Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 58

Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 58
Listahátíð er sett í dag í húsakynnum Listasafns Ís- lands: í öllum sölum, krókum og kimum safnsins hangir uppi glæsilegur vitnisburður um sköpunar- kraft ungra listamanna í norðurhluta Evrópu á eftir- stríðsárunum: CoBrA-hópurinn sýnir loks í Reykja- vík. Víst hafa félagar CoBrA sýnt hér áður: Sýning Svavars Guðnasonar 1945 olli kaflaskilum í ís- lenskri myndlist og Haustsýningin í sumarbyrjun 1948 varð annað straumkast í listasögunni. SUM- hópurinn hýsti hollenska gestasýningu á sjöunda áratugnum. Annars hefur þessi mikilvægi hópur listamanna síðustu aldar ekki komið fyrir augu ís- lenskra áhugamanna um myndlist nema á erlend- um söfnum. Á næsta ári verða sextíu ár liðin frá því að CoBrA var stofnuð í París. Þess verður víða minnst, þó að Per Hovdenakk, listfræðingur og fyrrverandi yf- irmaður Onstadt-safnsins í Ósló, sem er sýningar- stjóri á þessari stórsýningu, segi hreyfinguna enn vera fáum kunna: verk þeirra Jorns og Svavars, Constants og Appel og allra hinna eru víða fáanleg á markaði um alla Evrópu og skaga ekki enn í það verð sem greitt er fyrir amerísku abstraktistana sem voru hliðstæð hreyfing vestanhafs. Segir Per Ameríkanana þó ekki hafa sama erindi og CoBrA og muni þar mest um að í litafantasíum Evrópubúanna var manninum ekki úthýst. Per hefur eytt drjúgum hluta ævi sinnar í að rann- saka feril þessa formlega samstarfshóps listamanna sem á endanum varð að hreyfingu er tók til nokk- urra tuga listamanna. Hann hefur samið höfuð- verk um Jakobsen og Christo, en þá talið berst að CoBrA er hann að tala um vini sína. Hann er þokka- lega ánægður með hvernig tekist hefur að ná saman myndum eftir þessa listamenn: hver CoBrA-sýn- ing er í rauninni ævintýri því þessir listamenn voru gríðarlega afkastamiklir og agaðir í vinnu. Carl- Henning og Else Ahlfelt stofnuðu safn um verk sín á gamals aldri. Asger Jorn safnaði alla ævi mynd- list, sinni og annarra og gaf Silkiborg. Þangað fer sýningin héðan. Verkin á Fríkirkjuveginum eru frá þessum söfnum og fleirum, en líka úr einkaeign og munar þar mest um lán úr einkasafni Jens Olesen og Lars bróður hans. Það er undarlegt til þess að hugsa að á sinni tíð ollu verkin sem nú hanga uppi á Listasafninu mikl- um hugaræsingi. Nú í dag eru þau glæsilegur vitn- isburður um framlag danska skólans til myndlistar- sögu Vesturheims á síðustu öld. Halldór Björn Run- ólfsson listasafnsstjóri segir að því verði að halda til haga að í Danmörku voru menn fyrstir í abstraktið og er sú mynd sem er talin fyrst slíkra verka á sýn- ingunni, Ophobning eftir Egil Jacobsen, og er það í fyrsta sinn sem hún hefur verið lánuð út fyrir Dan- mörku. Sýningunni fylgir sýningarskrá í bókarformi þar sem í nokkrum greinum er lýst framgangi og enda- lokum hópsins. Þar ritar Per lengst mál en Ólafur Kvaran og Hanne Lundgren Nielsen leggja sitt til. CoBrA Reykjavík varð að veruleika fyrir tilhlut- an íslenskra og danskra embættismanna og nýtur styrks fjölda fyrirtækja. Lýsti danski sendiherrann yfir sérstakri ánægju sinni með hvernig hefði tek- ist til um samstarf ráðuneyta, sendiráða og safna þjóðanna til að koma sýningunni í kring. Hún verð- ur til sýnis í Listasafni Íslands sumarlangt og varp- ar skærri birtu á dagana í glæsileik sínum. Fimmtán verk eftir Svavar Guðna- son eru auglýst á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn 6. júní. Öll eru þau úr eigu arkitekts- ins Roberts Dahlman-Olsen sem var vinur Svavars frá árum hans í Kaup- mannahöfn þegar hann fór þangað til náms. Myndirnar eru allar unnar á pappír og flestar málaðar með vatnslitum. Þær eru frá löngu tíma- bili, sumar áritaðar en aðrar ekki. Uppboðsdagurinn verður langur, hefst uppboðið kl. 13 að staðartíma og verða myndir Svavars boðnar upp fyrstar. Er uppboðið tvískipt, fyrst verk á pappír og síðdegis verk á striga. Þar eru einnig í boði mörg verk eftir CoBrA-hópinn, bæði Dan- ina og Hollendingana. Þá eru á upp- boðinu verk eftir Ólaf Elíasson og Erró. Verk eftir Svavar á uppboði í Höfn Kl. 15.00 Sýningin MÍNÍ VOTT opnar í galleríinu START ART á Laugavegi 12b. Með sýningunni verður vígt nýtt sýningarrými á efri hæð gallerísins. Á sýningunni eru ný smáverk eftir Önnu Eyjólfsdóttur, Ragnhildi Stefánsdóttur, Rúrí og Þórdísi Öldu Sigurðardóttur og myndband eftir Pál Steingrímsson um systursýninguna MEGA VOTT sem sett var upp í Hafnarborg í fyrra.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.