Fréttablaðið - 20.05.2007, Blaðsíða 60
Halldór Gylfason leik-
ari vann þrjú sumur í
saltfiski á Hellissandi.
Þar græddi hann mun
meira en jafnaldrar
hans á mölinni.
Halldór Gylfason tók
sín fyrstu skref á at-
vinnumarkaðnum í blaða-
útburði rigningasumarið
mikla 1983. „Ég bar út
Moggann þetta sumar
í endalausri rigningu,“
segir Halldór. „Það varð
ekki framhald á því enda
fór ég í saltfisk á Hellis-
sandi næsta sumar.“
Halldóri líkaði vel við
saltfiskinn, svo vel reynd-
ar að þar vann hann næstu
þrjú sumur, frá 13 ára
aldri þar til hann varð 16
ára. „Þetta var rosa fínt.
Kom heim eftir sumarið
með fulla rassvasa af pen-
ingum meðan allir félag-
arnir voru staurblankir
eftir unglingavinnuna,“
segir Halldór og hlær.
Þótt Hellissandur sé
ekki stór tókst Halldóri að
villast þar. „Fyrsta dag-
inn kom ég seint um kvöld
með rútu og fór bara beint
að sofa þegar ég var kom-
inn á leiðarenda. Svo var
ég vakinn hálf átta og drif-
inn beint í vinnu,“ segir
Halldór og bætir við hlæj-
andi: „Svo kom hádegið og
allir fóru heim í mat og
þó það séu bara einhverj-
ar fjórar götur á Hellis-
sandi ráfaði ég um í leit að
rauða húsinu sem ég átti
heima í og var eiginlega
rammvilltur.“
Halldór tókst að finna
húsið að lokum og fá há-
degismatinn. „Ég hef
aldrei aftur villst svona
og það er hálf fáránlegt
að það hafi gerst á Hellis-
sandi af öllum stöðum,“
segir Halldór og glottir.
Villtist á Hellissandi
Teikn eru á lofti um að
atvinnuástand fari batn-
andi.
Skráð atvinnuleysi í apríl-
mánuði er 1,1 prósent,
sem jafngildir því að 1.866
manns hafi að jafnaði verið
atvinnulausir í mánuðin-
um. Þetta er minna miðað
við mánuðinn á undan og
apríl á síðasta ári, þegar
það var 1,3 prósent.
Atvinnulausum fækk-
aði í apríl um 68 frá fyrra
mánuði, þar af 48 á höfuð-
borgarsvæðinu og um 20
á landsbyggðinni. Hefur
lausum störfum fjölgað í
apríllok frá því í marslok
úr 414 í 560.
Atvinnuleysi er ríflega 1
prósent hjá körlum á höf-
uðborgarsvæðinu og lands-
byggðinni. Slíkt hið sama
má segja um konur á höf-
uðborgarsvæðinu. Atvinnu-
leysi kvenna á landsbyggð-
inni er hins vegar yfir 2%.
Mestu munar um 4,4% at-
vinnuleysi kvenna á Suður-
nesjum í apríl.
Dregið hefur úr fjölda at-
vinnulausra að undanskild-
um Suðurnesjum, Suður-
landi og Vesturlandi. Virð-
ist atvinnuástandið vera
einna verst á Suðurnesj-
um og Norðurlandi eystra,
samkvæmt upplýsingum
Vinnumálastofnunar.
Frá þessu er greint á vef-
síðu Vinnumálastofnunar,
www.vinnumalastofnun.is.
Góðar atvinnuhorfur