Fréttablaðið - 01.07.2007, Side 4
„Fjölskyldan er afar ánægð
með störf björgunarsveitanna
og lögreglu og viljum skila þakk-
læti til þeirra. Þeir brugðust vel
við,“ segir Þorgrímur G. Daní-
elsson, sóknarprestur á Grenjað-
arstað og faðir Brands Þorgríms-
sonar, sextán ára pilts sem féll
11 metra ofan í Laxá í Aðaldal á
föstudag.
Brandur kom að brúnni á reið-
hjóli á miklum hraða. Hann rakst
á brúarhandriðið og steyptist
yfir það. Það varð honum til
happs að lenda á krónu birkitrés
í gilinu sem tók af honum mesta
fallið áður en hann hrapaði á
klettasnös og þaðan út í ána. Um
11 metra fall er fram af brúnni.
Brandur var fyrst lagður inn á
sjúkrahúsið á Húsavík en dvelur
nú á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri þar sem hann gekkst
undir aðgerð í gær. Hann slapp
furðu vel miðað við aðstæður,
hlaut nokkur smábrot á hendi og
við olnboga.
Þorgrímur segir að foreldrun-
um hafi verið brugðið þegar þeir
fréttu af slysinu en það hafi þó
verið bót í máli að fá fréttirnar
beint frá Brandi sem hringdi í
móður sína úr GSM-síma sínum
þegar hann hafði fikrað sig upp
á árbakkann í gilinu.
Hringdi fyrst í móður sína
Úrvalsvísitala Kaup-
hallar Íslands hækkaði um 29,5
prósent á fyrri hluta ársins sem
jafngildir 59 prósenta hækkun á
ársgrundvelli. Á fyrri hluta
ársins í fyrra lækkaði vísitalan
um 1,2 prósent að sögn Vegvísis
Landsbankans.
Á öðrum ársfjórðungi nam
hækkunin um 10,8 prósentum.
Aukinn hagnaður og væntingar
um frekari vöxt félaga, einkum
fjármálafyrirtækja, skýra að
stórum hluta þær hækkanir sem
sést hafa á árinu.
Tvö félög hafa hækkað um
níutíu prósent það sem af er ári
en þetta eru Atlantic Petroleum
og Vinnslustöðin. Hlutabréf í 365
hf., útgáfufélagi Fréttablaðsins,
og Flögu lækkuðu hins vegar
mest á fyrri helmingi ársins, um
rúm 27 prósent.
Mikill viðsnún-
ingur á milli ára
Starfstengt diplómunám
fyrir fólk með þroskahömlun
verður í boði við Kennaraháskóla
Íslands frá og með haustinu.
Námið var kynnt á fjölmennum
fundi á fimmtudag. Markmið
námsins er að gefa fólki með
þroskahömlun tækifæri til
fullgildrar samfélagsþátttöku.
Þetta er í samræmi við yfirlýsta
alþjóðlega stefnu hagsmunasam-
taka fólks með þroskahömlun.
Námið fer fram við þroska-
þjálfa- og tómstundabraut KHÍ
og miðar námið meðal annars að
undirbúningi fyrir störf í skólum,
félagsmiðstöðvum, frístunda-
heimilum og víðar.
Starfsnám fyrir
þroskahamlaða
Tvítug stúlka hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmd til að greiða átján
ára pilti 116 þúsund krónur í
miskabætur vegna áverka sem
hann hlaut þegar hún braut glas á
höfði hans í febrúar. Stúlkunni
var hins vegar ekki gerð refsing
þar sem sýnt þótti að hann hefði
byrjað með því að hrækja
framan í hana.
Fólkið var statt á skemmtistað
þegar stúlkan rakst utan í piltinn.
Hann brást hinn versti við og
hrækti framan í hana. Hún sagði
það þá hafa verið ósjálfráð
viðbrögð að slá til mannsins, en
svo hafi viljað til að hún hafði
glas í hönd. Við ákvörðun refsing-
ar var tekið tillit til þess að
stúlkan „snöggreiddist vegna
óforsvaranlegrar framkomu“
mannsins.
Hann byrjaði
og svo sló hún
Milljarðasjóðir eftir söluna
Fimm sveitarfélög sem seldu eignarhlut í Hitaveitu Suðurnesja munu hafa milljarða til að spila úr, eftir að
skuldir hafa verið greiddar. Sveitarstjórnarmenn segja söluna tryggja þjónustu og öryggi byggðarlaganna.
Fjárhagur fimm
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
Suðurlandi hefur tekið stakka-
skiptum eftir samninga á sölu á
eignarhluta í Hitaveitu Suður-
nesja.
Sveitarstjórnarmenn segja söl-
una tryggja að hægt sé að greiða
niður skuldir og ráðast í fram-
kvæmdir. Hugmyndir eru uppi
um að stofna sérstaka varasjóði
með því fé sem fæst fyrir eignar-
hlutina.
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra gekk að tilboði Geysir
Green Energy í 15,2 prósent hlut
ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja
30. maí síðastliðinn.
Tilboðið hljóðaði upp á rúma 7,6
milljarða króna á genginu 6,7
sem var margfalt matsverð fyr-
irtækisins. Capacent hafði þá
metið fyrirtækið stuttu áður á
genginu 3,1.
Geysir Green Energy er alþjóð-
legt fjárfestingarfélag um sjálf-
bæra orkuvinnslu og er í eigu FL
Group, Glitnis og VGK hönnunar
og ætlar á næstu misserum að
fjárfesta fyrir 70 milljarða um
allan heim.
Síðustu daga hafa verið mikil
átök um eignarhald á Hitaveit-
unni. Orkuveita Reykjavíkur
fékk tilboð frá nokkrum sveitar-
félögum um kaup á hlut þeirra í
HS. OR gekk að því á genginu 7.
Geysir Green Energy brást við
því með að hækka tilboðið í 7,1 og
að því gengu sjö sveitarfélög.
Reykjanesbær og Hafnarfjarðar-
bær tóku þá ákvörðun að verja
hagsmuni sína innan fyrirtækis-
ins með því að lýsa því yfir að
nýta forkaupsrétt sinn að kaup-
um hlutafjár ríkisins og sveitar-
félaganna.
Um er að ræða 43 prósenta hlut
sem metinn er á 23 milljarða
króna. Eins og staðan er í dag
lítur því út fyrir að aðkoma
Geysir Green Energy sé úr sög-
unni í bili.
Gangi kaup sveitarfélaganna
tveggja á hlut ríkisins og sveitar-
félaganna eftir mun Reykjanes-
bær eignast 72 prósent í fyrir-
tækinu en Hafnarfjarðarbær um
28 prósent.
Sími 591 3100 - www.atlantsolia.is
5 kr. afsláttur
þegar þú átt afmæli!
Þeir sem eru með dælulykil
Atlantsolíu fá 5 krónu afslátt af
lítraverði þegar þeir kaupa
eldsneyti á afmælisdaginn
sinn.