Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 30
[Hlutabréf]
www.xf.is
Verið velkomin á kosningaskrifstofur okkar
Hamraborg 14, Kópavogi og Háholt 14, Mosfellsbæ.
Kolbrún, Valdimar, Helgi og Guðrún Maria
Opið allan daginn.
Kjósum okkur
sanngjarnara samfélag
ÍBÚAR Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI !
Stjórnendur Marels Food System-
es eru hvergi nærri hættir í leit
sinni að heppilegum fyrirtækjum
til yfirtöku á og hafa að jafnaði á
tvö til fjögur fyrirtæki í skoðun.
Allar líkur eru taldar á því að fé-
lagið taki þátt í fyrsta hluta sölu-
ferlis á hollenska fyrirtækinu Con-
venience Food Systems (CFS) sem
er stærst sinnar tegundar í fram-
leiðslu á hátæknibúnaði fyrir mat-
vælaiðnaðinn en Marel það þriðja
stærsta ef horft er til markaðs-
hlutdeildar. CFS, sem velti alls 430
milljónum evra á síðasta ári, hefur
verið í eigu fjárfestingasjóðs í
þrjú ár.
Árni Oddur Þórðarson, stjórnar-
formaður Marels, telur að það geti
ótvírætt ráðist í stórar yfirtök-
ur og bendir á að í sjóðum félags-
ins liggi um fimm milljarðar króna.
Eiginfjárhlutfall félagsins er um
fjörutíu prósent en fjárfestingar-
geta er meiri en svo þar sem veltu-
fjárhlutfall er nærri tveimur.
Landsbankinn, Marel og Eyrir
Invest eru meðal stærstu hluthafa
í Stork NV í Hollandi. Marel hefur
borið víurnar í Stork Food Syst-
ems, dótturfélag Stork, en þrátt
fyrir ítarlegar viðræður hafa þær
tilraunir ekki borið árangur sem
erfiði. Stjórnendur félagsins hafa
til dæmis lagt fram aðlaðandi
verðhugmyndir sem hefðu að öllu
óbreyttu átt að leiða til samninga-
viðræðna. Málið strandar á tækni-
legum ástæðum.
Sökum kaupa Marels á Scanvægt
og AEW Delford á síðasta ári hefur
samþættingarvinna sett mark sitt
á rekstur félagsins. Sú vinna hefur
hins vegar gengið vel og er stefnt
að því að samþætting sölu- og þjón-
ustukerfis verði lokið á öðrum árs-
fjórðungi. Þannig verða 45 starfs-
stöðvar í 22 löndum sameinaðar
í tuttugu fyrirtæki. Innri vöxtur
Marels var um tíu prósent á fyrsta
ársfjórðungi.
Hörður Arnarson, forstjóri Mar-
els, segir að þar með sé langt í frá
að samlöguninni sé lokið, því nú sé
verið að ljúka við að fjarlægja þær
hindranir sem voru fyrir samruna
fyrirtækja innan samsteypunnar
og nú taki við tólf til átján mánaða
uppbyggingarstarf og uppskera
samlegðaráhrifa. „Við höfum orðað
það þannig að fyrstu tólf mánuðina
höfum við meira verið að rífa niður
veggi alls staðar í fyrirtækinu og
í öllum löndum þar sem við störf-
um,“ sagði hann á kynningarfundi í
gær og spáir því að samlegðaráhrif
komi fram á seinni hluta ársins.
Stjórnendur félagsins búast við
að einskiptiskostnaður verði minni
en áður var talið; gjaldfærður ein-
skiptiskostnaður nam 3,2 milljón-
um evra á fyrstu þremur mánuðum
ársins. Reiknað er með að einskipt-
iskostnaður vegna fyrirtækjakaupa
síðasta árs verði að fullu kominn
fram á öðrum ársfjórðungi.
Talið er líklegt að Marel muni taka þátt í tilboðsferli um CFS, stærsta matvælavéla-
framleiðanda heims, og þá hefur félagið lagt fram verðhugmyndir til stjórnar Stork.
Útlit er fyrir að Actavis láti vera
að eltast við stærri yfirtökur að
því er Róbert Wessman, forstjóri
félagsins, sagði á kynningarfundi
í gærmorgun. Hann segir félag-
ið halda sömu stefnu og undanfar-
in ár með kaupum á smærri fyrir-
tækjum og innri vexti.
Um miðja síðustu viku dró Act-
avis sig úr slagnum um samheita-
lyfjahluta Merck og í fyrra var
ákveðið að eltast ekki við Pliva
í Króatíu. „Merck hefði hentað
okkur mjög vel, en enn og aftur
höfum við sagt að við viljum ekki
borga meira en við teljum okkur
geta skilað til baka til hluthaf-
anna.“ Hann segir verðmiðann á
Merck þegar hafa verið orðinn
hærri en Actavis vildi borga og
fyrirséð að kostnaður myndi enn
aukast í lokaumferð tilboðsferlis-
ins. „Kennitölur í yfirtökum hafa
hækkað töluvert á einu til tveimur
árum,“ segir hann.
Þá kom fram hjá Róberti að
önnur félög hafi ekki leitast við að
taka Actavis yfir, þrátt fyrir til-
tölulega hagstæðar kennitölur fé-
lagsins. Þetta skýrir hann með því
að Actavis hafi leitt samrunaferli í
geiranum og verið hvað aðgangs-
harðast í að taka yfir önnur félög.
„Þetta hefur því ekki verið til um-
ræðu í mörg ár.“
Stærri yfirtökur dýrari
Aukin umsvif á fasteignamark-
aði hafa leitt til þess að útlán
Íbúðalánasjóðs, banka og spari-
sjóða hafa aukist en það hefur
valdið hækkunum á fasteigna-
verði eftir kyrrstöðu í nokkra
mánuði. Þetta kemur fram í
mánaðarskýrslu Íbúðalána-
sjóðs fyrir apríl, sem kom út
í gær. Þá fjölgaði þinglýstum
kaupsamningum á höfuðborg-
arsvæðinu um 30 prósent á
milli ára í mánuðinum.
Ásgeir Jónsson, forstöðu-
maður greiningardeildar Kaup-
þings, segir ástæðurnar liggja
í auknum kaupmætti síðast-
liðna tólf mánuði, meiri bjart-
sýni, fólksfjölgun á höfuðborg-
arsvæðinu og auðvelt aðgengi
íbúðakaupenda að lánsfé, ekki
síst í erlendri mynt.
Enn hækkar
íbúðaverðið