Fréttablaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 10
Bobby Fischer er ósáttur við handrit og
uppbyggingu heimildarmyndar um hann sjálfan og
Sæmund Pálsson, Sæma rokk. Friðrik Guðmundsson
kvikmyndagerðarmaður hefur óskað eftir fundi til að
fá skýringar á yfirlýsingu stuðningshóps Fischers.
Stuðningshópurinn sendi í gær frá sér yfirlýsingu
þar sem vakin er athygli á ósætti Fischers við þá
sem standa að heimildarmyndinni. Þar segir að
handrit og uppbygging myndarinnar séu í ósam-
ræmi við það sem rætt hafi verið um í upphafi, og
brögð séu í tafli. Því væri það í óþökk Fischers ef
innlendir eða erlendir aðilar styddu fjárhagslega við
gerð myndarinnar eða tækju hana til sýninga.
Fram kemur í yfirlýsingu hópsins að Fischer hafi
aldrei undirritað samning eða leyfi fyrir umræddri
heimildarmynd og því sé öll notkun á efni sem tekið
hafi verið upp og snerti hans persónu óheimil án
hans samþykkis.
„Ég hef ekki verið með nein brögð í tafli heldur
hef unnið þetta á einlægum og heiðarlegum nótum,“
segir Friðrik Guðmundsson, sem unnið hefur að
heimildarmyndinni frá árinu 2005.
Hann segir að handritið að myndinni sé aðeins til í
höfðinu á sér, og því hafi Fischer ekki séð handritið
sem hann segist þó ósáttur við. Friðrik óskaði í gær
eftir fundi með formanni stjórnar stuðningshópsins
til að fá skýringar á því sem fram kemur í tilkynn-
ingu hópsins.
Notkun á efni sögð óheimil
Fertugur norskur
ríkisborgari, sem upprunalega er
frá Bosníu-Herzegovínu, var í
gær handtekinn grunaður um
stríðsglæpi í heimalandi sínu á
árinu 1992. Norska lögreglan
greindi frá þessu.
Þetta er önnur handtakan á
meintum stríðsglæpamanni í
Noregi á hálfum mánuði.
Sá sem handtekinn var í gær
kom til Noregs ásamt fjölskyldu
sinni árið 1993 og hlaut ríkisborg-
ararétt árið 2001. Hann er
grunaður um að hafa átt aðild að
stríðsglæpum gegn Bosníu-
Serbum á tímabilinu maí til
september 1992.
Önnur hand-
taka í Noregi
Ráðherrar í ríkis-
stjórn Eistlands lögðu í gær, í
tilefni af 62 ára afmæli stríðsloka
í Evrópu, blómsveiga við „brons-
hermanninn“ svonefnda,
umdeilda styttu af sovéskum
hermanni sem flutt var frá torgi í
miðborg Tallinn inn í hermanna-
grafreit í borginni.
Stjórnin batt vonir við að
athöfnin gæti markað upphafið að
sáttum milli Eista og rússnesku-
mælandi minnihlutans í landinu,
tíu dögum eftir að til óeirða kom
vegna flutnings styttunnar.
Rússar álíta flutninginn
móðgun við minningu hermann-
anna sem sigruðu heri Hitlers, en
Eistar álíta styttuna frekar tákn
um hálfrar aldar sovéskt hernám
og ok Moskvuvaldsins.
Blóm við brons-
hermanninn
Marel Food Systems
hagnaðist um eina milljón evra,
tæpar 87 milljónir króna, á fyrsta
ársfjórðungi. Félagið hefur tekið
stakkaskiptum á undanförnu ári í
kjölfar kaupa á AEW Delford og
Scanvægt og gengur samlögun
félaganna eftir áætlun.
Þannig jókst velta Marels um
123 prósent á milli ára og var 72,2
milljónir evra, um 6,3 milljarðar
króna. Rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliði (EBIT) var um 3,2
milljónir evra (278 milljónir), eða
um 4,5 prósent af sölu. Töluverð-
ur kostnaður féll vegna fjárfest-
inga Marels í fyrrgreindum
félögum en stjórnendur reikna
með að einsskiptiskostnaður
verði lægri en áður var talið.
Fyrirfram höfðu greiningar-
deildir reiknað með tapi félagsins
á fjórðungnum, upp á eina milljón
evra að meðaltali.
Velta félagsins
tvöfaldaðist
Sigríður Margrét
Oddsdóttir, framkvæmdastjóri
Já, afhenti Magnúsi Jóhannes-
syni, formanni Skógræktarfé-
lags Íslands, fyrsta eintakið af
Símaskránni 2007 í gær. Síma-
skráin er í fyrsta sinn með nor-
ræna umhverfismerkinu Svan-
inum. „Við erum mjög ánægð
með nýju símaskrána og stolt af
því að fá þennan gæðastimpil.
Svanurinn er þekktasta umhverf-
ismerkið á Norðurlöndunum og
þýðir að við uppfyllum strangar
kröfur um gæði og takmörkuð
áhrif á umhverfið með útgáf-
unni,“ segir Sigríður Margrét og
bætir við að í ár hafi verið prent-
uð 230 þúsund eintök, eins og í
fyrra. Samkvæmt könnun sem
Já lét gera hjá Capacent Gallup
um notkun á Símaskránni nota
um níutíu prósent Íslendinga
skrána. „Við sjáum þá þróun
hérna heima og á hinum Norður-
löndunum að þrátt fyrir betri
þjónustu hjá upplýsingasíman-
um 118 og á heimasíðu okkar
reiðir mjög stór hópur sig ennþá
á Símaskrána,“ segir Sigríður
Margrét og bætir við að fyrir
um tíu árum hafi menn spáð því
að útgáfa símaskrár myndi líða
undir lok vegna tilkomu netsins
en reyndin sé önnur.
Margir reiða sig á símaskrána
Geti forseti ekki gegnt
störfum vegna sjúkleika fer
forsætisráðherra og forsetar
Alþingis og Hæstaréttar með
forsetavald. Rísi ágreiningur
milli þeirra ræður meirihluti.
Vegna læknisrannsókna sem
Ólafur Ragnar Grímsson undir-
gekkst í gær og fyrradag hafa
vaknað spurningar um hver veiti
umboð til stjórnarmyndunar að
loknum kosningum – sé forseti
ekki fær um það.
Ekki er fjallað um stjórnar-
myndun í stjórnarskránni en
ríkisstjórn Íslands er mynduð í
krafti þingræðisreglunnar og
verður því að njóta stuðnings eða
hlutleysis meirihluta þingsins.
Forseti getur – og hefur – falið
formönnum flokka að gera tilraun
til stjórnarmyndunar, jafnan eftir
samtöl við aðra formenn.
Handhafar fara
með forsetavald
| Hefst 12.maí