Fréttablaðið - 10.06.2007, Qupperneq 68
Sean Connery hefur endan-
lega staðfest að hann muni ekki
taka að sér hlutverk föður Indi-
ana Jones í fjórðu kvikmynd-
inni um fornleifafræðinginn en
tökur á henni hefjast í næsta
mánuði. Connery sló í gegn sem
Henry Jones í þriðju myndinni,
sem sýnd var fyrir átján árum,
en skoska sjarmatröllið tilkynnti
nýlega að hann væri hættur kvik-
myndaleik.
Leikstjórinn Steven Spielberg
og framleiðandinn George Lucas
þrýstu mikið á Connery um að
taka hlutverkið að sér en sá
skoski segir að eftir langan um-
hugsunartíma hafi hann ákveðið
að láta fyrri ákvörðun standa.
„Ef eitthvað hefði getað fengið
mig til að hætta við að hætta, þá
væri það Indiana Jones. Ég nýt
lífsins hins vegar svo mikið án
kvikmyndaleiks að ég ákvað að
taka ekki boði Spielbergs,“ segir
Connery.
Harrison Ford verður sem fyrr
í hlutverki Indiana Jones en af
öðrum leikurum má nefna Cate
Blanchett, John Hurt og Ray
Winstone. Myndin verður frum-
sýnd næsta sumar.
Connery sagði nei
við Spielberg
Ástralska söngkonan Kylie Min-
ogue vonast til að næsta plata sín
komi út fyrir jólin. Kylie er að
snúa aftur á sjónarsviðið eftir að
hafa greinst með brjóstakrabba-
mein. Fjögur ár eru liðin síðan síð-
asta plata hennar, Body Language,
kom út.
Nýverið var tíu lögum sem eiga
að vera á nýju plötunni lekið á
netið, Kylie til mikils ama. „Það
er mjög spennandi að vita til
þess að platan gæti orðið tilbúin
fyrir jólin,“ sagði Kylie. „Það var
samt mjög leiðinlegt að frétta að
ókláruðu lögunum var stolið og
þau sett á netið.“
Plata fyrir jól
Það er sama hvert þig lang-
ar að fara. Til Tansaníu,
Taílands eða Tyrklands,
já eða bara í helgarferð til
New York, á heimasíðunni
Hospitalityclub.org finn-
urðu fólk sem vill hýsa þig
frítt, bjóða þér í mat eða
sýna þér borgina.
„Ég vil meina að þetta sé eina
alvöru leiðin til að ferðast ef
maður vill ferðast lengi og eyða
sem minnstum pening,“ segir
Haukur Sigurðsson, sem notar
heimasíðuna Hospitalityclub.org
grimmt.
„Þetta er miklu skemmtilegra
en að vera á hótelum eða hostel-
um og hitta bara einhverja Am-
eríkana. Bæði endist peningurinn
tíu sinnum lengur og svo er þetta
líka miklu skemmtilegra. Maður
hittir hressa heimamenn og kynn-
ist betur menningunni.“
Hosptialityclub.org er heima-
síða sem fólk getur skráð sig inn
á til að útvega sér ókeypis gist-
ingu í heimahúsum um allan heim.
Fólk er skráð þar frá 207 löndum
þannig að um margt er að velja.
Síðan er þannig upp byggð að
fólk skráir sig inn og gefur upplýs-
ingar um sjálft sig svo sem aldur,
kyn, búsetu og annað. Hvort það
er í aðstöðu til að hýsa aðra eða
bara bjóða í mat eða kynnisferð
um borgina. Eftir innskráning-
una getur maður leitað uppi fólk
úti um allan heim sem er í sömu
hugleiðingum og er tilbúið að opna
heimilið sitt fyrir ferðalöngum.
„Ég er búinn að vera skráður þarna
í rúm tvö ár og hef notað síðuna
mjög mikið. Ég hef gist hjá fólki
úti um alla Evrópu og mín reynsla
af þessu er eingöngu jákvæð.“
Haukur hefur hitt marga sem
nota þessa heimasíðu, bæði stelpur
og stráka, og enginn þeirra hefur
slæma sögu að segja.
Haukur hefur þó lent á nokkr-
um furðufuglum á ferðum sínum.
„Það er stundum eitthvað sem
er pínlegt á meðan á því stendur
en verður svo góð saga eftir á. Í
versta falli býr maður bara til af-
sökun til að fara næsta dag og
finnur sér nýjan gestgjafa.“
Flestir notenda síðunnar eru á
aldrinum tuttugu til þrjátíu ára en
þó er fólk þarna allt frá ungling-
um til eldri borgara.
Þegar Haukur er búinn að
ákveða áfangastað fer hann á síð-
una og skoðar „prófíla“ fólksins í
viðkomandi bæ eða borg og finn-
ur fólk sem honum líst á. Þá sendir
hann nokkrum póst og fær nær
alltaf jákvætt svar frá einhverj-
um þeirra. „Þetta er sjaldnast
nein fimm stjörnu gisting, held-
ur yfirleitt pláss í stofusófa eða
dýna á gólfi. En það er bara fínt,
ég þarf ekki þægindi fyrr en ég
verð orðinn gamall,“ segir Hauk-
ur að lokum.
Nám á netinu
Bókasafnstækni
Margmiðlunarhönnun
ljósmyndun
vefhönnun
teiknimyndagerð
myndbygging
útvarp
sjónvarp
umbrot
litafræði
kvikmyndun
safnafræði
grafísk hönnun
formfræði
Borgarholtsskóli
v/Mosaveg 112 R. Sími 535 1700 www.bhs.is
Innritun til 19. júní
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar:
http://dreifnam.multimedia.is
dreifnám
MasterCard korthafar fá miðann á þessa skemmtilegu fjölskyldumynd
á aðeins 600 kr. meðan myndin er sýnd, greiði þeir með kortinu.
Myndin er sýnd í Laugarásbíói og Smárabíói.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
600 kall
meðan myndin er í sýningum!
Komin í bíó!
Komin í bíó!