Fréttablaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 8
Hópur óánægðra þingmanna danska miðflokksins Radikale Venstre hefur undir forystu Nasers Khader stofnað nýjan flokk sem hlotið hefur nafnið Nýtt bandalag (Ny Alliance). Nýi flokkurinn mun sækjast eftir „samstarfi á breiðum grundvelli“ við aðra flokka fyrir næstu þingkosningar sem væntanlega fara fram árið 2009, að því er Khader sagði er hann lýsti yfir úrgöngu sinni úr Radikale Venstre. Khader, sem er fæddur í Sýrlandi og er ótvírætt þekktasti „hófsami“ múslimi Danmerkur, sagði að meðal markmiða Nýs bandalags yrði að freista þess að lágmarka áhrif Danska þjóðarflokksins, sem er þekktur fyrir hörkustefnu sína gagnvart innflytjend- um og múslimum sér í lagi. Að sögn Thomas Larsen, stjórnmálaskýranda Berlingske Tidende, gæti nýi flokkurinn sótt fylgi bæði til hægri og vinstri og átt framtíð fyrir sér í dönskum stjórnmálum. En stjórnmálafræðingurinn Sören Risbjerg Thomsen tjáði fréttavef Polikiken að þótt Nýtt bandalag kynni að fá tímabundna fylgis- uppsveiflu í skoðanakönnunum sæi hann litla möguleika á að flokkurinn næði yfir fylgisþröskuld- inn til að fá menn kjörna á þing. Það sé „ekki pláss fyrir enn einn borgaralegan flokk á miðjunni“, að dómi Thomsens. Khader fer fyrir Nýju bandalagi Økoren WC-hreinsir Seigfljótandi WC-hreinsir sem fjarlægir fljótt og vel kalk, ry› og óhreinindi ásamt flví a› koma í veg fyrir ólykt. Økoren Universal alhli›a hreinsiefni Alhli›a basískt hreinsiefni til daglegra nota á öllum flvottheldum flötum. Einnig kjöri› til flrifa á sápubornum og bónu›um gólfum. Økoren uppflvottalögur Økoren uppflvottalögur er hlutlaust hreinsiefni til handuppflvotta og hreinsunar á öllum flvottheldum flötum. Spartan umhverfisvænn ba›herbergishreinsir Umhverfisvænn ba›herbergishreinsir votta›ur af Green Seal í Bandaríkjunum. Er me› náttúrulegum s‡rum, sítrónus‡ru (8%) og flrífur vel sápuskánir, flurrkbletti og ry›smit af flísum, salernisskálum og vöskum. Ármúla 23 • Reykjavík Sími: 510 0000 Mi›ási 7 • Egilsstö›um Sími: 470 0000 Brekkustíg 39 • Njar›vík Sími: 420 0000 Grundargötu 61 • Grundarfir›i Sími: 430 0000 - hrein fagmennska! UMHVERFISVÆN EFNI FYRIR SUMARBÚSTA‹I Í bústa›num skiptir miklu máli hverskonar vörur eru nota›ar vi› flrifin. Röng efnanotkun getur au›veldlega heft ni›urbrot í rotflróm og valdi› stíflum. Umhverfisvæn hreinsiefni eru flví bæ›i betri og öruggari kostur. ÍS L E N S K A S IA .I S N A T 3 75 11 0 5. 20 07 Jónsi Birgitta Hafsteinn* Eiríkur Hauks Silvía Nótt *fyrir okkur hin Yfirkjörstjórn Norð- austurkjördæmis féllst á aftur- köllun framboðs Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja á grund- velli stjórnsýslulaga. Í lögum um kosningar til Alþingis er ekki gert ráð fyrir að framboð séu aftur- kölluð. Eftir því sem næst verður kom- ist hefur það ekki gerst fyrr að óskað sé eftir að framboðslisti sé afturkallaður og með þeim hætti hætt við framboð. Baráttusamtök- in skiluðu aðeins inn lögmætum lista í Norðausturkjördæmi en hugðust bjóða fram víðar. Þegar útséð var um að það væri mögu- legt, óskaði oddviti listans í Norð- austurkjördæmi eftir að framboð- ið yrði dregið til baka. Jón Kr. Sólnes, formaður yfir- kjörstjórnar Norðausturkjördæm- is, segir ekkert í lögum taka til þessa tilviks, því sé stuðst við meginreglur laga. „Í stjórnsýslu- lögum er að finna heimild stjórn- valds til að afturkalla ákvörðun sína að eigin frumkvæði. Má hún þá ekki vera til tjóns fyrir aðila og verður að vera ógildanleg. Þessi afturköllun er ekki til tjóns fyrir aðila og afturköllunin er gerð í lögmætu umboði frambjóðanda flokksins í kjördæminu og á þeirri forsendu tel ég að þetta gangi upp,“ segir Jón. Með þessum hætti úrskurðaði yfirkjörstjórn í málinu og stað- festi landskjörstjórn þann úrskurð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.