Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 8
Meðal dagskráratriða í dag, 9. maí:
Bókasafn Kópavogs kl. 10–20. Sýning á óskráðum ljósmyndum
af börnum og ungmennum í Kópavogi í eigu Héraðsskjalasafnsins.
Gerðarsafn kl. 11–17. Sýning á myndum eftir Barböru og
Magnús Á Árnason og glergluggum Gerðar Helgadóttur.
Leikskólinn Álfaheiði kl. 13. Lífsmennt – kynning á námsefninu.
Salurinn kl. 18. Voruppskera Tónlistarskóla Kópavogs.
Myndlistarsýningar • leiksýningar • kvikmyndasýning.
Kynnið ykkur dagskrána nánar á kopavogur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
NÝJUNG
Í BANKA
VIÐSKIPTUM
Ian Paisley,
leiðtogi sambandssinna sem varði
áratugum af ævi sinni í baráttu
gegn samvinnu við kaþólska minni-
hlutann á Norður-Írlandi, var í gær
kjörinn til að fara fyrir nýrri
heimastjórn og deila þar völdum
með fyrrverandi fjendum sínum í
Sinn Fein, flokki lýðveldissinna.
Paisley, sem er leiðtogi Lýðræð-
isflokks sambandssinna, DUP, og
Martin McGuinness, sem lengi var
einn helsti forsprakki Írska lýð-
veldishersins, voru kjörnir mótat-
kvæðalaust til að fara fyrir tólf
manna samstjórn hinna fyrrum
fénda. Markar það mikil tímamót í
sögu Norður-Írlands, eftir áratuga-
langt borgarastríð og pólitíska
pattstöðu. Um 3.700 manns liggja í
valnum eftir borgarastríðið.
Paisley, sem er 81 árs að aldri,
sór eið þar sem hann meðal ann-
ars hét því að eiga samstarf við
kaþólska og ríkisstjórn Írlands,
en hvoru tveggja hefði hinn rót-
tæki mótmælendaprestur lengi
lýst sem uppgjöf og svikum.
Þá sór McGuinness, næstæðsti
maður Sinn Fein, eið sem næst-
ráðandi í heimastjórninni. McGu-
inness þurfti í eiðstaf sínum einn-
ig að heita stuðningi við
norður-írsku lögregluna og dóms-
kerfi Bretlands, en hvort tveggja
kom í áratugi ekki til greina fyrir
Sinn Fein.
Í kjölfarið sóru hinir ráðherr-
arnir tíu sína eiða, en ráðherra-
stólum er ráðstafað í samræmi
við þingstyrk flokkanna. DPU-
flokkur Paisleys fékk fimm, Sinn
Fein fjóra, flokkur hófsamra sam-
bandssinna í UUP tvo og hófsamir
kaþólskir í Jafnaðar- og verka-
mannaflokknum einn.
Þá héldu þeir hver á eftir öðrum
ræður á tröppum Stormont-kast-
ala, aðseturs norður-írska þings-
ins, Paisley, McGuinness og for-
sætisráðherrar Bretlands og
Írlands, Tony Blair og Bertie
Ahern.
Blair, sem fastlega er búist við
að muni síðar í vikunni tilkynna
um afsögn sína úr embætti, sagði
að Írland hefði mátt þola „aldir
markaðar af átökum, harðræði og
hatri“. Hann sagði að samstjórnin
í Belfast byði upp á tækifæri til að
„losna loksins úr þessum fjötrum
sögunnar“.
Samstjórn tekin við
á Norður-Írlandi
Hinn 81 árs gamli mótmælendaprestur Ian Paisley tók í gær við forystu í nýrri
heimastjórn Norður-Írlands, þar sem hann og samherjar deila völdum með fyrr-
um fjendum sínum í Sinn Fein, sem var pólitískur armur Írska lýðveldishersins.
Von er á fimm leið-
söguhundum fyrir blinda til lands-
ins á fyrri hluta næsta árs. Hund-
arnir eru keyptir í Noregi þar sem
þeir, og væntanlegir notendur,
hljóta þjálfun.
Kaup og þjálfun kosta 25 milljón-
ir króna og leggur heilbrigðisráðu-
neytið sautján milljónir til verkefn-
isins en Blindrafélagið átta.
Samningur þess efnis var undirrit-
aður í gær.
Friðgeir Jóhannesson hefur í átta
ár notið hjálpar leiðsöguhundsins
Erró og segir hana ómetanlega.
Erró á skammt eftir ólifað þar sem
hann er haldinn gigt í öxlum og fær
Friðgeir því einn nýju norsku hund-
anna, enda getur hann ekki hugsað
sér að vera án hunds.
Við undirritun samningsins í gær
rifjaði Siv Friðleifsdóttir heilbrigð-
isráðherra, sem sjálf á hundana
Kórak og Tinnu, upp fræga mynd
sem tekin var af Erró fyrir nokkr-
um árum. Var hann með hausinn
undir pilsi Ingibjargar Pálmadótt-
ur, þáverandi heilbrigðisráðherra.
Siv klæddist buxum í gær.
Erró er með gigt í öxlum
Það kemur sér illa fyrir
neytendur að N1 birti ekki upplýs-
ingar um eldsneytisverð á vef
sínum, að mati Þuríðar Hjartar-
dóttur, framkvæmdastjóra Neyt-
endasamtakana.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær hefur stjórn N1, sem varð til
við sameiningu Bílanausts, Olíufé-
lagsins og fleiri fyrirtækja, ákveðið
að birta ekki eldsneytisverð á vef
sínum. Öll önnur fyrirtæki sem selja
eldsneyti birta sínar verðskrár á
netinu, og raunar gerði Olíufélagið
það líka fram að sameiningunni.
„Þetta er lélegri þjónusta, það
er einfalt mál. Þetta takmarkar
þær leiðir sem neytendur geta
notað til að afla sér upplýsinga,“
segir Þuríður.
„Það ætti að vera mjög einfalt
fyrir fyrirtæki eins og N1 að birta
nýja gjaldskrá á heimasíðunni. Ég
skil ekki af hverju þeir gera það
ekki, nema þeir vilji að neytendur
þurfi að hafa fyrir því að bera
saman verðið,“ segir Þuríður.
Hún segir netið sífellt verða vin-
sælli leið til að afla upplýsinga, og
margir beri saman verð áður en
þeir kaupi eldsneyti. Ef N1 kjósi
að birta ekki verðið á vef sínum
geti fyrirtækið verið að missa af
viðskiptum við þann hóp.