Fréttablaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 30
 19. JÚNÍ 2007 ÞRIÐJUDAGUR6 fréttablaðið hola í höggi Ragnhildur Sigurðardóttir at- vinnukylfingur hefur spilað golf frá 1983 og veit að hverju konur í golfi þurfa að huga. Hún getur því gefið nokkur góð ráð sem ágætt er að hafa í huga. 1. Mundu að þú ert í golfi til að hafa gaman af því Golf er þannig samansett að það kallar fram bæði bestu og verstu hliðar fólks. Þegar öldudalirnir eru djúpir er mikilvægt að rifja upp að þetta er nú bara leikur með öllum þeim áskorunum sem í honum felast. 2. Gerðu pútterinn að uppáhalds- kylfunni í pokanum Pútterinn ætti að vera besti vinur þinn. Hann getur orðið það ef þú sinnir honum. Púttaðu í hvert skipti áður en þú ferð að spila og áður en þú ferð á æfingasvæðið að slá, þannig eykur þú líkurnar á betra skori og bjartara brosi. 3. Kláraðu sveifluna og notaðu fæturna Við konurnar erum ekki jafn sterkar líkamlega og karlmenn. Því er mikilvægt fyrir okkur að nota sterkustu vöðvana okkar sem eru í fótunum. Notaðu fæt- urna og endaðu í jafnvægi þannig að mjaðmir snúi í átt að lending- arstað boltans. 4. Spilaðu eins margar holur og henta þér Þegar tíminn er knappur og mikið að gera (á stóru heimili), finnst mér betra að spila þrjár holur heldur en ekki neitt. Ég fer þá, (oft á kvöldin) og tek stundum fleiri en einn bolta ef enginn er fyrir aftan mig og kem heim end- urnærð eftir fjörutíu mínútur á golfvellinum. 5. Stofnaðu spilahóp með vinkon- um þínum Það að spila með vinum sínum er hvetjandi og að eiga fastan spila- tíma einu sinni í viku getur gert gæfumuninn. emilia@frettabladid.is Pútterinn í uppáhaldi Ragnhildur segir að mestu skipti að hafa gaman af golfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL Sigurpáll Geir Sveinsson, í golfklúbbn- um Kili í Mosfellsbæ, hefur verið atkvæðamikill kylfingur á undanförn- um árum. Í fyrrahaust vann hann sinn fyrsta keppnisrétt inn á atvinnumanna- mót erlendis. Það var á sænsku móta- röðina í golfi og hóf Sigurpáll keppni í vor. Sigurpáll hefur æft golf frá þrettán ára aldri, það er 1988. „Það þótti ungt þá en í dag er ekki óeðlilegt að börn byrji fimm ára gömul í golfi,“ segir Sigurpáll og bætir því við að hann hafi strax fundið að þetta ætti vel við hann. „Sennilega er ástæðan sú að einstaklingsíþróttir henta mér betur en hópíþróttir. Svo fannst mér heillandi að slá litla kúlu út í loftið og reyna að vera eins ná- kvæmur og mögulegt er.“ Spurður hversu mikið hann æfi að stað- aldri, segir Sigurpáll: „Yfir háveturinn, þegar engin mót eru í gangi, hef ég verið að æfa þrisvar til fjórum sinnum í viku í eina til tvær klukkustundir í senn. Í mars hefst venjulega undirbúningstímabilið og þá æfi ég og spila að meðaltali í 24 tíma á viku.“ Þegar keppnistímabilið hefst æfir Sigurpáll í tvo til fjóra klukkutíma á dag, stundum meira og stundum minna. „Það skemmtilegasta við golfið er að þar er maður bara einn að hugsa um sig og sitt golf. Svo eru það náttúrulega þessi fullkomnu högg inn á milli sem drífa mann áfram,“ segir Sigurpáll og bætir við: „Félagsskapurinn í kringum golfið er líka einstakur.“ Sigurpáll viðurkennir að stundum fái hann nóg af golfi. „Þá reyni ég að taka eina viku í frí en þá er maður orðinn hungraður í að fara að æfa aftur og verða betri. Það er nauðsynlegt að taka sér pásu inn á milli því of mikið golf getur haft slæm áhrif á get- una.“ Sigurpáll hefur orðið Íslandsmeistari þrisvar sinnum, árin 1994, 1998 og 2002. „Svo hef ég orðið Íslandsmeistari með sveit- unum mínum; Golfklúbbi Akureyrar árið 1998 og með Kili í Mosfellsbæ árin 2005 og 2006,“ segir Sigurpáll sem hefur sigrað á mörgum mótum á íslensku mótaröðinni um árin. „Í fyrra vann ég svo minn fyrsta at- vinnumannamótsrétt erlendis. Það var úr- tökumót fyrir sænsku mótaröðina þar sem ég mun spila að miklu leyti í sumar. Ég hef farið ágætlega af stað og komist í gegnum alla niðurskurði en það vantar herslumun- inn í púttunum til að ég geti blandað mér í baráttuna um sigur.“ Árið í ár er það fyrsta sem Sigurpáll keppir mikið erlendis sem atvinnumaður. „Það verða líklega 7-9 mót hjá mér erlendis og 5-6 heima á Íslandi.“ Sigurpáll svarar þeirri spurningu ját- andi hvort það séu miklir peningar í golf- inu. „Það má segja að þetta sé deildaskipt. Birgir Leifur er að spila í fyrstu deild í Evr- ópu þar sem sigur í móti getur gefið marga tugi milljóna. Sjálfur er ég að spila í þriðju deild og er í raun að nota hana til að undir- búa mig fyrir úrtökumót í fyrstu deildina,“ segir Sigurpáll sem miðar nú allar æfingar sínar og markmið við að vera í formi í sept- ember til að komast í fyrstu deildina í Evr- ópu. sigridurh@frettabladid.is Stefnir á fyrstu deildina í Evrópu Sigurpáll Geir Sveinsson hóf keppni á sænsku mótaröðinni í golfi í vor og hefur farið ágætlega af stað. Enn vantar hann þó herslumuninn í púttunum til að blanda sér í toppbaráttuna í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Fiat Grande Punto Númer 1 í Evrópu Frábær bíll – punktur! • Stíll. Hannaður í anda Maserati af Giorgetto Giugiaro. • Eyðsla. Aðeins 6 lítrar á hverja 100 km í blönduðum akstri. • Öryggi. 5 stjörnur í Euro Ncap. 6 loftpúðar. Malarhöfða 2a • 110 Reykjavík Sími 570 9900 • www.fiat.is Opið: virka daga frá 8–18 laugardaga frá 12–16 Saga er umboðsaðili fyrir Alfa Romeo, Ducati, Ferrari, Fiat og Maserati Fiat PuntoFiat Ducato Fiat Scudo Fiat MultiplaFiat Dobló Fiat Panda Fiat Croma Þjónusta alla leið! Varahlutaþjónusta og eigið verkstæði á staðnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.