Fréttablaðið - 19.06.2007, Qupperneq 26
19. JÚNÍ 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið hola í höggi
Golfsamtök fatlaðra á Íslandi
leita stöðugt leiða við að bæta
þjónustu sína við félagsmenn.
Nýlega tóku þau í notkun bíl
sem auðveldar hreyfihömluð-
um að leika golf án fyrirstöðu.
„Við erum búin að fjárfesta í raf-
magnsbíl, sem auðveldar fólki sem á
erfitt með gang að leika golf,“ segir
Hörður Barðdal, formaður GSFÍ,
Golfsamtaka fatlaðra á Íslandi,
sem standa meðal annars fyrir
golfkennslu fyrir fatlaða í Básum.
„Markmiðið er að breiða út svokall-
að sitjandi gólf, enda ætti hreyfi-
hömlun ekki að vera fyrirstaða
fyrir þátttöku í þessari íþrótt.“
Rafmagnsbíllinn er því nýjasta
útspil Golfsamtaka fatlaðra sem
hafa verið í stöðugum vexti síðan
þau voru stofnuð árið 1995. Þá var
ekki margt í boði fyrir fatlaða golf-
spilara hérlendis og þurfti Hörður,
sem átti frumkvæði að stofnun
þeirra, að leita fyrirmynda erlend-
is frá.
„Þegar ég fór að kanna málið
í byrjun níunda áratugarins, var
ekki mikið um að vera og ég hélt
í fyrstu að ekki væru til sambæri-
leg samtök úti í heimi,“ rifjar hann
upp.
„Nánari eftirgrennslan leiddi
þó í ljós að til voru golfsamtök
fatlaðra, sem kallast The One
Armed Golfer´s Society, og höfðu
starfað alveg frá árinu 1932. Um
það leyti sem ég var að spá í spilin,
var síðan farið að stofna samtök
víðsvegar um heim. Í Svíþjóð árið
1992, stuttu áður á Englandi, og í
Þýskalandi árið 1995, eða sama ár
og íslensku samtökin voru stofn-
uð.“
Forsvarsmenn íslensku sam-
takanna sátu ekki auðum hönd-
um eftir stofnunina, heldur gerðu
sér lítið fyrir og sendu keppendur
á alþjóðlegt golfmót fatlaðra sem
haldið var í Swinton á Englandi
árið 1998. Þá kepptu Hörður og
Gunnar Hjartarson, sem er jafn-
framt þekktur fyrir þátttöku sína
í biljarð, fyrir Íslands hönd. Óhætt
er að segja að félagarnir hafi stað-
ið sig með prýði, þar sem Gunnar
náði fyrsta og öðru sæti. Eru þá
óupptalin innanlandsmótin sem
samtökin hafa staðið fyrir nánast
árlega frá 1995.
„Þetta sýnir bara að golf og
fötlun hafa lengi átt samleið,“
segir Hörður. „Fötlun er því engin
fyrirstaða og við tökum vel á móti
öllum sem sýna þessari íþrótt
áhuga. Gildir einu um hvers konar
fötlun er að ræða, líkamlega eða
andlega, þar sem við reynum
að sníða golfkennsluna út frá
sérþörfum hvers og eins. Sem
stendur erum við með hóp sem
mætir reglulega í kennslu og telur
sex manns svo við getum enn bætt
við okkur.“
Golfkennsla fyrir fatlaða fer
fram í Básum alla miðvikudaga
frá klukkan fjögur til sex og
byrjar í janúar og stendur yfir
fram til september. Nánari upp-
lýsingar undir liðnum „klúbbar“ á
síðunni www.golf.is .
roald@frettabladid.is
Sitjandi golf að breiðast út
Hörður Barðdal, formaður GSFÍ, hefur unnið hörðum höndum að því að bæta þjónustu við fatlaða golfspilara.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýr leikur frá Tiger Woods er kominn á markaðinn. Hann heitir Tiger
Woods PGA Tour 07 og er gefinn út hér á landi af Senu. Í leiknum er
hægt að spila sem bestu golfarar heims en einnig er hægt að búa til eigin
persónur, til dæmis sjálfan sig. Keppt er á völlum sem eru til í raun
og veru og margir möguleikar eru fyrir hendi í leiknum. Meðal annars
er hægt að keppa á öllum helstu stórmótum sem fram fara í golfi og
einnig hægt að spila sig upp og spila að lokum við Tiger sjálfan. Leikur-
inn inniheldur nýtt sveiflukerfi sem auðveldar leikmönnum að ná betri
og nákvæmari höggum.
Stafræn sveifla með Tiger Woods
Eins og sést á myndinni er öll grafík í tölvuleiknum mjög góð.
www.cargobilar.is
Sendibílar til leigu
Krefst ekki meiraprófs réttinda
Hjá Icefin kaupirðu milliliðalaust af framleiðanda sem tryggir þér gæðavöru á betra verði.
• Útivistarjakki
• Buxur
• Flís undirföt
• Flís peysa
• Bakpoki
• Hanskar
• Húfa
Outdoor 06 Útivistarpakkinn
...alklæðnaður fyrir aktíft fólk
Allur pak
kinn!