frekar.
Auglýsingin fór gegn
skilyrðum laganna
Auglýsing dómsmálaráðuneytisins eftir umsóknum um stöðu aðstoðarríkis-
lögreglustjóra var ekki í samræmi við lög, segir Sigurður Líndal. Blasir við að
umsækjandi þurfi lögfræðimenntun, segir Björn Bjarnason.
„Í auglýsingunni hefði
átt að taka fram öll skil-
yrðin sem fram koma í lögunum.
Hafi það ekki verið gert, eins og
útlit er fyrir, þá er auglýsingin
ekki í samræmi við lög.“
Hagnaður Actavis á
fyrsta ársfjórðungi nam 27
milljónum evra,
sem jafngildir
um 2,3 milljörð-
um íslenskra
króna. Félagið
birti fjórðungs-
uppgjör sitt
eftir lokun
markaða í gær.
Hagnaðurinn
er heldur undir
væntingum
greiningar-
deilda bank-
anna, en
meðalspá þeirra
hljóðaði upp á
28,9 milljónir evra.
Tekjur Actavis á fyrsta
ársfjórðungi jukust um 11,9
prósent milli ára og námu 382,7
milljónum evra, yfir 33 milljörð-
um króna, og eru það mestu
tekjur á fjórðungi í sögu félagins.
Félagið segir undirliggjandi
vöxtu (án fyrirtækjakaupa og
gengisáhrifa) vera 8,3 prósent
milli ára og skýrast af góðum
árangri í Bretlandi, Þýskalandi og
Rússlandi.
Besti fjórðung-
ur frá upphafi
Karlmaður á þrítugsaldri
liggur þungt haldinn á gjörgæslu-
deild eftir umferðarslys í Njarð-
vík á sunnudagskvöld. Maðurinn
gekkst undir aðgerð aðfaranótt
mánudags. Að sögn læknis á
gjörgæsludeild er hann í öndunar-
vél og ástand hans mjög alvarlegt.
Bíl var ekið í veg fyrir vélhjól
sem maðurinn ók og nauðhemlaði
hann þá til að afstýra árekstri.
Við það missti hann stjórn á
hjólinu og féll harkalega í götuna.
Hann missti strax meðvitund við
höggið og var fluttur á Landspít-
alann í Fossvogi. Ekki liggur fyrir
hvort um hraðakstur var að ræða.
Í öndunarvél
eftir bifhjólaslys
Saksóknarar
rússneska hersins hafa hafið
rannsókn á dauða ungs hermanns,
sem grunur leikur á um að hafi
verið misþyrmt af félögum sínum
í hernum. Frá þessu greindu
talsmenn hersins í Sankti
Pétursborg í gær.
Verið er að rannsaka ásakanir
um að hermaðurinn, Sergei
Zavayalov liðþjálfi, sem dó á
sjúkrahúsi um helgina, hafi sætt
lífshættulegum barsmíðum.
Ofbeldi gegn nýliðum hefur
verið landlægt í rússneska
hernum, en það hefur gert
herþjónustu mjög óvinsæla.
Meintar mis-
þyrmingar
Slökkvilið af tveimur
stöðum á höfuðborgarsvæðinu
var kallað að Alþingishúsinu á
tíunda tímanum í gærmorgun
vegna gruns um að eldur væri
kominn upp í húsinu. Vaktmaður í
húsinu tilkynnti slökkviliði að
hann hefði fundið lykt af reyk og
eldvarnarkerfi hefði farið í gang.
Þegar slökkvilið kom á
vettvang kom í ljós að enginn
eldur var laus í húsinu. Iðnaðar-
menn sem unnu að viðgerðum á
þaki hússins höfðu verið að
bræða saman pappa sem notaður
er í þakið. Reykurinn hafði borist
inn um glugga og komið kerfinu
af stað.
Þakviðgerðir
ræstu eldvarnir
Kjósendur á kjörskrá vegna alþingiskosn-
inganna á laugardag eru 221.368 og hefur þeim
fjölgað um rúmlega tíu þúsund frá kosningunum
fyrir fjórum árum.
570 fleiri konur eru á kjörskrá en karlar.
Flestir kjósendur eru í Suðvesturkjördæmi,
rúmlega 54 þúsund, en fæstir í Norðvesturkjör-
dæmi, rúmlega 21 þúsund.
Flestir kjósendur eru að baki hverju þingsæti í
Suðvesturkjördæmi, rúmlega 4.500, en fæstir í
Norðvesturkjördæmi, rúmlega 2.300.
Í síðustu kosningum greiddu 185.392 atkvæði; tæp
88 prósent þeirra sem voru á kjörskrá.
Kjósendur með lögheimili erlendis eru tæplega
8.800, fjögur prósent kjósendatölunnar. Rúmlega
sautján þúsund fá, vegna aldurs, að kjósa nú í fyrsta
sinn til Alþingis.
Karl og kona, bæði á
þrítugsaldri, hafa verið ákærð
fyrir að hafa rúmlega hálft kíló af
hassi í bíl sínum.
Málið er höfðað fyrir Héraðs-
dómi Norðurlands eystra.
Lögreglan stöðvaði bifreið
skötuhjúanna á föstudagskvöldi í
febrúar við býlið Krossastaði í
Hörgárbyggð. Við leit í bifreið-
inni fundust tæp 670 grömm af
hassi sem fólkið hafði flutt með
sér frá Reykjavík.
Með hálft kíló
af hassi í bíl