Fréttablaðið - 10.06.2007, Side 72

Fréttablaðið - 10.06.2007, Side 72
Forkeppni EM 2008 Norska úrvalsdeildin Sænska 1. deildin Spænska úrvalsdeildin Hin belgíska Justine Henin fagnaði í gær sínum fjórða sigri á fimm árum á opna franska meist- aramótinu í tennis. Í gær bar hún sigurorð af Önu Ivanovic frá Serbíu, 6-1 og 6-2. Hún var í sér- flokki á mótinu og tapaði ekki setti í öllum sínum sjö viðureignum. Hún sagði eftir leikinn að stundin virtist óraunveruleg. „Þegar ég var lítil stúlka hélt ég að ég myndi aldrei standa hér á aðalvellinum í París,“ sagði Henin. Sigur Henin var hennar þriðji í röð á opna franska meistaramót- inu í tennis. Henin vann í fjórða sinn Alltaf ánægður þegar ég spila undir pari Ísland tapaði í gær fyrir Serbíu á útivelli, 30-29, í forkeppni EM 2008. Íslendingar voru með þriggja marka forystu þegar tíu mínútur voru eftir en misstu hana niður á lokasprettinum. Úrslitin eru engu að síður góð því heima- völlur Serba telst afar sterkur og var stemmningin á vellinum gríð- arlega góð. Serbarnir byrjuðu betur og komust í 3-1 forystu. En þá kom góður leikkafli hjá Íslendingum, sem skoruðu þrjú mörk í röð, og mest varð forystan í fyrri hálfleik þrjú mörk, 11-8 og 13-10. Staðan í hálfleik var 14-13, Íslendingum í vil. Serbar komust svo aftur yfir snemma í síðari hálfleik en um miðbik hálfleiksins bitu Íslend- ingar frá sér og komust sem fyrr segir í þriggja marka forystu. Lokamínúturnar voru æsispenn- andi en Íslendingum tókst að minnka muninn í eitt mark þegar skammt var til leiksloka og fengu tækifæri til að jafna metin á loka- sekúndunum. Af því varð þó ekki. „Jú, það er svekkjandi að missa þetta niður í lokin,“ sagði Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari í leiks- lok. „Við fengum nokkra mjög sér- staka dóma gegn okkur og áttum til að mynda að fá nokkur víti í við- bót. Úrslitin eru engu að síður frá- bær fyrir strákana í þessari miklu stemmningu sem ríkti í höllinni og því mótlæti sem þeir lentu í.“ Hann sagði að sínir menn hefðu getað unnið leikinn með þremur til fjórum mörkum og hefðu átt það skilið. „Síðari leikurinn leggst vel í mig. Ég veit að þeir geta spilað betur og er sannfærður um að við getum spilað miklu betur. Ég von- ast líka eftir troðfullri Laugar- dalshöll.“ Ólafur Stefánsson átti stórleik í gær og skoraði níu mörk úr tíu skotum. Birkir Ívar Guðmundsson átti einnig mjög góðan leik í mark- inu, sér í lagi í fyrri hálfleik. „Óli var alveg brilljant í leikn- um og ég var líka mjög ánægður með marga aðra. Guðjón Valur, Snorri, Alex og Robbi voru góðir og Hannes Jón átti góða innkomu í síðari hálfleik. Sverre var frá- bær í 5-1 vörninni og hann og Sig- fús voru eins og Kínamúrinn í 6-0 vörninni í síðari hálfleik.“ Hann segir að allir sínir leik- menn hafi komist heilir frá þessu verkefni. „Þeir eru allir heilir og mjög spenntir fyrir seinni leikn- um.“ Þrátt fyrir stórleik Ólafs Stefánssonar tókst Íslendingum ekki að sigra lið Serba á útivelli í gær í leik liðanna um sæti á EM. Niðurstaðan var þó vel viðunandi. Barcelona missti af gullnu tækifæri til að taka for- ystuna í spænsku úrvalsdeild- inni en næstsíðasta umferð deild- arinnar fór fram í gær. Bör- sungar voru með 2-1 forystu gegn Espanyol þegar þeir fengu á sig jöfnunarmark á lokamín- útu leiksins. Á sama tíma jafn- aði Real Madrid metin gegn Real Zaragoza eftir að hafa lent 2-0 undir. Fyrir vikið er Real Madrid enn í kjörstöðu fyrir lokaum- ferð en bæði lið eru með 73 stig á toppi deildarinnar. Real Madr- id er þó með betri árangur í inn- byrðis viðureignum og það telur ef liðin verða jöfn að stigum eftir lokaumferðina. Espanyol komst yfir gegn grönn- um sínum í gærkvöldi en Lionel Messi jafnaði metin á ótrúlegan máta. Hann skoraði með höndinni, rétt eins og Diego Maradona gerði á HM 1986. Messi kom liðinu yfir með fínu marki á 57. mínútu. Eftir það virt- ist sigur heimamanna ekki vera í hættu en hinn magnaði Tamudo þaggaði niður í áhorfendum á 90. mínútu þegar hann jafnaði fyrir Espanyol. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli á 78. mínútu. Ekki var dramatíkin minni þegar Real Zaragoza tók á móti Real Madrid. Þar komust heima- menn í 2-0 í hálfleik með tveimur mörkum frá Diego Milito, því fyrra úr víti. Markahrókurinn ótrúlegi Ruud van Nistelrooy skoraði á 57. mín- útu og jafnaði svo metin á 89. mínútu. Diarra fékk svo dauða- færi fyrir Real þegar komið var í uppbótartíma en skallaði yfir fyrir opnu marki eftir hornspyrnu David Beckham. Real og Barcelona eru því enn efst og jöfn þegar aðeins ein um- ferð er eftir, en Real nægir sigur í siðasta leiknum á heimavelli til að tryggja sér titilinn vegna betri stöðu í innbyrðisviðureignum sínum við Barcelona. Börsungar verða að vinna og treysta á að Real verði á í messunni. Sevilla átti raunar möguleika á að ná topplið- unum að stigum í dag en liðið varð að sætta sig við 0-0 jafntefli á úti- velli við Mallorca. Börsungar misstu af gullnu tækifæri Ungstirnið Lewis Ham- ilton á McLaren tryggði sér í kvöld sinn fyrsta ráspól á ferlin- um í Formúlu 1 þegar hann náði besta tíma í tímatökum fyrir Kanadakappaksturinn sem fram fer í Montreal á morgun. Félagi hans Fernando Alonso náði öðrum besta tímanum og Nick Heidfeld stakk sér framúr Ferrari-menn- ina Raikkönen og Massa í þriðja sætið. Hamilton á rás- pól í fyrsta sinn Roger Federer segir að stemmingin á opna franska meist- aramótinu líði fyrir að VIP sætin við miðju vallarins séu oftar en ekki tóm og því sé stemming- in ekki eins góð og til að mynda á Wimbledon-mótinu. Federer mætir Rafael Nadal í úrslitaleik mótsins í dag. „Munurinn liggur í því að miðja vallarins er alltaf pökkuð af fólki á Wimbledon, en á þessu móti vantar oft fullt af fólki í stúk- una,“ sagði Federer. „Fólkið sem er með VIP sætin mætir kannski ekki nema á einn eða tvo leiki á dag.“ Léleg stemning á aðalvellinum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.