Fréttablaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 4
Vífilfell braut siðaregl-
ur um velsæmi í auglýsingaher-
ferð fyrir gosdrykkinn Coke
Zero, samkvæmt siðanefnd
Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa.
Tilgreindar voru þrjár auglýs-
ingar: „Af hverju ekki konur með
ZERO skoðanir“, „Af hverju ekki
kynlíf með ZERO forleik“ og „Af
hverju ekki konur með ZERO
bílpróf“.
Auglýsingastofan Vatikanið
gerði auglýsingarnar en sam-
kvæmt greinargerð frá henni og
Vífilfelli birtist hluti þeirra fyrir
misskilning og verður ekki birtur
aftur.
Brutu reglur
auglýsingastofa
Endurgreiðslutími virkj-
ana Orkuveitu Reykjavíkur, það
er að segja sá tími sem framlegð
frá virkjunum er að greiða að fullu
til baka það lánsfé sem tekið er til
þeirra, er fimmtán til sextán ár.
Eftir það flokkast þær undir að
vera skuldlausar eignir OR. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá OR
en í henni segir einnig að ávöxtun
eiginfjár verði um þrettán pró-
sent, sem er mjög mikil arðsemi í
alþjóðlegum samanburði.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að raforkusala Orkuveitunn-
ar til Norðuráls myndi líklega
borga sig upp á um þrjátíu árum,
miðað við forsendur sem fengust
frá OR. Að sögn Eiríks Hjálmars-
sonar, upplýsingafulltrúa OR, eru
útreikningar á arðsemi samninga
eins og þeim sem fjallar um sölu
raforku til Helguvíkur flóknir og
óvissuþættir margir. Taka þurfi
tillit til þróunar álverðs, gengis og
vaxta til langs tíma og þá skipti
einnig máli hvernig verðbólga sé
meðhöndluð.
„OR er með lánshæfismat og
fjármagnar framkvæmdir hjá
stórum alþjóðlegum fjárfestingar-
sjóðum sem allir leggja mat á
aðferðafræði OR við arðsemi
virkjana. Þá hefur Eftirlitsstofn-
un EES einnig lagt mat á aðferða-
fræði OR á útreikningi á arðsemi
virkjana og hvort í orkuverðinu
felist niðurgreiðsla á álvinnslu,“
segir Eiríkur.
Arðsemi eigin fjár 13 prósent
Ítalska lögreglan neydd-
ist til að beita táragasi á tugþús-
undir mótmælenda sem saman
voru komnir í Róm í gær til að
andmæla George W. Bush Banda-
ríkjaforseta og stefnu ríkis-
stjórnar hans gagnvart aukinni
hnattvæðingu og hernaði í Írak.
Framan af degi höfðu mótmælin
verið hin friðsælustu en eftir að
Bush hafði lokið fundahöldum
með Romano Prodi, forsætisráð-
herra Ítalíu, og Benedikt páfa
XVI fóru mótmælendurnir að láta
ófriðlega. Eftir átök á milli lög-
reglu og mótmælenda í yfir
klukkustund, þar sem flöskum,
múrsteinum og öðru lauslegu var
kastað í átt að lögreglumönnum,
ákváðu þeir að beita táragasi á þá
sem verst létu. Náði lögreglan
tökum á ástandinu í kjölfarið.
Einn lögreglumaður og einn mót-
mælandi voru fluttir á sjúkrahús
vegna meiðsla og nokkrir óláta-
seggjanna voru handteknir.
Bush hóf gærdaginn á því að
ræða við Romano Prodi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, og að sögn þeirra
beggja gekk fundurinn afar vel.
Samband Bandaríkjanna við
Ítalíu er mjög gott,“ sagði Bush
eftir fundinn með Prodi, sem tók í
sama streng og Bandaríkjafor-
seti. „Við erum í meginatriðum
sammála um hvernig heimurinn
eigi að vera,“ sagði ítalski leið-
toginn.
Fundur Bush með Benedikt
páfa fór að mestu í að ræða stöðu
kristinna í Írak. Sagði Bush að
páfinn hefði lýst yfir áhyggjum
sínum yfir aðstæðum kristinna í
hinu stríðshrjáða landi, sem og
annars staðar í Mið-Austurlönd-
um. Bush sagði ennfremur að páf-
inn vonaðist til þess að hinn forni
samfélagshópur kristinna muni
halda velli, þrátt fyrir að þeir
yrðu fyrir ofbeldi á degi hverj-
um. „Við töluðum minna um stríð-
ið í Írak,“ bætti Bush við.
Talið er að um þrjú prósent af
þeim 26 milljónum sem búa í Írak
séu kristinnar trúar. Margir
þeirra hafa flúið landið á undan-
förnum vikum af ótta við ofbeldi
múslima. Kristnar kirkjur eru
nánast mannlausar eftir morð og
mannrán á þeirra slóðum síðustu
vikur.
Bush sagði enn fremur að heim-
sóknin í Vatíkanið hefði hreyft
við sér og páfinn væri „mjög
snjall og umhyggjusamur maður“.
Þetta var í fyrsta sinn sem Bush
hittir Benedikt páfa á opinberum
vettvangi.
Lögregla beitti tára-
gasi á mótmælendur
Lögregla í Róm þurfti að grípa til táragass til að hafa hemil á tugþúsundum
mótmælenda George W. Bush sem saman voru komnir í borginni í gær.
Yfirvöld í Danmörku
hyggjast setja á laggirnar
gagnagrunn sem hefur að geyma
upplýsingar um allar helstu
fótboltabullur landsins. Von er á
lagafrumvarpi um málið innan
fárra vikna og kemur það í
kjölfarið á uppákomunni í
landsleik Dana og Svía fyrir
skemmstu þar sem ölvaður
áhorfandi réðst að dómara
leiksins.
Fjöldi fótboltabullna í Dan-
mörku hefur vaxið hratt á
undanförnum árum og á föstudag
komu upp atvik í tveimur
æfingaleikjum þar sem lögregla
þurfti að hafa afskipti af áhorf-
endum. Markmiðið með frum-
varpinu er að útiloka slíkar bullur
frá völlunum.
Hyggjast stöðva
fótboltabullur
Erlendir ferðamenn
eru í sífellu staðnir að hraðakstri
á þjóðvegum landsins. Lögreglan
á Akureyri tók þrettán manns
fyrir of hraðan akstur síðasta
sólarhring og voru nær allir
þeirra erlendir ferðamenn.
Lögreglan á Blönduósi telur að
hún stöðvi um tíu erlenda
ferðamenn á hverjum degi fyrir
of hraðan akstur.
Flestir lögregluþjónanna sem
rætt var við sögðu að eitthvað
þyrfti að gera til að ástandið
batnaði.
Keyra of hratt á
þjóðvegunum
IsNord tónleikahátíð-
inni í Borgarfirði lýkur í dag með
tónleikum sem haldnir verða í gíg
Grábrókar. Þar verður leikin
tónlist úr Fjalla-Eyvindi og
Skugga-Sveini.
Á meðal þeirra sem koma fram
eru Guðrún Ingimarsdóttir,
Bergþór Pálsson, Guðmundur
Þorvaldsson og Hljómskálakvint-
ettinn auk félaga úr Kammerkór
Vesturlands.
Söngur í gíg