Fréttablaðið - 10.06.2007, Qupperneq 74
Taktu þátt!
Þú sendir SMS
BT BTF á númerið 1900.
Þú færð spurningu.
Þú svarar með því að senda SMS
skeytið BT A, B eða C á númerið 1900.
hver vinnur!
10.
Aðalvinningur!
FSC Amilo
Pi Core2
Vista
fartölva
SMSLEIKURTak
tu
þátt!
Geggjaðir aukavinningar! Vídeospilari, Sony myndavél, Panasonic tökuvél, Apple iPod Nano/blár, HP
Photosmart, GSM símar, Bíómiðar fyrir 2 á THE INVISIBLE og LAST MIMZY,PSP tölvur,Gjafabréf á
Tónlist.is,PS2 tölvur, Kippur af Gosi og enn meira af DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Í nótt fer fram annar leikur-
inn í úrslitum NBA-deildarinn-
ar þegar San Antonio tekur á móti
Cleveland. Leikurinn verður í
beinni útsendingu á Sýn og hefst
klukkan eitt eftir miðnætti.
Cleveland þarf að finna svör við
sterkum varnarleik San Antonio
og LeBron James þarf sömuleiðis
að sýna sitt allra besta. Hann var
ekki mjög áberandi í fyrsta leikn-
um á fimmtudag.
San Antonio getur komist í 2-
0 í kvöld en eftir leikinn í nótt
fara næstu þrír fram á heimavelli
Cleveland. Vinni síðarnefnda liðið
í kvöld getur það því tryggt sér
titilinn á heimavelli.
Kemst San Ant-
onio í 2-0?
Valur og Keflavík gerðu
2-2 jafntefli á Laugardalsvellinum
í gær. Keflvíkingar léku glimrandi
vel í fyrri hálfleik og skoruðu
tvö mörk en þær breytingar sem
Willum Þór Þórsson gerði á sínu
liði í hálfleik skiluðu liðinu baráttu-
stigi.
Leikurinn byrjaði fjörlega en
fyrsta markið kom strax á fimmtu
mínútu. Baldur Sigurðsson fékk
boltann inni á teignum og lagði
hann fyrir Þórarin Kristjánsson
sem var dauðafrír vinstra megin í
teignum. Hann gaf sér nægan tíma
og skaut en boltinn fór af Barry
Smith og yfir Kjartan í markinu.
Það var því smá heppnisstimpill á
þessu marki.
Valsmenn létu þetta ekki slá sig
af laginu og sóttu nokkuð stíft.
Ekki tókst þeim þó að skapa sér
almennilegt færi og féllu ítrekað í
rangstöðugildru Keflvíkinga.
Næsta mark var aftur sam-
vinna Þórarins og Brynjars. Barry
Smith seldi sig illa á hægri kant-
inum og Þórarinn komst auðveld-
lega framhjá honum. Hann gaf
háan bolta fyrir og þar var Baldur
mættur og skallaði boltinn í fjær-
hornið. Einkar laglegt mark.
Nokkrum mínútum síðar
áttu Keflvíkingar enn hættu-
lega fyrirgjöf, í þetta sinn frá
Marco Kotilainen, en Guðmundur
Steinarsson skallaði beint í greip-
ar Kjartans Sturlusonar.
Valsmenn sóttu mikið í hálf-
leiknum en þó skotin hafi verið
nokkuð mörg voru þau ómarkviss
og ógnuðu aldrei marki Keflvík-
inga verulega.
Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Vals, gerði tvær breytingar á
liði sínu í hálfleik og endurskipu-
lagði miðjuspilið. Það bar ágæt-
an árangur og heimamenn voru
talsvert betri í síðari hálfleik en
þeim fyrri. Pálmi Rafn fékk ágætt
skotfæri snemma hálfleiksins og
Dennis Bo skallaði rétt yfir mark
Keflavíkur eftir eina af fjölmörg-
um hornspyrnum Vals.
Valsmenn minnkuðu svo mun-
inn á 68. mínútu er Helgi Sigurðs-
son fékk stungusendingu inn fyrir
vörn Keflavíkur. Hann skaut að
marki en Ómar varði, hélt boltan-
um ekki og varamaðurinn Hafþór
Ægir skilaði boltanum í markið.
Hinn varamaðurinn, Daníel
Hjaltason, skoraði svo jöfnunar-
markið skömmu fyrir leikslok.
Hann fékk sendingu frá Dennis
Bo og skallaði boltann laglega í
markið. Keflvíkingar mótmæltu
mjög því skömmu áður hafði Helgi
Sigurðsson handleikið knöttinn en
ekkert var dæmt.
Eftir frábæran fyrri hálfleik
virtist allur vindur vera úr Kefl-
víkingum í þeim síðari. Innkoma
varamannanna í hálfleik hjá Val
breytti öllu og heimamenn höfðu
verðskuldað stig upp úr krafsinu.
„Við erum á heimavelli og mér
fannst leikurinn bjóða upp á að
við tækjum öll þrjú stigin,“ sagði
Willum Þór eftir leik. „En úr því
sem komið var get ég verið stoltur
og hreykinn af mínu liði.“
Hann segir að það hafi verið
slen yfir sínum mönnum í fyrri
hálfleik. „Keflvíkingar beittu
sínu hættulegu skyndisóknum og
refsuðu okkur grimmilega. En
í hálfleik ákváðum við að taka
smá áhættu og opna leikinn. Við
lögðum allt í sölurnar, fækkuðum
í vörn og spiluðum á mörgum
mönnum frammi. Strákarnir eiga
því hrós skilið fyrir að ná að snúa
þessum leik.“
Guðmundur Steinarsson, fyrir-
liði Keflavíkur, var vitanlega ekki
jafn sáttur í leikslok. Keflvíkingar
mótmæltu mikið í leikslok vegna
þess sem átti sér stað skömmu
fyrir jöfnunarmarkið.
„Ég held að það hafi allir séð
að boltinn fór í höndina á Helga,“
sagði Guðmundur. „En það er
alveg ljóst að það lið sem ætlar sér
að vera í efri hluta deildarinnar
má ekki missa 2-0 forystu niður
í jafntefli. En það vill oft gerast
þegar menn komast yfir að þeir
gerast værukærir og ég held að
það hafi orðið okkur að falli hér í
dag.“
Þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Daníel Hjaltason skiptu sköpum fyrir Valsmenn í gær. Þeir komu inn á í
hálfleik og skoruðu sitt hvort markið eftir að Keflvíkingar komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik.
Ísland vann í gær til
gullverðlauna á Smáþjóðaleikun-
um eftir afar skrautlegan lokaleik
gegn Kýpverjum. Þegar ein og
hálf mínúta var eftir misstu lang-
flestir leikmenn Kýpur stjórn á
skapi sínu og réðust á leikmenn
Íslands sem og einn dómara leiks-
ins.
Eftirlitsdómari leiksins blés
leikinn samstundis af og Íslandi
var dæmdur 2-0 sigur.
„Þetta var skrautlegt í meira
lagi,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son landsliðsþjálfari eftir leik.
„Ég hef séð ýmislegt en þetta var
algjörlega fáranlegt. Þetta voru
ekki slagsmál því þeir einfaldlega
réðust á allt og alla. Mínir strákar
vörðu sig og sína en höguðu sér
allir eins og sannir íþróttamenn,“
sagði Sigurður.
Ísland vann alla leiki sína á mót-
inu en fyrir leikinn í gær höfðu
Kýpverjar tapað fyrir Lúxem-
borg. Það þýddi að þeir þurftu að
vinna Ísland með að minnsta kosti
fimmtán stiga mun til að hirða
gullið.
Leikurinn var jafn og spennandi
en Kýpverjar náðu yfirhöndinni í
síðari hálfleik. Mest var forysta
þeirra tíu stig en Íslendingar söx-
uðu á forskotið eftir því sem nær
dró leikslokum. Þegar ein og hálf
mínúta var eftir var munurinn sex
stig og Ísland átti fjögur vítaköst.
Þá trylltust leikmenn Kýpur með
fyrrgreindum afleiðingum.
„Við vorum að ná yfirhöndinni í
leiknum og þeir fundu það,“ sagði
Sigurður. „Þetta var miklu meira
en að vera blóðheitur. Þetta eru
algjörir villimenn og ekki nema
einn eða tveir leikmenn þeirra
sem tóku ekki þátt í þessu. Einn
þeirra tók meira að segja myndar-
lega sveiflu á dómarann. Þá var
þetta auðvitað búið.“
Lætin byrjuðu snemma því
strax á annarri mínútu varð Brent-
on Birmingham fyrir olnbogaskoti
og opnaðist myndarlegur skurður
við annað augað. „Hann var saum-
aður saman í hálfleik og spilaði
allan síðari hálfleikinn. Hann stóð
sig mjög vel.“
Sigurður segir að þrátt fyrir allt
sé gullið sætt. „Ísland hefur ekki
unnið á þessu móti síðan 1993 og
þetta var gott fyrir strákana og
framhald liðsins. En þótt nafnið
gefi annað til kynna er þetta
sterkt mót með mörgum sterkum
leikmönnum. Við spiluðum best,
unnum alla leikina og sigruðum
sanngjarnt á mótinu.“
Kýpverjar réðust á allt og alla