Fréttablaðið - 19.06.2007, Side 40
Sautjándi júní hefur yfir-
leitt verið hulinn fár-
viðrum, grenjandi rign-
ingu eða jarðskjálftum
af stærri gerðinni. Hing-
að til hefur yfirleitt
verið rætt um svokall-
að „17.júní“-veður sem samanstend-
ur af góðum blæstri, smáskúrum
og blautum fötum. En á sunnudag-
inn var annað upp á teningnum,
sólin samgladdist þessari litlu þjóð
og lék við hvurn sinn fingur. Meira
að segja hinn ágæti vindur lét lítið
fyrir sér fara og fánarnir knúsuðu
því bara fánastangirnar í staðinn
fyrir að líta út fyrir að vera á stöð-
ugum flótta.
Þjóðhátíðardagur Íslendinga er
eflaust ekki frábrugðinn þjóðhátíð-
ardögum annarra þjóða. Og við stát-
um í það minnsta af alvöru dagsetn-
ingu, annað en Bretarnir. Kannski
ber það líka vott um þann byltingar-
anda sem liggur einhvers staðar
djúpt í hjörtum þjóðarinnar að hann
ber upp á afmæli lýðveldishetjunnar
Jóns Sigurðssonar, svona eins og hjá
kommúnísku löndunum .
Sautjánda júní fylgir yfirleitt
mikið þramm í miklum mann-
fjölda á litlu svæði. Að ógleymd-
um biðröðum í hvers kyns hoppu-
kastala styrkta af stórfyrirtækjum
á borð við Kók og Svala. Og þá má
ekki gleyma blöðrunum og öllu hinu
glingrinu sem fylgir auk lagsins
góða en það skal sungið við hvert
tækifæri. Mestu máli skiptir þó
fyrir smáfólkið að nýta sér þennan
auka nammmidag og fá foreldrana
til að festa kaup á sem mestum
sykri. Sykurflos, snuð og gosdrykk-
ir. En vandamálið er hins vegar að á
þessum ágæta degi sitja börnin hins
vegar ekki fyrir framan viðtækin og
geta einbeitt sér algjörlega að góð-
gætinu heldur er svo margt sem
dreifir huganum. Því eru það for-
eldrarnir sem fara hvað verst út úr
þessu öllu enda tímir enginn núorð-
ið að henda peningunum. Og full-
orðna fólkið neyðist því til að klára
brjóstsykurinn í tudduformi og
bleika sykurinn. Drekka allt kókið á
meðan börnin hoppa frá sér allt vit
og á endanum eru það því þau sem
liggja óvíg eftir af sykursjokki á
meðan börnin heimta aðra blöðru og
annan fána.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Bjóðum nú frábært tilboð í 2 vikur
30. júní eða 1 eða 2 vikur 7. júlí á
allra síðustu sætunum til Rhodos,
eyju sólarinnar. Þú bókar flugsæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir. Gríptu tæki-
færið og njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað.
Stökktu til
Rhodos
Verð kr.
49.990 í viku
/59.990 í 2 vikur
Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna í
herbergi/stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur.
Stökktu tilboð 30. júní og 7. júlí.
30. júní eða 7. júlí
frá kr. 39.990
Allra síðustu sætin
Verð kr.
39.990 í viku
/49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur.
Stökktu tilboð 30. júní og 7. júlí.