Fréttablaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Það er annað hvort hafragraut-
ur með kanil, rúsínum, möndl-
um og mjólk, eða þá að maður
dettur í það að fá sér Cheerios
með rúsínum. Svo er nauð-
synlegt að fá sér cappuccino á
meðan maður les blöðin.“
„Þetta eru gripir með langa sögu.
Stærra hálsmenið keypti ég af Ís-
lendingi í Svíþjóð, fyrir um tólf
árum. Þórshamarinn sem líka
hangir um hálsinn á mér hefur
hins vegar fylgt mér í um þrjá-
tíu ár,“ segir Eiríkur Hauksson
um skartgripina sem hann ber um
hálsinn. Það var þetta silfurskart
sem kveikti hugmynd að útliti
bakgrunnsins fyrir íslenska atrið-
ið í Eurovision, hjá finnska hönn-
uðinum sem hafði umsjón með
þeirri vinnu.
Haukur Hauksson, sem stýr-
ir aðgerðum íslenska Eurovision-
hópsins í Finnlandi, segir listrænt
frelsi hafa verið rúmt í þessum
efnum. Aðeins hafi verið gefnar
ábendingar um að Eiríkur væri
hrjúfur í útliti, og óskað eftir bak-
grunni í takt við það. Smekkur
rokkarans kom hönnuðinum því í
góðar þarfir.
„Það þarf ekkert að vera að
kaupa eitthvað nýtt á mig fyrir
eitthvað svona,“ segir Eiríkur
sem ekki vill neitt óþarfa bruðl
fyrir keppnina. „Þetta er nú bara
þannig að ég þarf bara að hrista
rauða hárið og þá er komið rokk
og ról.“
Silfur Eiríks varð innblástur
„Við athuguðum hvort hann væri
ekki með allt sitt á hreinu og sam-
kvæmt Spencer var hann með öll
tilskilin leyfi fyrir því að sýna
verkin,“ segir Íris Stef-
ánsdóttir, sölustjóri hjá
i8 gallerí. Um helgina
opnar hinn heimsfrægi
ljósmyndari Spencer
Tunick sýningu hjá gall-
eríinu en hann er hvað
þekktastur fyrir ljós-
myndir sínar af mikl-
um mannfjölda sem
er klæðalaus. Það sem
vekur hvað helst at-
hygli er að sýning-
una prýða fjórar ein-
staklingsmyndir af
nöktum Íslending-
um úti í guðsgrænni náttúrunni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins fengu einhverjir Íslend-
inganna vilyrði hjá ljósmyndar-
anum Tunick að hann myndi
ekki sýna myndirnar á Íslandi.
Þess vegna hefur einhverjum
brugðið í brún þegar auglýs-
ing birtist í Grapevine þar
sem myndir af Íslending-
unum voru notaðar.
„Þessi auglýsing
er frá Listahátíðinni og er ekki frá
okkur komin,“ útskýrir Íris.
Myndirnar voru teknar á Akur-
eyri í fyrra og lét listamaðurinn
fyrirsæturnar vita af því að hann
væri á leið til Íslands aftur og ætl-
aði að sýna myndirnar í gallerí-
inu ásamt erlendu hópmyndun-
um. „Við verðum bara að treysta
því að ljósmyndarinn sé með sitt á
hreinu,“ segir Íris.
Tunick hefur aflað sér heims-
frægðar fyrir nektarmyndir sínar
og í sýningarskránni stendur að
verk Tunicks veki upp margar for-
vitnilegar spurningar eins og hvað
varðar samband listamannsins við
tiltekið umhverfi sitt og sýn okkar
á nekt og nálægð. Íris segist vona
að listamaðurinn sé í fullum rétti
en bætir því að ef fólk hafi eitt-
hvað við þetta athuga megi það
gjarnan koma við í i8 og ræða
málið við þau.
Allsnaktir Íslendingar notaðir í leyfisleysi
Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar
um heita vatni›
www.stillumhitann.is
„Þetta er stórt atriði í sýningunni
og eftir mikla leit tókst okkur að
hafa uppi á þessum ágæta hundi,“
segir leikskáldið Jón Atli Jónas-
son. Óðum styttist nú í frumsýn-
ingu Partílandsins í Þjóðleikhús-
inu, leiksýningar Jóns Atla sem
markar lokapunkt Listahátíðar í
Reykjavík. Eitt lykilhlutverkanna
í sýningunni er þrífættur hund-
ur sem Jóni Atla hefur nú loksins
tekist að finna.
„Við skoðuðum þann möguleika
að fá þrífættan hund að utan. Þá
hefðum við þurft að koma honum
í gegnum sóttkví svo það var af-
skrifað. Við íhuguðum jafnvel
að láta aflima hund en okkur var
ekki stætt á því. Það væri hrein-
lega ekki góð auglýsing fyrir sýn-
inguna,“ segir Jón Atli íbygg-
inn. Fyrir einskæra lukku rák-
ust aðstandendur sýningarinnar
á Stubba litla sem er þrífættur
og kann ýmis brögð. „Hann varð
fyrir bíl greyið og því vantar á
hann eina löppina. Þótt hann hafi
enga reynslu í því að koma fram
stendur hann sig afar vel. Hann á
eftir að koma á óvart.“
Aðeins eru tvær vikur í frum-
sýningu Partílandsins og segist
Jón Atli hafa verið orðinn nokk-
uð stressaður yfir því hvort hund-
urinn fyndist. „En nú er ég glað-
ur. Það hlýtur alltaf að vera góður
fyrirboði í leikhúsi að finna þrí-
fættan hund. Það hafa allir mínir
draumar ræst í þessu.“
Mikil eftirvænting ríkir fyrir
frumsýningu Partílandsins enda
er afar sterkur hópur leikhús-
fólks sem kemur að sýningunni.
Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson
sem á dögunum var orðaður við
hlutverk í næstu Harry Potter-
mynd. Í helstu hlutverkum eru
þau Kristbjörg Kjeld, Erlingur
Gíslason, Björn Thors og Laufey
Elíasdóttir. Þá munu fjölmargir
þjóðþekktir einstaklingar koma
fram sem þeir sjálfir, meðal ann-
arra rokkarinn Rúnar Júlíusson.
„Svo eiga ansi flott nöfn eftir að
bætast við fram að frumsýningu,“
segir Jón Atli Jónasson.