Fréttablaðið - 10.06.2007, Síða 24
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Grunnskólar Kópavogs
starf skólastjóra
Staða skólastjóra við Smáraskóla
laus til umsóknar.
Grunnskólar Kópavogs
Grunnskólar í Kópavogi starfa sam-
kvæmt samþykktri skólastefnu. Þar segir
m.a: „Skólayfirvöld í Kópavogi leggja ríka
áherslu á að grunnskólar bæjarins séu í farar-
broddi og þróist í takt við það samfélag sem
þeir þjóna. Grunnskólinn á að sýna stöðuga
viðleitni til að skapa öllum íbúum bæjarfélags-
ins jöfn tækifæri til menntunar og þroska.“
(www.kopavogur.is - fræðslusvið).
Smáraskóli – helstu áherslur
Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með
um 490 nemendur. Í starfi Smáraskóla
hefur áhersla verð lögð á fjölbreytta og
nútímalega kennsluhætti og einnig hefur
verið lögð áhersla á útivist og skipulögð
hálendisferðalög nemenda í efstu bekkjum
skólans. Sérstök áhersla hefur einnig verið
lögð á markvisst tónlistaruppeldi.
Umsækjendur
Við val í starfið verður stuðst við eftirtalin
menntunar- og hæfnisskilyrði:
• Kennaramenntun og kennslureynslu.
• Reynslu af skólastjórn.
• Framhaldsnám í stjórnun eða öðrum
greinum sem nýtast í skólastjórnun.
• Reynslu af foreldrasamstarfi.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða
þekkingu á fjölbreytilegum kennsluháttum,
áhuga á og hæfni til að skipuleggja krefjandi
og skapandi skólastarf í samvinnu við kenn-
ara, foreldra og skólayfirvöld. Framtakssemi,
samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
eru því nauðsynlegir.
Skólasamningur
Grunnskólar Kópavogs starfa samkvæmt
skólasamningi sem kveður á um ákveðið fjár-
hagslegt svigrúm fyrir skólana. Markmiðið
með því er að skapa skólunum aukna mögu-
leika á fjárhagslegri hagræðingu til hagsbóta
fyrir skólastarfið
Ráðning
Skólastjóri verður ráðinn frá og með 1. ágúst
2007. Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingi LN og KÍ fyrir grunnskóla. Konur jafnt sem
karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Umsóknir skulu berast Fræðsluskrifstofu Kópa-
vogs, Fannborg 2, 200 Kópavogur, í síðasta lagi
11. júní 2007
Nánari upplýsingar veita Árni Þ. Hilmarsson,
fræðslustjóri í síma 570 1600
og Þorsteinn Einarsson,
starfsmannastjóri í
síma 570 1500.
Matselja óskast í Söluskála
KHB á Egilstöðum.
Vinnutími frá 8-16, virka daga.
ð felst í:
• að matreiða staðgóðan heimilismat í hádeginu, alla virka daga.
• að hafa umsjón með smurbrauði og kökum.
• að taka þátt í innkaupum á matvörum fyrir staðinn.
Áhugasamir leitið ykkur upplýsinga um laun og aðstæður
ð samband við Guðrúnu í síma 470-1230 eða 861-7756.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Frá Kársnesskóla
Laus störf næsta skólaár:
• Gangavörður/ræstir
• Íþróttakennari
• Enska og umsjón á unglingastigi
Laun samkvæmt kjarasamningum Launanefndar
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um
störfin.
Upplýsingar gefur skólastjóri
í síma 570 4100 og 898 4107
netfang gudrunpe@kask.kopavogur.is