Fréttablaðið - 10.05.2007, Side 6
Lögreglan í Portúgal
biður ferðamenn
sem voru í
landinu 3. maí og
kunna að búa yfir
upplýsingum um
hvarf bresku
stúlkunnar
Maddiear að hafa
samband.
Madeleine
McCann er þriggja ára gömul og
var rænt á íbúðahóteli í Praia de
Luz í Algarve í Portúgal.
Þeir sem telja sig geta gefið
upplýsingar eru beðnir um að hafa
samband við lögregluna í Portúgal
í síma 00 351 282 405 400.
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
74
76
0
5/
07
METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM
6 námsleiðir
BA í hagfræði
BS í hagfræði
BS í fjármálum
Umsóknarfestur er til 5. júní.
Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr.
Styrktu stöðu þína og sæktu um.
Rafræn skráning og upplýsingar
um námið eru á vef viðskipta- og
hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is.
BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
BS í reikningshaldi
BS í stjórnun og forystu
0,00
2,00
4,00
6,00
8,00
10,00
12,00
14,00
16,00
2003 2004 2005 2006 2007
Stýrivextir
Seðlabankans
STÝRIVEXTIR Á YFIRSTANDANDI KJÖRTÍMABILI
ER ÞETTA
EFNAHAGSLEGUR
STÖÐUGLEIKI???
ALLT ANNAÐ LÍF!
– með vinstri grænum
Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti fór í gær hörðum
orðum um fólk sem „vanvirðir
minnismerki um stríðshetjur, og
móðgar með því sína eigin þjóð og
sáir fræjum óvildar og vantrausts
milli landa og þjóða“.
Hann nefndi ekkert land á nafn
en átti augljóslega við Eistland
sem fyrir skemmstu flutti minnis-
merki sovéska hermannsins í Tall-
inn frá torgi í miðbænum inn í
kirkjugarð þar sem minnismerkið
er ekki jafn áberandi.
Pútín sagði þetta í ræðu við
hátíðahöld í Moskvu í gær þegar
Rússar minntust þess að sigur
vannst á þýskum nasistum í seinni
heimsstyrjöldinni árið 1945. Rúss-
ar líta á þennan sigur sem eitt
merkasta afrek sovéska hersins.
Að venju var haldið upp á daginn
með mikilli hersýningu á Rauða
torginu þar sem þúsundir her-
manna gengu fylktu liði yfir torg-
ið. Hersýningin hefur verið nánast
óbreytt frá tímum Sovétríkjanna.
Í Eistlandi komu nokkur hundruð
íbúa af rússneskum uppruna saman
við styttuna af hermanninum á nýja
staðnum í Tallinn og lögðu þar blóm.
Á torginu, þar sem styttan stóð áður,
kom einnig saman hópur þrátt fyrir
að mannsöfnuðir séu þar bannaðir.
Allt fór þó friðsamlega fram.
„Þetta er undarlegt
svona rétt fyrir kosningar,“ segir
Valgeir Sigurðsson, starfsmaður
kosningaskrifstofu Frjálslynda
flokksins á Akureyri, óhress með
slitróttar útsendingar Útvarps Sögu
í bænum.
Valgeir segir flokk sinn auglýsa
mikið á stöðinni; rof útsendinga sé
bagalegt og hann dregur sínar
ályktanir. „Mig grunar að einhver
öfl sem vilja ekki að boðskapur
okkar heyrist eigi þarna í hlut.
Annað eins hefur skeð í þjóðfélag-
inu. Spillingin er nú meiri en
þetta.“
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarps-
stjóri Sögu, kannast við vandamálið
en hefur ekki trú á samsæriskenn-
ingu Valgeirs. Dagskrá Sögu er
send til Akureyrar um ADSL-kerfi
Símans en eftir uppfærslu þess um
páskana hafa útsendingar gengið
brösuglega. „Það er annaðhvort
eitthvað að hjá Símanum eða okkur,“
segir Arnþrúður og ætlar að senda
mann norður hið fyrsta til að kíkja á
græjurnar. „Ég veit að menn eru
margir með hjartalokurnar á lím-
ingunum svona rétt fyrir kosningar
en allir flokkar auglýsa hjá okkur
og þetta kemur því jafnt við alla.“
Linda Waage, upplýsingafulltrúi
Símans, segir bilanatilkynningu
vegna slitróttra útsendinga ekki
hafa borist fyrirtækinu. „Hér sjást
engar kerfisbilanir og það er eng-
inn að fikta í þessu bara af því að
þetta eru þeir,“ segir Linda og vísar
þar með grunsemdum Valgeirs á
bug.
Gruna andstæðinga um græsku Aðstoðar ferða-manna óskað
Mestu verðmæti Íslands eru
mannauðurinn og einstæð nátt-
úra. Íslandshreyfingin
berst fyrir gerbreyttri
stjórnarstefnu sem
byggir á þessu tvennu
og nýtir það til að
skapa auðlegð og vel-
ferð í stað þess að fórna náttúr-
unni fyrir stundargróða í þágu
mengandi stóriðju.
Íslandshreyfingin getur fellt
stóriðjustefnuna og á þingi mun
hún beita sér fyrir því að gert
verði hlé á stóriðjuframkvæmd-
um. Betra er að fá til landsins
fyrirtæki sem nota minni orku,
menga ekki, skapa fleiri og betri
störf og borga hærra orkuverð
vegna grænnar ímyndar lands-
ins.
Íslandshreyfingin mun berjast
fyrir því að orkan, sem hækkar
hratt í verði, verði tryggilega í
eigu þjóðarinnar.
Ábending okkar Vinstri grænna í
gær um að óeðlilegt væri að ráð-
herrar hömuðust við að lofa fjár-
útlát úr ríkissjóði á meðan kosn-
ingabaráttan er í
hámæli hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Almenningi blöskrar
að skattfé þess sé
notað til þess að ráð-
herrar geti klippt borða eða und-
irritað samninga fyrir framan
myndavélarnar svo nærri þing-
kosningum. Í þeim kosningaslag
sem nú stendur yfir hefur raunar
steininn tekið úr hvað þetta varð-
ar og þá sérstaklega á lokametr-
unum þegar kannanir hafa ítrek-
að sýnt að ríkisstjórnin er fallin.
Áhersla okkar í þessum efnum
sem og öðrum er á heiðarleika og
ábyrgð.
Nú eru bara tveir dagar til kosn-
inga og við erum mjög þakklát
fyrir þann mikla meðbyr sem við
finnum þessa dagana. Samfylk-
ingin stendur vörð um
velferðina og hag heim-
ilanna í landinu en rík-
isstjórnarflokkarnir
virðast hafa fyllst
hreinni örvæntingu
með því að gefa út ábyrgðarlaus
loforð um milljarða króna útgjöld
næstu árin þótt umboð þeirra frá
kjósendum sé að renna út á laug-
ardaginn. Á síðustu tíu dögum
hafa borist tilkynningar um 25
slíka samninga og reikningurinn
verður sendur íslenskum skatt-
greiðendum. Það er sannarlega
kominn tími til að breyta!
Til þess að mynduð verði ríkis-
stjórn að loknum kosningum með
aðild Sjálfstæðisflokksins, er
nauðsynlegt að flokkurinn hljóti
góða kosningu á laugardaginn.
Kosningarnar í ár eru
sérstakar að því leyti
að um nokkurt skeið
hefur legið fyrir yfir-
lýsing stjórnarand-
stöðuflokkanna um að
þeir stefni að því að mynda ríkis-
stjórn eftir kosningar. Fari svo að
Sjálfstæðisflokkurinn verði ekki í
næstu ríkisstjórn eru líkur á að
um verði að ræða þriggja eða fjög-
urra flokka vinstristjórn. Reynsla
íslensku þjóðarinnar af slíkum
stjórnum er ekki góð. Við höfum
náð frábærum árangri undanfarin
ár og til þess að framlengja hag-
sældarskeiðið er nauðsynlegt að
Sjálfstæðisflokkurinn fái góða
kosningu á laugardaginn.
Það er ánægjulegt að sjá að fylgi
Framsóknarflokksins lyftist
verulega í könnun Capacent í
gær. Það er í samræmi við þann
meðbyr sem við finnum fyrir
meðal almennings og
þá stemningu sem er í
okkar röðum. Vissu-
lega eru kannanir mis-
vísandi og við sáum
líka slæma könnun í
gærkvöldi. Kannanir eru þó þrátt
fyrir allt þess eðlis að við getum
ekki leyft okkur að láta þær hafa
of mikil áhrif á okkar störf. Það
er kosningin á laugardag sem
skiptir máli og við þurfum að
hafa fyrir því að sækja stuðning
landsmanna á kjördag. Stuðning-
ur við Framsóknarflokkinn á
laugardaginn skiptir sköpum um
það hvort Framsóknarflokkurinn
muni eiga aðild að næstu ríkis-
stjórn.
Íslenska þjóðin þarf að ræða mál-
efni innflytjenda. Vissulega er
um vandasamt mál að ræða en
það breytir ekki þeirri
staðreynd að 300 þús-
und manna þjóð getur
ekki tekið á móti of
miklum fjölda á stutt-
um tíma. Frjálslyndi
flokkurinn hefur bent á að á
vinnumarkaði starfar erlent
verkafólk á lægri launum en
Íslendingar í sömu starfsgrein.
Frjálslyndi flokkurinn vill verja
launakjörin. Ekki má komast upp
með, í skjóli reglna um frjálst
flæði vinnafls, að ráða erlenda
starfsmenn til sín á lægri laun-
um. Okkur ber að taka með sóma-
samlegum hætti á móti þeim sem
hingað vilja koma og setjast að.
Hefði verið rétt að auglýsa
stöðu forstöðumanns nýs
fagskóla á Miðnesheiði, sem
Hjálmar Árnason hlaut?
Ætti að auglýsa aftur eftir
umsækjendum í stöðu aðstoðar-
ríkislögreglustjóra?