Fréttablaðið - 19.06.2007, Page 21
Þórsteinn Ágústsson, eigandi heilsuvöru-
verslunarinnar Góð Heilsa á horni Njálsgötu og
Klapparstígs, hefur lifað mjög heilsusamlegu lífi
rúmlega hálfa ævi sína og þó er hann ekki nema
þrjátíu og tveggja ára.
Aðeins sextán ára gamall byrjaði Þórsteinn að
stunda hlaup og jóga og hefur ekki hnikað af þeirri
leið síðan.
„Það má segja að ég hafi tekið alla þessa lifnað-
arhætti upp á sama tíma. Til dæmis kom matar-
æðið svolítið í kjölfar jógans og hugleiðslunnar,
enda tengjast hugur og líkami á ákveðinn hátt,“
segir Þórsteinn.
Í dag skrifar Þórsteinn sitt góða heilsufar mest-
megnis á jóga og hreyfingu, en ekki síður á hollt
og gott mataræði. Hann hefur verið grænmeti-
sæta frá sextán ára aldri og borðar hvorki kjöt né
fisk.
„Ég byrja alltaf daginn á því að útbúa mér hrist-
ing sem inniheldur meðal annars frosin ber,
banana, hörfræ, mysuprótein og svo einhvern
ávaxtasafa,“ segir Þórsteinn og bætir því við að af
þessum góða drykk verði hann mettur fram að
hádegi „Þá fer ég oft á einhvern af þessum græn-
metisstöðum sem eru í grennd við verslunina til
dæmis Garðinn sem er við hliðina á henni eða aðra
nærliggjandi staði.“
Þórsteinn hleypur meira en flestir meðalmenn
og konur, eða um það bil sex sinnum í viku, allt frá
fimm og upp í þrjátíu kílómetra í senn. Spurður að
því hvort hann telji skokkið ávanabindandi svarar
þessi hressi maður umbúðalaust að svo sé „Það er
engin spurning. Þetta er endorfín beint í æð.“
Endorfín beint í æð
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur