Fréttablaðið - 19.06.2007, Page 19
[Hlutabréf]
Gengi hlutabréfa í bandaríska ál-
risanum Alcoa, sem meðal annars
rekur álver á Reyðarfirði, hækk-
aði um 2,8 prósent í kauphöllinni í
Frankfurt í Þýskalandi í gær eftir
að sá orðrómur komst á kreik að
ástralska náma- og álfyrirtækið
BHP Billiton væri að undirbúa 40
milljarða dala, tæplega 2.500 millj-
arða króna, yfirtökutilboð í álris-
ann.
Fréttaveitan Bloomberg segir
yfirtökuáætlum BHP Billit-
on skammt á veg komna og hafi
stjórnendur námafyrirtækisins
ekki átt fund með Alcoa um málið.
Bloomberg segir nokkuð líklegt
að yfirtökutilboð verði lagt fram,
ekki síst eftir forstjóraskipti hjá
BHP Billiton í október en þá stíg-
ur Charles Goodyear úr sæti for-
stjóra fyrir Marius Kloppers, sem
þykir mjög jákvæður fyrir yfir-
tökunni. Goodyear var aftur á móti
andvígur þess háttar skrefum.
Alcan í yfirtöku?
Marel hefur selt kínverska mat-
vælaframleiðandanum Pacif-
ic Andes upplýsingakerfi sem
notað verður í nýrri verksmiðju
fyrirtækisins í Quingdao-héraði í
Kína. Marel mun í kjölfarið opna
skrifstou í Kína og leggja aukna
áherslu á innreið sína á markað-
inn.
Kerfið frá Marel er fram-
leiðslueftirlitskerfi, sem miðar
að því að ná sem mestri nýt-
ingu á hráefni við framleiðslu á
unnum fiskafurðum.
Pacific Andes hefur höfuð-
stöðvar í Hong Kong og er eitt af
stærstu fiskveiði- og vinnslufyr-
irtækjum heims. Í verksmiðju
fyrirtækisins á Quingdao-hér-
aði munu 3.200 manns vinna við
kerfið sem miðar að því að ná
sem mestri nýtingu á hráefni við
framleiðslu á unnum fiskafurð-
um. Með innleiðingu á búnað-
inum í haust, sem er fimmta og
nýjasta kynslóð hugbúnaðarins
af þessari gerð frá Marel, geta
stjórnendur sömuleiðis fylgst
náið með framleiðsluferlinu frá
degi til dags, brugðist skjótt við
því sem má fara betur og aukið
bæði afköst og nýtingu.
Marel selur í Kína
Sumarskóli TBR 2007
-nýtt skipulag!
Sumarskóli TBR hefur verið starfræktur í 20 sumur. Þetta er alhliða íþróttaskóli og eru fjölmargar íþróttagreinar á
dagskrá. Badmintoníþróttin skipar þó veglegan sess, enda er hún aðalíþrótt TBR. Við starfrækjum íþróttaskóla
fyrir 6-13 ára börn í sumar. Skipt er í hópa eftir aldri.
Á námskeiðinu er stefnt að því að kynna
nemendum helstu grunnatriði
badmintoníþróttarinnar.Kennslan fer bæði
fram á leikjaformi og í formi tækniæfinga
og skiptist erfiðleikastig þeirra eftir aldri
og getustigi þátttakenda. Einnig kynnast
nemendur helstu leikreglum.
Námskeiðið er fjölbreytt, spennandi og
skemmtilegt og við nýtum okkar frábæru
staðsetningu í Laugardalnum, auk þess að
fara í stuttar ferðir með strætó út fyrir
dalinn. Á hverju námskeiði er m.a. farið í
Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn, í sund í Laugardalnum, ratleik í Elliðaárdalnum, Nauthólsvík heimsótt o.s.frv.
Hverju námskeiði lýkur með hátíðardagskrá með ýmsum skemmtilegum viðburðum.
Boðið verður upp á bæði heils- og hálfsdagsvistun, frá 9-13 og 9-16. Möguleiki er á gæslu frá 8-9 og frá 16-17.
Boðið er upp á léttan hádegisverð fyrir börn sem eru í heilsdagsvistun.
Þjálfarar eru m.a. Skúli Sigurðsson íþróttakennari, Broddi Kristjánsson íþróttakennari, Tinna Helgadóttir
badmintonþjálfari, Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari, Jónas Huang badmintonþjálfari.
Námskeið 2 25. júní - 6. júlí
Námskeið 3 7. ágúst - 20. ágúst
Öll börn í Sumarskólanum fá jafna viðurkenningu fyrir þátttöku og verðlaunapening
eins og stefna ÍSÍ í þjálfun barna og unglinga segir til um.
Verð er kr. 8.000 fyrir námskeið kl. 9-13
og kr. 15.000 fyrir námskeið kl. 9-16.
Upplýsingar og innritun í síma 581-2266.
TENNIS- OG BADMINTONFÉLAG REYKJAVÍKUR
Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík, Sími: 581-2266 tbr@tbr.is www.tbr.is
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
SÉRFERÐIR
Verð á mann í tvíbýli
149.900 kr.
Innifalið: Flug og skattar, gisting í tíu
nætur ásamt morgunverði, allar rútu- og
skoðunarferðir og íslensk fararstjórn.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
29. ágúst–8. september
Andalúsía á Spáni býður upp á fagurt landslag, fjölskrúðugt mannlíf og
dásamlega matargerð. Fararstjórinn sem er Þórarinn Sigurbergsson,
þekkir hvern stokk og stein á þessu stórmerka svæði.
Ferðalýsing: Granada: Alhambra-höllin sem og listigarðar Alhambra og
dómkirkjan. Flamenco-kvöld fyrir þá sem vilja. Sevilla, höfuðborg
Andalúsíu: La Giralda bæjarturninn, ein stærsta gotneska dómkirkja
Evrópu, konunglega borgarvirkið og ein best varðveitta mudéjar-höllin á
Spáni. Einnig dagsferð í La Doñana þjóðgarðinn sem er engu líkur.
Cordóba: Undurfögur borg sem hefur m.a. að geyma næststærstu
mosku í heimi. Alcoy: Hin einstaka fjallaborg í Alicante-héraði heimsótt.
Boðið upp á ógleymanlegan
sælkerakvöldverð.
Lokadagur: Farið í skoðunar-
ferð um Alicante-hérað,
fjalllendi og strendur. Flogið
heim um kvöldið.
Lágmarksþátttaka er
20 manns.
Andalúsía
Í fótspor Márans