Tíminn - 07.12.1980, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.12.1980, Blaðsíða 9
Sunnudagur 7. desember 1980 Samband lífeyrisþega rikisins 22. nóvember s.l. var stofn- fundur Sambands lífeyrisþega rikis og bæja haldinn i Reykjavik að Grettisgötu 89. 32 fulltrúar sátu fundinn frá 8 lifeyrisdeildum auk stjórnar- manna BSRB og formanna nokk- urra bandalagsfélaga. Undirbún- ingsnefnd var skipuð á þingi bandalagsins i júni 1979, hefur hún haft forgöngu um að gera drög að lögum fyrir nefnt sam- band og hafa lifeyrisdeildirnar haft þau til umfjöllunar. For- maður nefndarinnar var Kristin H. Tryggvadóttir, fræðslufulltrúi. Á fundinum kynnti Guðjón B. Baldvinsson drögin, en þau voru siðan samþykkt einróma með litilsháttar breytingum. Formaður BSRB, Kristján Thorlacius, sem er fulltrúi bandalagsins i stjórn lifeyris- sjóðanna, flutti fróðlegt og itar- legt erindi um lifeyrismál. 1 stjórn sambandsins voru þau kosin Guðjón B. Baldvinsson SFR, formaður, Bjarni Bjarna- son St.Rv., Þóra Timmermann FIS, Magnús Eggertsson LL, Sigurjón Björnsson PFl, Guðrún Soffia Gisladóttir HFl og Magnús Jónsson Kl. (fréttatilkynning) Leikfélagið Grfmnir i Stykkishólmi æfir nú af kappi gamanleikinn Markólfu eftir Dario Fo, sem Signý Pálsdóttir þýddi fyrir félagið. Leikstjóri þessa sprellfjöruga leiks er Jakob S. Jónsson. Ætlunin er að frumsýna verkið i félagsheimili Stykkishólms laugardaginn 20. desember og hafa siðan fleiri sýningar i Hólminum og nágranna- byggðunum yfir jólin og áramótin. Leikarar eru sjö: Elin Jónas- dóttir, Svanhildur Jónsdóttir, Guðrún Hanna ólafsdóttir, Jóhannes Björgvinsson, Vignir Sveinsson, Björgvin Guðmundsson og Guð- mundur Ágústsson. Meðfylgjandi mynd er tekin á æfingu og sýnir vinnukonuna Markólfu (Elinu) koma markgreifanum (Jóhannesi) og furstaymj- unni (Svanhildi) að óvörum inni i skáp. Sölumaður Viljum ráða nú þegar sölumann við ullar- iðnað okkar á Akureyri. Starfið er aðallega fólgið i markaðssetn- ingu i Evrópu og Bandarikjunum. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og/eða reynslu i markaðsmálum og ullar- iðnaði. Umsóknir sendist starfsmannastjóra Iðn- aðardeildar Sambandsins, Glerárgötu 28, Akureyri fyrir 20. des. n.k. Iðnaðardeild Sambandsins Akureyri Þá er það ákveðið. Við kaupum okkur rúm frá HUftCiÖCiIi Síðumúla 4 ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA ^ uRlan b*aut ÍJÓLAMARKAÐURI Leikföng í þúsundatali á jólamarkaðsverði Einnig: Hjólaskautar — Snjóþotur — Barnaskiðasett — Magasleðar o.m.fl. Opið frá kl. 13-18 Laugardaga eins og leyfilegt er. JOLAMARKAÐINN Gnoðarvogi 44 — Glæsibær S. 38860 Gerið góð kaup Vogaveri Jólamarkaðurinn > a Catrin MfcCiQGi Síðumúla 4, sími: 31900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.