Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 27

Fréttablaðið - 05.07.2007, Page 27
heimili heilsa hús börn nám ferðir matur bílar tíska græjur atvinna tilboð vinnuvélar o.fl. Lilja Katrín Gunnarsdóttir fer nánast aldrei í buxur og kann vel að meta níunda áratuginn. „Ég keypti fjóra kjóla í Kolaportinu um síðustu helgi fyrir tvö og fimm, hvern öðrum flottari og þessi er eins og sniðinn á mig,“ segir Lilja Katrín og bætir því við að henni líði eins og Cyndi Lauper í honum „Ég er svoddan „eighties“ barn. Fæddist ´82 og finnst allt þetta tímabil svo heillandi. Átti stórar systur sem kynntu mig fyrir The Cure og ýmsu öðru „eighties“- legu og þessi pönkaði ævintýrablær höfðaði sterk- lega til mín,“ segir þessi káta kona og skýtur því inn að daginn sem myndin var tekin hafi vinnufélagarnir horft svolítið sérkennilega á klæðaburðinn. „En ég tímdi ekki að fara úr honum þó ég eigi eflaust eftir að nota hann meira spari í framtíðinni. Svona þegar ég skrepp á kaffihús á kvöldin.“ mhg@frettabladid.is Pönkaður ævintýra- blær Lilja Katrín Gunnarsdóttir, blaðakona á Séð og heyrt og leiklistarnemi í Árósum, segist ekki fara í buxur nema þegar nauðsyn krefur. FréttabLadið/viLheLm Öll brúðhjón sem skrá sig á brúðargjafalista hjá Tekk- Company fá litla gjöf við skráningu. Nöfn þeirra fara einnig í LUKKUKRUKKUNA sem 5 lukkuvinningar verða dregnir úr í desember; ein 150.000 kr. og fjórar 10.000 kr. úttektir í Tekk-Company. Við bjóðum ykkur að skrá ykkur á brúðargjafalista Kæru brúðhjón! Dior í 60 ár Sextíu ár eru liðin frá því Frakkinn Christian Dior kynnti fyrstu tískulínu sína. tíska 4 sólarvörn á börn Börn eiga ekki lengur að vera brún og sæt, heldur ber að verja þau fyrir sólinni eins mikið og hægt er. Bera þarf á þau sólarvörn og halda þeim frá sólinni eins mikið og hægt er. heilsa 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.