Fréttablaðið - 10.05.2007, Side 64

Fréttablaðið - 10.05.2007, Side 64
Leyfðu litunum … …að taka völdin á eld- húsborðinu. Í Ikea fást litrík glös á þægilegu verði sem lífga svo sann- arlega upp á borðbún- aðinn í sumar. Svo má nota þau sem kertastjaka þegar skyggja fer á ný. Gæti ekki verið án kjúklings Fríða Sophia Böðvarsdóttir kennir matreiðslu jafnt dag sem kvöld. Hún er heimilis- fræðakennari í Víkurskóla í Grafarvogi og heldur jafn- framt námskeið í Kvöld- skóla Kópavogs. Fríða hefur kennt nokkur mis- munandi námskeið í kvöldskólan- um, þar sem hún hefur verið í ein sextán ár. „Ég byrjaði með Góm- sæta grænmetisrétti, svo hef ég verið með námskeið sem heit- ir Bökur og partíréttir og í vetur var ég með hráfæði,“ útskýr- ir Fríða. Sjálf eldar hún mikið af grænmetisfæði. „Ég var með grænmetisfyrirtæki hérna áður fyrr og var sjálf grænmetisæta,“ segir hún. Síðustu tvö ár hefur Fríða þar að auki séð um matreiðslunámskeið sem eru sérstaklega fyrir karl- menn. „Ég er með eitt undirstöðu- námskeið og annað framhalds- námskeið,“ útskýrir hún. Fríða segir námskeiðin vera vel sótt og það af karlmönnum á öllum aldri. „Yngsti nemandi minn kom með pabba sínum, hann var ell- efu ára. Þetta eru karlmenn sem hafa áhuga á mat, sem eru ein- stæðir eða ekklar og eins strákar sem eru svona að byrja að búa,“ útskýrir hún. „Svo er líka al- gengt að konurnar gefi mönnun- um sínum námskeið í jóla- eða af- mælisgjöf,“ bætti hún við. Fríða deilir hér uppskrift að pottrétti og brauði af karlanámskeiðinu með lesendum. Hún bendir þó á að sé fólk í tímaþröng megi auð- veldlega sleppa baununum, eða kaupa þær niðursoðnar. Steinn Óskar Sigurðsson verður fulltrúi Íslands í keppninni Mat- reiðslumaður Norðurlanda, sem fram fer í Turku í Finnland 18. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á vefnum freisting.is. Steinn Óskar var valinn Matreiðslumaður árs- ins 2006. Hann er yfirkokkur á Silfri, sem komst á dögunum á ár- legan Hot List hins virta tímarits Condé Nast Traveller, og ætti því að vera nokkuð vel í stakk búinn fyrir keppnina. Keppnin tekur sex og hálfa klukkustund og þurfa keppendur að framreiða þriggja rétta mál- tíð fyrir tólf manns. Í forrétt skal matreitt úr lúðu og humri, í aðal- rétt er grísahryggur, en rabarbari og trönuberjalíkjör eiga að koma við sögu í eftirréttinum. Keppir fyrir Íslands hönd Því er ekki að neita að grillmatur- inn setur svip sitt á íslenskt sumar. Eymar Plédel Jónsson, sem kennir reglulega á námskeiðum í Vínskól- anum, lumar á góðum ábendinum um hvernig velja á vín með kræs- ingunum. „Grunnreglan er sú sama og fyrir annan mat: því létt- ara sem kjötið er, þeim mun létt- ara á vínið að vera,“ sagði hann. Með þungu grillkjöti mælir Eymar með krydduðu, ávaxtaríku og dálítið eikuðu rauðvíni. „Það er ágætt að leita að kryddi í víninu sem samsvarar kryddinu í matn- um. Eikin fer líka rosalega vel með þessum braseraða keim af grillkjötinu,“ sagði hann. Eymar mælir með Shiraz-vínum frá Ástr- alíu. „Vín frá Suður-Frakklandi, sérstaklega Roussillon-héraðinu, ganga líka mjög vel. Þrúgan er kölluð Syrah þar,“ útskýrði hann. Eymar segir um að gera að breyta út af vananum og næla sér í rósavín með grillaða kjúklingn- um. „Það má reyndar alls ekki vera sætt, en það eru til nokkur þurr og kraftmikil rósavín sem myndu fara skemmtilega með grilluðum kjúklingi,” sagði hann. Fyrir þá sem vilja para kjúkling og fisk við hvítvín mælir Eymar með að leita að ávaxtaríku og létt- eikuðu víni. „Þar gæti maður tekið létteikaðan Chardonnay úr nýja heiminum. En ég myndi skjóta á Chile, það gæti verið gaman að prófa það,“ sagði hann. Ekki má gleyma bjórnum þegar um grillmat er að ræða. „Hann bregst náttúrulega aldrei. Dökk- ur, belgískur bjór smellpassar líka með þessu,“ sagði Eymar. Góð vín með grillmatnum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.