Fréttablaðið - 10.05.2007, Qupperneq 16
Í samningi um
árangursstjórnun hjá Landhelgis-
gæslu Íslands (LHG) sem skrifað
var undir nýverið er kveðið á um
að unnið skuli að því að
flugrekstrarsvið gæslunnar verði
gert að sérstöku ríkisfyrirtæki.
Það myndi til dæmis auðvelda
gæslunni að leigja út þyrlur til
sérstakra verkefna.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra og Georg Kr. Lárusson, for-
stjóri LHG, skrifuðu á dögunum
undir samninginn í Þjóðmenning-
arhúsinu. Þar er kveðið á um að
unnið verði að tíu ára áætlun um
starfsemi LHG.
Georg segir að verði flugrekstr-
arsviðið gert að sérstöku ríkisfyr-
irtæki myndi það gera rekstur
þess gegnsærri og skilvirkari.
„Við gætum séð nákvæmlega hvað
hlutirnir kosta, og hvað við erum
að nota peningana í. Við myndum
jafnframt eiga meiri möguleika á
því að vinna með öðrum og fyrir
aðra með sérstöku fyrirtæki um
þennan rekstur,“ segir Georg.
„Við viljum ekki fara í sam-
keppni við einn né neinn, en við
viljum geta gert það sem þarf að
gera með þyrlum og flugvél sem
aðrir geta ekki gert hér á landi, og
við viljum getað fengið greitt fyrir
það,“ segir Georg.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra þvertekur fyrir að með því
að aðskilja flugrekstrarsviðið sé
verið að undirbúa einkavæðingu
þess. „Ég hef ekki nokkurn áhuga
á því og tel að það sé mjög óskyn-
samlegt,“ segir Björn
Rannveig Rist, for-
stjóri Alcan í Straumsvík, og eig-
inmaður hennar, Jón Heiðar Rík-
harðsson, mega stækka lóðina
umhverfis einbýlishús sitt í
Garðabæ. Þetta ákvað bæjarráð-
ið í gær.
Í bréfi hjónanna til Garðabæjar
kemur fram að þau vilji breyta
lóðamörkum við hús sitt á Háhæð
2 til að einfalda frágang og við-
hald. Þau vilji að lóðarskiki á horni
Hæðarbrautar og Háhæðar sem
nú er í landi bæjarins verði hluti
af þeirra lóð sem þannig myndi ná
út að gangstéttarbrún. Á horninu
er tengikassi fyrir síma og bruna-
hani út við gangstéttina.
„Við höfum hugsað okkur að
ganga frá þessu horni í samræmi
við aðra hönnun og frágang lóðar-
innar og taka að okkur viðhald
þess, en þessi frágangur er mjög
afgerandi fyrir aðkomuna að hús-
inu og skiptir okkur því miklu
máli að vinna þetta í einni heild,“
segja hjónin í bréfinu til bæjarins
og taka fram að þau vænti þess að
erindið verði afgreitt með jákvæð-
um hætti.
Bæjarráðið samþykkti ósk
Rannveigar og Jóns Heiðars fyrir
sitt leyti og vísaði málinu til skipu-
lagsnefndar bæjarins.
Álversforstjóri má stækka lóð
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
SS hefur nú tekið ómakið af
ömmum landsins og gert
frábæra kindakæfu að
hætti ömmu. Prófaðu
þessa hefðbundnu og
góðu kæfu og rifjaðu upp
góðar stundir þegar fólk
hafði meiri tíma.
– sígild og bragðgóð á brauðið