Fréttablaðið - 09.05.2007, Side 50
Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson, landsliðsþjálfari kvenna,
valdi átta leikmenn Vals í 18
manna hóp sinn fyrir vináttu-
landsleik við England 17. maí.
Átta Valsstelpur
í hópnum
Norski fjölmiðillinn
iBergen.no fullyrti í gær að bæði
Bröndby og topplið frá Tyrk-
landi hefðu áhuga á Kristjáni Erni
Sigurðssyni, leikmanni Brann. Per
Bjerregaard, framkvæmdastjóri
Bröndby, vildi lítið segja um málið
en sagði þó að félagið hefði verið
með útsendara á leik Brann um
helgina til að fylgjast með leik-
manni liðsins.
Heimildir iBergen herma að
Bröndby hafi einnig fylgst með
Kristjáni Erni á síðasta tímabili.
Kristján framlengdi samning sinn
í vetur til ársins 2009 en sá gamli
átti að renna út í haust.
Þá kemur einnig fram að topp-
lið í Tyrklandi hafi áhuga á Kristj-
áni Erni og hafi lengi fylgst með
honum, rétt eins og Bröndby.
Að síðustu kemur fram að danskt
og belgískt félag hafi áhuga á Ólafi
Erni Bjarnasyni, sem einnig leik-
ur með Brann. Samningur hans
við félagið rennur út í haust.
Ólafur Garðarsson, umboðs-
maður Kristjáns, sagði að áhugi
væri fyrir honum víða að, meðal
annars frá Tyrklandi.
Kristján Örn og Ólafur Örn hafa
verið fastamenn í vörn Brann
undanfarin tvö tímabil og áttu ríkan
þátt í góðu gengi liðsins síðastliðið
tímabil. Liðinu er einnig spáð góðu
gengi í ár og er liðið sem stendur í
öðru sæti deildarinnar með tíu stig
eftir fimm umferðir.
Bröndby og tyrkneskt
lið vilja Kristján Örn
Diego Corrales, tvö-
faldur heimsmeistari í hnefaleik-
um, lést í mótorhjólaslysi í Las
Vegas aðfaranótt þriðjudags, 29
ára gamall. Á ferli sínum vann
hann 40 af 45 bardögum sínum,
þar af 33 með rothöggi.
„Hann liggur þarna í þessum
töluðu orðum undir hvítu laki
með hjálminn enn á sér. Það lítur
út fyrir að hann hafi kastast tals-
verða vegalengd,“ sagði Gary
Shaw, umboðsmaður Corrales, í
gær.
Eftir gæfuríkan feril sem
áhugamaður í hnefaleikum gerð-
ist hann atvinnumaður árið 1996.
Hann vann IBF-titilinn í fjaður-
vigt árið 1999 og varði hann svo
ári síðar. Árangurinn hans þá var
33-0.
Fyrsta tap hans kom gegn
Floyd Mayweather árið 2001.
Þá kepptust þeir um WBC-titil-
inn en Mayweather sló Corrales
fimm sinnum í gólfið í bardagan-
um. Eftir síðasta höggið stöðvaði
þjálfari Corrales bardagann.
Stærsti bardagi hans var árið
2005 gegn Jose Luis Castillo.
Corrales vann á stigum. Eftir
það átti hann í vandræðum með
að halda sér nógu léttum fyrir
fjaðurvigtina og náði ekki sömu
hæðum eftir það.
Lést í mótorhjólaslysi
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Loftpressur
Mikið úrval loftpressa fyrir
iðnfyrirtæki, iðnaðarmenn og í
bílskúrinn. Hagstætt verð.
Hverju svara stjórnmálaflokkarnir
þegar spurt er um íþróttir ?
Alþingiskosningar 2007
Svörin eru á www.isi.is
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Rafstöðvar
Bensín- og díselrafstöðvar
í stærðum 2,5 kW -4,2 kW.
HAGSTÆTT VERÐ
Karlalið FH og kvenna-
lið Vals verða Íslandsmeistarar
í knattspyrnu í haust gangi spá
þjálfara, fyrirliða og forráða-
manna eftir en KSÍ hélt kynningar-
fund fyrir Landsbankadeildir
karla og kvenna í gær.
FH hefur verið spáð Íslands-
meistaratitlinum síðustu tvö árin
og í bæði skiptin hefur liðið unnið
öruggan sigur. „Ég er mjög sátt-
ur við það að okkur sé spáð titl-
inum. Ég er ánægður með að við
erum með alla menn heila þegar
mótið byrjar og við eigum að vera
tilbúnir með okkar sterkasta lið
fyrir mót,“ segir Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari FH. „Öll sú pressa
sem við búum við kemur frá
okkur sjálfum því það er enginn
annar sem býr til pressu á okkur.
Við þekkjum ykkur blaðamenn
og umhverfið orðið það vel að við
látum ekkert trufla okkur,“ bætir
Ólafur við.
Ekki er búist við miklu af nýlið-
um HK í sumar. „Ég get ekki sagt
að við séum hræddir við þessa spá.
Þetta er það sem við bjuggumst við
og engu við það að bæta. Við höld-
um okkar striki og sjáum hverju
það skilar okkur,“ sagði Gunnleif-
ur Gunnleifsson, fyrirliði HK, sem
segir að stemmningin í hópnum
sé frábær. „Við hlökkum mikið til
sumarsins enda erum við í fyrsta
sinn að spila í efstu deild. Það er
auðvitað stórkostlegt. Að sama
skapi verður kannski reynsluleys-
ið erfitt fyrir okkur en við ætlum
að hugsa jákvætt. Ef samstaðan
helst, sem og trúin á sjálfa okkur,
hef ég ekki miklar áhyggjur.“
Karladeildin hefst á laugardag-
inn en konurnar byrja á mánudag.
Spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna var birt á kynningarfundi Landsbanka-
deilda karla og kvenna í gær. Nýliðunum er spáð falli úr deildunum í haust.