Fréttablaðið - 19.06.2007, Page 46
Franska hljómsveitin Air, skip-
uð þeim Nicolas Godin og Jean-
Benoît Dunckel, heldur tónleika
í Laugardalshöll í kvöld. „Þeir
stefna á að vera hérna í tvo daga.
Þeir eru mjög áhugasamir um Ís-
land og óskuðu sérstaklega eftir
því að fara í Bláa lónið,“ segir
Eldar Ástþórsson hjá Hr. Örlygi.
Eftir tónleikana hér á landi er
ferðinni síðan heitið til Rússlands.
Enn eru til miðar í stæði á tónleika
í Höllinni en uppselt er í stúku og
palla. Miðaverð er 3900 krónur.
Air í Lóninu
Spjallþáttadrottningin Oprah
Winfrey er valdamesta mann-
eskjan í skemmtanaiðnaðinum
samkvæmt bandaríska fjármála-
tímaritinu Forbes. Tímaritið birt-
ir árlega lista yfir valdamestu
stjörnurnar og er hann reikn-
aður eftir tekjum viðkomandi
stjarna á árinu, fjölmiðlaathygli
þeirra, hversu oft mynd af þeim
birtist á forsíðu og ýmsum fleiri
kúnstum.
Oprah hefur töluverða yfir-
burði í ár því hún þénaði alls 260
milljónir dollara á síðasta ári,
auk þess sem nafn hennar fær
flestar niðurstöður þegar það er
slegið inn í Google. Þá var hún
einnig sú stjarna sem birtist oft-
ast á sjónvarpsskjánum. Tiger
Woods varð í öðru sæti í ár og
Madonna þriðja. Athygli vekur
að efsti maður listans frá því í
fyrra, Tom Cruise, fellur niður í
áttunda sæti.
Söngkonan Madonna er há-
stökkvari ársins en hún er í þriðja
sæti listans eftir vel heppnaða
tónleikaferð um heiminn í fyrra-
sumar sem færði hennar mikl-
ar tekjur. Johnny Depp er í sjötta
sæti eftir velgengni Pirates of the
Caribbean og þá vekur athygli að
leikarar Grey´s Anatomy, vinsæl-
asta sjónvarpsþáttar Bandaríkj-
anna, sitja í ellefta sæti.
Af öðrum stjörnum má nefna
að skötuhjúin Brad Pitt og Ang-
elina Jolie eru í fimmta og
fjórtánda sæti, knattspyrnumað-
urinn David Beckham er í því
fimmtánda og Simon Cowell er í
21. sæti. Paris Hilton, sem var í
56. sæti á listanum í fyrra, kemst
ekki á topp 100 í ár.
Oprah er valdamesta stjarnan
„Þetta voru klárlega þær öfga-
fyllstu og dramatískustu aðstæð-
ur sem ég hef spilað við,“ segir
kylfingurinn Gunnlaugur Jónas-
son sem tók þátt í skemmtilegri
tilraun sem nokkrir golfáhuga-
menn gerðu á toppi Eyrarfjalls á
Vestfjörðum í vikunni. Þá slógu
þeir golfkúlu yfir gilið Bakka-
skemmu sem samkvæmt óform-
legum mælingum er rétt um 200
metrar á lengd.
Höggið var slegið á toppi Eyr-
arfjalls, sem er 714 metrar á hæð.
Eftir því sem fram kemur á vef
Bæjarins bestu á Ísafirði er ekki
vitað til þess að golf hafi verið
leikið í jafn mikilli hæð á Íslandi.
„Þetta var alveg magnað,“ sagði
Gunnlaugur þegar hann lýsti upp-
lifuninni. „Veðrið var stillt og ekki
mikill vindur. Aðstæður voru eins
og best verður á kosið.“
Gunnlaugur segir öruggt að
hann muni spreyta sig aftur í við-
líka víðáttu. „Það er æðislegt að
spreyta sig í svona náttúru. Það er
aldrei að vita nema að þetta verði
upphafið á einhverju trendi,”
sagði Gunnlaugur og glotti við
tönn.
Uppákoman á Eyrarfjalli var
liður í kynningarfundi um kláf
sem brátt verður reistur á fjall-
inu. Þess ber að geta að þrátt
fyrir mikinn þrýsting kylfing-
anna stendur ekki til að reisa
golfvöll uppi á fjallinu.
Spiluðu golf á toppi Eyrarfjalls
Pilluglas sem kóngurinn sjálf-
ur Elvis Presley notaði seldist á
tæpar 164 þúsund krónur í Banda-
ríkjunum. Gullhúðuð byssa sem
var einnig í eigu Presleys seldist
jafnframt á 1,8 milljónir króna.
„Við ætluðum að selja glas-
ið með pillunum í en lögreglan í
Los Angeles bannaði okkur það
þannig að því miður urðum við
að fjarlægja pillurnar,“ sagði
Darren Julien sem stjórnaði upp-
boðinu.
Regnhlíf sem Marilyn Monroe
notaði á ljósmynd sem var tekin
af henni árið 1949 seldist á um 2,6
milljónir og vegabréf leikstjór-
ans Alfreds Hitchcock fór á um
1,2 milljónir. Regnhlífin verður
höfð til sýnis á safni í Írlandi, að
sögn eigandans Williams Doyle.
Pilluglas Presley selt
Kvenréttindadagurinn er í dag og
að því tilefni munu konur fagna
um allt land enda var það á þess-
um degi árið 1915 sem konur fengu
kosningarétt. Þeir sem styðja jafn-
rétti eru hvattir til að sýna stuðn-
ing í verki með því að gera eitt-
hvað bleikt í dag. Hvort sem það
er að klæðast einhverju bleiku,
flagga einhverju bleiku eða jafn-
vel borða eitthvað bleikt.
Ýmsar uppákomur verða um
alla borg sem meðal annars Kven-
réttindafélagið stendur fyrir. „Við
verðum með kvennasögugöngu
um Kvosina, undir leiðsögn Krist-
ínar Ástgeirsdóttur sagnfræð-
ings og hefst hún klukkan kort-
er yfir fjögur við Kvennaskólann
í Reykjavík,“ segir Þorbjörg Inga
Jónsdóttir hjá Kvenréttindafélagi
Íslands. „Einnig verðum við með
Kvennamessuna í Laugardal eins
og á hverju ári og það er gert til að
minnast þeirra kvenna sem mættu
þarna og þvoðu þvotta. Þetta voru
oft konur sem unnu mikla erfiðis-
vinnu í gegnum aldirnar án þess
að bera mikið úr býtum,“ segir
Þorbjörg og nefnir einnig útgáfu
blaðsins 19. júní. „Á hverju ári er
ráðinn nýr ritstjóri að blaðinu og
í ár er það Steingerður Steinars-
dóttir.“
Margt fleira er á dagskrá í dag
og má þar á meðal annars nefna
afhendingu Bleiku steinanna en
það eru hvatningarverðlaun Fem-
ínistafélagsins. Auk þess verður
opið hús á Jafnréttisstofu, Borg-
um á Akureyri og Ungliðahóp-
ur Femínistafélagsins kemur
saman á Kaffi Cultura á Hverf-
isgötu. Fulla dagskrá má finna
á heimasíðu Femínistafélagsins,
www.feministinn.is.
Bærinn málaður bleikur
Atorka Group hf., kt. 600390-2289, hefur gefið
út lýsingu vegna skráningar skuldabréfa sem
Kauphöll Íslands hefur samþykkt og gert aðgengi-
lega almenningi frá og með 19. júní 2007.
Eftirfarandi skuldabréfaflokkur hefur verið gefinn út:
Skuldabréfaflokkur að fjárhæð kr. 2.500.000.000
var gefinn út þann 16. maí 2007 og er auðkenni
flokksins í Kauphöll Íslands ATOR 07 2. Skuldabréfin
verða skráð í Kauphöll Íslands þann 19 júní 2007. Hver
eining bréfanna er kr. 5.000.000. Skuldabréfin eru
óverðtryggðogskulubera3ja mánaða REIBORvexti auk
1,95% álags. Höfuðstóll bréfanna skal endurgreiðast
þann 16. janúar 2009, en vaxtagjalddagar skulu vera
fjórum sinnum á ári, á þriggja mánaða fresti, sá fyrsti
var þann 16. júlí 2007.
Lýsingu er hægt að nálgast hjá útgefanda Atorka
Group hf., Hlíðasmára 1, 200 Kópavogi og á vef-
setri útgefanda Atorka Group hf. www.atorka.is.
Umsjónaraðili skráningarinnar er Kaupþing banki hf.
Reykjavík 19. júní 2007
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið