Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 48

Fréttablaðið - 09.05.2007, Page 48
Þriðja árið hans Willums Framherjinn Kjart- an Henry Finnbogason mun ekki spila áfram með Celtic. Hann stað- festi það í samtali við Fréttablað- ið í gær. Hann mun tjá forráða- mönnum félagsins ákvörðun sína á næstu dögum. Kjartan segist helst vilja spila á Englandi en seg- ist engu að síður spenntur fyrir því að leika í Landsbankadeildinni í sumar. „Ég er búinn að ákveða að vera ekki áfram hér hjá Celtic og mun tilkynna félaginu það á næstunni,“ sagði Kjartan Henry við Frétta- blaðið í gær. Hann kemur til Ís- lands 17. maí næstkomandi og neitar því ekki að það sé freist- andi að spila í Landsbankadeild- inni í sumar. „Það eru nokkur lið heima búin að hringja í mig. Ég mun samt ekki taka neinar ákvarðanir strax og mun bíða og sjá hvað gerist hér ytra næstu vikurnar. Ég er spenntastur fyrir að spila á Eng- landi og vonandi fæ ég tækifæri til þess,“ sagði Kjartan en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eru ÍA, Fylkir og Víkingur á meðal þeirra liða sem hafa borið víurnar í framherjann unga og efnilega. „Ef ég kæmi heim er voða erfitt annað en að spila með mínu gamla félagi, KR. Ég get varla hugsað mér það en við verðum að sjá til. Það þarf að skoða margt í þessu samhengi.“ Félagi Kjartans hjá Celtic, Theodór Elmar Bjarnason, hefur ekki enn gert upp hug sinn varð- andi framtíðina en hann útilokar ekki að vera áfram hjá Celtic enda fengið fleiri tækifæri en Kjartan með aðalliðinu og fimm sinnum setið á varamannabekk liðsins. „Ég er í samningaviðræðum og að skoða mín mál. Ég er í raun opinn fyrir öllu og það eru mögu- leikar á að fara til Skandinavíu, Englands, Hollands og Belgíu meðal annars,“ sagði Theodór við Fréttablaðið í gær en hann ætlar sér ekki að sitja mikið meira á bekknum hjá Celtic. „Ég vil fara að spila með aðalliði og ef Celtic getur ekki gefið mér augljós merki um að ég fái að spila meira kemur ekki til greina að framlengja hér.“ Kjartan Henry Finnbogason mun ekki leika áfram með skoska meistaraliðinu Celtic. Kjartan segist vilja spila á Englandi en útilokar ekki að spila í Lands- bankadeildinni í sumar. Theodór Elmar gæti verið áfram hjá Celtic. Nú skömmu áður en keppni í Íslandsmótinu hefst eiga Keflvíkingar við mikil meiðsli að stríða. Fimm leikmenn liðsins eru tæpir fyrir fyrsta leik liðsins gegn KR á mánudagskvöldið. Guðmundur Mete verður ekki með fyrr en í júní vegna bak- meiðsla og tognunar aftan í læri. Félagi hans í vörninni, Kenneth Gustafsson, er einnig tæpur. Þetta staðfesti Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, við Fréttablaðið í gær. Enn er óvíst um stöðu Guð- mundar Steinarssonar og Nicolai Jörgensen en báðir meiddust þeir í meistaraleiknum gegn FH á sunnudaginn. Þá er Ingvi Rafn Guðmundsson enn tæpur. „Við megum ekki við svo mikl- um meiðslum enda ekki með jafn breiðan hóp og til dæmis FH, KR og Valur,“ sagði Kristján. Fimm á meiðslalista Keflavíkur Stig Krohn Haaland, leik- maður Breiðabliks, er með slitið krossband í hné og verður lítið sem ekkert með Blikum í sumar. Hann stóð sig mjög vel með Blik- um síðastliðið sumar er hann lék í stöðu hægri bakvarðar og var einn öflugasti maður liðsins. Haaland fer þó ekki í upp- skurð vegna meiðslanna en Ólaf- ur Kristjánsson, þjálfari Blika, vonast til að Haaland gæti hugs- anlega náð síðustu umferðunum í mótinu. Haaland með slitið krossband Skyttan örvhenta Arnar Jón Agnarsson er búin að skrifa undir samning við Hauka um að leika með félaginu næstu árin. Hann mun taka stöðu Árna Þórs Sigtryggssonar, sem er lík- ast til á förum frá félaginu. Arnar Jón er þriðji leikmaður- inn sem Haukar fá á skömmum tíma en áður höfðu Gunnar Berg Viktorsson og Gísli Guðmundsson gengið í raðir þeirra. ÍR-ingurinn Björgvin Guð- mundsson er búinn að ræða við Aron Kristjánsson, þjálfara liðs- ins, og mun gefa Haukum svar fyrir helgi um hvort hann gangi í raðir félagsins eður ei. Arnar Jón skrifar undir Handknattleiksdeild Fylkis hefur boðað til fundar í Fylkishöllinni klukkan 19.30 í kvöld. Þeir sem hafa áhuga á að leika með liðinu í 1. deild að ári eða styðja við bakið á hand- boltanum hjá Fylki eru hvattir til að mæta. Spilaðu með SENDU SMS JA SP3 Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR Á SPID ERMAN, SPIDERMAN TÖLVULEIKIR, TÓNLIS T ÚR SPIDERMAN, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA SMS LEIKUR SJÁÐU MYND INA! SPILAÐU LEI KINN!J I ! I I I ! Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. SMS LEIKUR V in ni ng ar ve rð a af he nd ir hj á BT S m ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . SENDU SMS JA GTF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! 9. HVER VINNUR! Frábær gamanmynd um strák og stelpu og stelpu og strák! Frumsýnd 11. maí

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.