Fréttablaðið - 19.06.2007, Side 2
Stöðva ber frekari
gerð uppbyggðra vega á hálend-
inu vegna neikvæðra áhrifa á nátt-
úru, landslag og víðerni. Tak-
marka skal lagningu annarra vega
eins og kostur er. Þetta er mat
þverfaglegs vinnuhóps Land-
verndar sem hefur unnið grunn að
stefnu félagsins um hálendisvegi.
Gagnrýnt er í skýrslu vinnuhóps-
ins að heildstæða sýn „í vegagerð
á hálendinu er ekki að finna í áætl-
unum stjórnvalda“.
Bergur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, segir
afar brýnt að stjórnvöld móti
heildstæða stefnu vegna vega-
gerðar á hálendinu. „Það er mikil-
vægt að ríkisstjórnin noti kjör-
tímabilið til að móta stefnu um
hálendið og vinna landskipulag
sem hefur náttúruvernd að leiðar-
ljósi.“
Bergur segir það sérstakt
ánægjuefni að Kristján L. Möller
samgönguráðherra og Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfisráð-
herra hafi að undanförnu lýst
þeirri skoðun sinni að ekki verði
ráðist í uppbyggingu á Kjalvegi,
sem er sú vegagerð á hálendinu
sem hefur verið mest í umræð-
unni eftir að einkahlutafélagið
Norðurvegur var stofnað 2005.
Félagið hefur það markmið að sem
fyrst verði ráðist í nauðsynlegar
undirbúningsathuganir vegna
vegagerðarinnar sem stytta á leið-
ina á milli Norður- og Suðurlands.
Kristján sagði í pistli í Morgun-
blaðinu nýlega að ekki stæði til að
ráðast í gerð upphækkaðs heil-
sársvegs yfir Kjöl. Kristján bend-
ir á að í umhverfisskýrslu með til-
lögu að tólf ára samgönguáætlun
sem samþykkt var 2007 er engin
samræmd stefna um landnotkun á
hálendinu og þar með ekki vitað
hvernig vegagerð þar verður hátt-
að.
Í skýrslu Landverndar er lögð
áhersla á nauðsyn þess að greint
sé á milli ferðamannavega og
almennra vega bæði hvað varðar
gerð vega og val á staðsetningu.
Almennir vegir skulu þá almennt
byggðir með það að leiðarljósi að
gera vegfarendum og flutninga-
bílum mögulegt að komast fljótt
og örugglega á milli áfangastaða.
Ferðamannavegir skulu hins
vegar þjóna þeim tilgangi að gera
ferðafólki mögulegt að fara í
áföngum um áhugaverð svæði
sem henta til skoðunar á landslagi
og náttúrufari. Vegir á miðhálendi
Íslands eiga fyrst og fremst að
vera ferðamannavegir og mikil-
vægt er að þar verði víðáttumikil
vegalaus svæði, segir í skýrsl-
unni.
Raggi, tókstu við viðurkenning-
unni með hangandi hendi?
Hálendisvegir taldir hafa
neikvæð áhrif á náttúruna
Landvernd vill stöðva frekari gerð uppbyggðra vega á hálendinu og takmarka aðra vegagerð eins og kostur
er. Kallað er eftir heildstæðri áætlanagerð stjórnvalda. Vilja að miðhálendið verði víðfeðmt vegalaust svæði.
Hæstiréttur hefur dæmt
nítján ára pilt, Arnar Val Valsson, í
fimm og hálfs árs fangelsi fyrir til-
raun til manndráps og fleiri smærri
brot. Hæstiréttur þyngdi þar með
fimm ára fangelsisdóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur frá því í nóvem-
ber.
Arnar Valur stakk sautján ára
pilt í bakið með rúmlega fjórtán
sentimetra löngum veiðihnífi í
afmælisveislu fórnarlambsins í
maí í fyrra. Arnar hafði þá haft í
hótunum við hann allan daginn
með símskilaboðum og símtölum.
Arnar mætti í afmælisboð fórn-
arlambsins í félagi við aðra, einn
þeirra var vopnaður hafnabolta-
kylfu. Við komuna reyndi faðir
fórnarlambsins að hrekja mennina
á brott en þeir létu ekki segjast.
Eftir nokkur átök fyrir utan reyndi
maður sem ók Arnari á staðinn að
aka einn afmælisgestanna niður. Í
kjölfarið stakk Arnar afmælis-
barnið í bakið og flúði af vett-
vangi.
Hnífsblaðið gekk inn í bakið, á
milli hryggtinda, inn í mænugöng
og skaðaði taugar. Fórnarlambið
hefur ekkert getað unnið eftir árás-
ina auk þess að vera með skerta
líkamskrafta.
Arnar játaði verknaðinn við yfir-
heyrslur, en sagði jafnframt að
hann „vildi að [fórnarlambið] hefði
drepist“. Hann var dæmdur til að
greiða 1,7 milljónir í miskabætur.
Auk þess var hann dæmdur fyrir
innbrot í bíl og bílstuld.
Yfir 700 manns voru
handteknir og 31 barni
bjargað þegar flett var
ofan af viðamiklum
barnaklámhring á net-
inu að því er bresk yfir-
völd greindu frá í gær.
Barnaklámhringur-
inn var rakinn til spjall-
rásar á netinu sem kall-
aðist „Börn, ljósið í lífi
okkar“ þar sem finna
mátti myndir og mynd-
skeið af börnum sem
sættu grófri kynferðis-
legri misnotkun. Dæmi
voru um að hægt var að horfa á
misnotkunina á netinu á sama tíma
og hún átti sér stað.
Sum barnanna voru aðeins nokk-
urra mánaða gömul. Rúmlega
fimmtán af börnunum sem var
bjargað voru í Bretlandi.
Yfirvöld í 35 löndum tóku þátt í
rannsókn málsins sem
stóð í rúma tíu mán-
uði. Ekki var greint
frá um hvaða önnur
lönd væri að ræða
nema Kanada,
Ástralíu, Bandaríkin
og Bretland.
Rannsókn málsins
hófst eftir að yfirvöld
í Kanada sendu bresk-
um yfirvöldum upp-
lýsingar í ágúst síðast-
liðnum um spjallrásina
sem 27 ára gamall
Breti, Timothy David Martyn Cox,
var skráður fyrir.
Við rannsókn á tölvu Cox fund-
ust 75.960 ósæmilegar myndir auk
sannana um að hann hefði sent
11.491 mynd til annarra notenda
spjallrásarinnar.
Björguðu 31 barni
Hálfþrítugur maður
hefur fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur verið ákærður fyrir að hafa
í maí 2005 þvingað tvær mann-
eskjur út úr bílum sínum með
ofbeldi og hótunum og ekið
bílunum á brott.
Ók hann á miklum hraða allt til
Mosfellsbæjar. Þar missti hann
stjórn á bílnum á hringtorgi og ók
á tré. Við það stöðvaði kona sem sá
óhappið bíl sinn, en maðurinn beið
ekki boðanna heldur dró hana út
úr bílnum, settist upp í hann og ók
á brott. Konan meiddist nokkuð.
Krafist er refsingar yfir mannin-
um, en til vara að hann verði
vistaður á viðeigandi stofnun.
Reif fólk úr bíl-
um og ók burt
Fyrsta íslenska
sendiráðið sem gefur út vega-
bréfsáritanir til ferðalaga á
Schengen-svæðinu er sendiráð
Íslands í Peking í Kína.
Sérstök deild sér um útgáfu
áritananna, og tók hún til starfa
15. júní síðastliðinn. Fyrstu
áritanirnar fékk átján manna
kínversk sendinefnd sem á að
ræða fríverslun milli landanna,
samkvæmt tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu.
Frá því Íslendingar hófu
þátttöku í Schengen-samstarfinu
hafa allar vegabréfsáritanir
Íslands verið gefnar út af
sendiráðum annarra ríkja.
Sendiráð í Kína
gefur út áritanir
Lögreglan í Borgar-
nesi stöðvaði níu ökumenn
grunaða um akstur undir áhrifum
lyfja frá fimmtudegi þar til í
gærkvöldi. Átta af níu voru að
koma af Bíladögum á Akureyri, að
sögn lögreglu.
Lögreglan stöðvaði um kvöld-
matarleytið í gær karlmann á
þrítugsaldri sem grunaður er um
að hafa ekið undir áhrifum
kókaíns og kannabisefna. Hann
var stöðvaður vegna hraðaksturs.
Tólf aðrir ökumenn voru
stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í
gær, sá sem hraðast ók var
mældur á 146 kílómetra hraða.
Átta tilvik tengd
Bíladögum
Evrópusam-
bandið og Bandaríkin gáfu í gær
fyrirheit um að hefja á ný beinan
efnahagsstuðning við Palestínu í
kjölfar þess að forseti landsins,
Mahmoud Abbas, skipaði nýja
stjórn á sunnudaginn sem Hamas-
samtökin eiga ekki aðild að.
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Condoleezza Rice, hafði
samband við nýjan forsætisráð-
herra Palestínu, Salam Fayyad, í
gær og greindi honum frá því að
Bandaríkin hefðu aflétt efnahags-
legri og pólitískri einangrun
Palestínu, skref sem ætlað er að
styrkja hina nýju stjórn í sessi og
stöðu Abbas.
Efnahagsaðstoð við Palestínu
var hætt eftir að Hamas, sem
ESB og Bandaríkin skilgreina
sem hryðjuverkasamtök, vann
óvæntan kosningasigur á Fatah-
hreyfingunni fyrir rúmu ári.
Einangrun Pal-
estínu aflétt