Fréttablaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 14
B augur kynnir nú fyrir helgina breytingar á skipulagi yfirstjórnar fyrirtækisins. Jón Ásgeir Jóhannesson víkur úr forstjórastóli fyrir Gunnari Sigurðssyni. Hann fer ekki langt, því hlutverk hans verður hlutverk starfandi stjórn- arformanns. „Starfandi stjórnar- formaður er önnur útgáfa af for- stjóra,“ segir Jón Ásgeir. „Ég fæ meiri möguleika á að hafa yfirsýn og móta framtíðarstefn- una og losna við að sinna ýmsum verkefnum sem tilheyra daglegum rekstri. Okkur fannst þetta tíma- bært, enda félagið stækkað mikið og mikilvægt að horfa til nýrra tækifæra og markaða. Hraðinn er meiri og mikilvægt að einhver sé með yfirsýnina.“ Jafnframt þessu tekur Jón við stjórnarformennsku af Skarphéðni Berg Steinarssyni, sem tekur við stjórn fasteignafélagsins Stoða Group. „Það er mikið verkefni sem krefst skýrs fókuss. Við töld- um því rétt að ég tæki við þessu hlutverki.“ Jón Ásgeir segir það leggjast vel í sig að taka við þessu kefli í FL Group. „Við höfum unnið með Hannesi Smárasyni um ára- bil í FL Group. Það samstarf hefur verið mjög gott. Hannes og starfs- menn FL hafa ávaxtað fé hluthafa með frábærum hætti. Þá má geta þess vegna forsíðu Morgunblaðs- ins í gær að stjórn og forstjóri eru einhuga um framtíðarsýn félags- ins. Allt tal um annað verður að flokkast undir hugarburð og slúður eða jafnvel tilraun til að koma illu til leiðar,“ segir Jón Ásgeir. Hann segir breytingar á félaginu til þess fallnar að skerpa áherslur og ábyrgð í félaginu. Samkeppni í fjárfestingum fari vaxandi og erf- iðara að finna góð tækifæri. „Ég held að eina vitið fyrir lítil fjár- festingarfélög eins og okkur sé að einbeita sér að ákveðnum grein- um viðskipta og kunna þær vel og þekkja fólkið innan greinanna.“ Baugur hefur á tiltölulega skömmum tíma haslað sér völl í smásöluverslun og í fasteigna- fjárfestingum í Bretlandi. Tengsl félagsins í þeim starfsgreinum eru orðin umtalsverð og við það orðið til erlendir meðfjárfestar á ýmsum sviðum. Einn þeirra er Sir Tom Hunter, sem í kjölfar kynna sinna af Baugi í gegnum samstarf í Bretlandi hefur fjárfest með félaginu innanlands, bæði í FL Group og Glitni. Hunter er mikill áhugamaður um þróunaraðstoð og nú er verið að hleypa af stokkun- um miklu verkefni í Rúanda sem Baugur leggur stórar fjárhæðir í sem bæði bindur kolefni með ræktun örfoka lands og styð- ur íbúa til sjálfshjálpar. Verkefn- ið er í samvinnu við Bill Clinton í gegnum samstarf þeirra Hunters; Clinton Hunter Foundation. „Eins og Tom Hunter orðar það: Það þýðir ekkert að gefa þeim fisk. Það þarf að gefa þeim veiðistöng og kenna þeim að veiða,“ segir Jón Ásgeir. „Þetta er mjög stórt verk- efni. Clinton Hunter Foundation hefur unnið að þróunarverkefnum sem byggja á hjálp til sjálfshjálp- ar. Þarna bætist svo við að við höfum tækifæri til að bæta fyrir útblásturinn. Þeir voru byrjaðir með þetta verkefni og kynntu það fyrir okkur og okkur leist mjög vel á þetta. Við gerum tvennt í einu. Við útrýmum fátækt og bindum kolefni.“ Bændur munu planta ávaxta- trjám í örfoka land í Rúanda. „Bændurnir fá því nóg að gera við að rækta þetta og svo vonandi selja okkur ávexti,“ segir Jón Ás- geir, greinilega enn með hugann við upprunann í matvöruverslun. Jón segir að Baugur haldi áfram að styrkja málefni á eigin forsend- um, en félagið úthlutar 300 millj- ónum árlega innanlands og er einnig styrktaraðili UNICHEF. Hann segir að það muni halda áfram. „Tom Hunter er mjög framarlega í velferðarverkefnum og kynnti þetta fyrir okkur. Hann er með starfsmenn í þessu og markvissa hugsun í verkefnunum. Við töldum þetta því gott verkefni og vildum vera með og nýta það sem Hunter hefur byggt upp um leið og við bætum fyrir eigin losun á gróðurhúsalofttegundum.“ Heimur viðskiptanna minnkar sí- fellt og ný tækifæri og markaðir opnast. Jón Ásgeir segist sjá mikil tækifæri í nýjum mörkuðum fyrir Baug. „Við höfum verið að horfa til Indlands með það í huga að byrja í fasteignaverkefnum og skoða verslunina. Þar gætu líka legið tækifæri fyrir FL Group. Það er margt að koma þar í kringum það sem við erum með.“ Jón Ásgeir segir félagið einnig horfa í vestur. Bandaríkin séu spennandi markaður, sérstaklega í fasteignaviðskiptum. „Þarna eins og annars staðar gildir að finna réttu verkefnin og tækifærin. Við höfum lært inn á fasteignavið- skipti eins og í Bretlandi sem hafa verið mjög arðsöm. Við munum ekki fara inn með neinu offorsi, en ef við horfum á New York er fast- eignaverð þar þriðjungur af því sem það er í London. Maður sér frekar fyrir sér að aðrir markaðir eigi eftir að nálgast London, frekar en London fjarlægist þá.“ Jón segir miklu skipta að bjartsýni gagnvart Bandaríkjunum vaxi á ný. „Útlendingar þora varla í við- skipti til Bandaríkjanna. Menn eru tortryggðir þar og London hefur verið að njóta þessa ástands. Það er ekki hægt að reka samfélag á svona miklum ótta og tortryggni og þegar heimurinn er fullur af tækifærum, þá fara menn bara annað.“ Hann segist eiga von á því að margt muni breytast eftir að valdatíma núverandi forseta ljúki. Asía hefur verið að opnast sem heimsálfa tækifæranna og flestir eru á því að álfan muni leiða vöxt hagkerfa heimsins á þessari öld. Það er freistandi að spyrja Jón Ás- geir í ljósi þróunarverkefnisins í Rúanda, hvort og hvenær menn sjái tækifæri í Afríku. „Það er búið að skemma mikið með ölmusuhjálp. Það hefur vantað að byggja upp innviði og samfélagskerfi. Það vantar mikið upp á innviðina og verkefnið sem við tökum þátt í verður vonandi til þess að aðstoða við að byggja slíkt upp.“ Veiðistöng og kunnátta betri en gefins fiskur Í lok vikunnar sté Jón Ásgeir Jóhannesson úr forstjórastóli Baugs til að verða starfandi stjórnarformaður, auk þess sem hann tók við stjórnarfor- mennsku í FL Group. Baugur leggur á sama tíma upp í metnaðarfullt kol- efnisbindingarverkefni með Bill Clinton og viðskiptafélaga sínum Sir Tom Hunter í Rúanda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.