Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 32
[ ]Algeng efni í matvælum eru skráð í íslenska gagna-grunninum ÍSGEM hjá Matís. Efnin eru um 45 talsins og tilheyra um 900 fæðutegundum. www.matis.is/ISGEM/is Sólbruni er hættulegur húðinni og sérstaklega ber að vernda húð barna fyrir honum. „Við viljum hætta að segja að börnin eigi að vera brún og sæt,“ segir Guðrún Erla Einarsdóttir, lyfjatæknir í Lyfjum og heilsu í Domus Medica. „Okkur ber að verja húð þeirra alveg sér­ staklega vel enda benda allar rannsóknir til að lík­ urnar aukist á húðsjúk­ dómum seinna meir ef þau brenna.“ Guðrún Erla segir það hlutverk afgreiðslufólks að vísa fólki á góð sólar­ varnarkrem og þá ekki síst fyrir börnin. „Við eigum helst að bera á börnin sól­ arvörn sem inniheldur tvö efni sem heita títanoxíð (Titanium Oxid) og sink­ oxíð (Zink Oxid). Þau mynda svo góða varnarfilmu. Það eru því miður ekki öll krem sem innihalda bæði efnin en flest innihalda Titanium Oxid. Eins þurfum við að muna að bera á börnin hálftíma áður en þau fara út því það tekur smá stund fyrir kremin að virka.“ Númer eitt, tvö og þrjú segir Guðrún Erla að eng­ inn noti vörn með veikari stuðul en 20. „Það er það sem húðsjúkdómalæknar boða í dag og eftir því ber að fara,“ segir hún. Spurð hvort það sé þá ekki út í hött að selja veik­ ari vörn svarar hún. „Jú, enn er verið að framleiða veikari vörn og meira að segja líka sólarolíuna sem gerir ekkert annað en steikja okkur. Það er bara eins og margt annað sem óhollt er í búðunum og ber að varast.“ - gun Góð vörn á börn Eucerin Junior Micropigment er ein þeirra gerða sólarvarna sem innihalda bæði títanoxíð og sinkoxíð. Það er gaman að leika sér úti í sólinni. Bara að muna að bera á sig fyrst. fréttaBlaðIð/anton Fæddist eftir þrettán ár í frysti. Stúlkubarn fæddist nýlega í Bandaríkjunum en fósturvísirinn sem barnið þróaðist úr hafði verið geymdur í frysti í þrettán ár. Þetta er talinn lengsti tími sem fóstur­ vísir hefur verið geymdur þannig að úr hafi orðið heilbrigt barn. Stúlkan, sem heitir Laina Beas­ ley, á tvö systkini á táningsaldri sem voru getin með tæknifrjóvg­ un á sama tíma og fósturvísirinn sem síðar varð að Lainu var fryst­ ur. Móðirin, Debbie Beasley, er nú 45 ára. Hún hóf frjósemismeðferð við háskólann í Kaliforníu á tíunda áratugnum. Þá notuðu læknar egg hennar og sæði eiginmannsins Kent til að búa til tólf fósturvísa en tveir þeirra urðu að tvíburum sem fæddust árið 1992. Þremur árum síðar komst upp að læknar á frjósemisstöðinni hefðu notað fósturvísa í leyfis­ leysi og var læknastöðinni lokað og fósturvísarnir sem frystir höfðu verið voru sendir til rann­ sókna víða um Bandaríkin. Debbie og Kent tókst að finna átta af eigin fósturvísum og reyndu árið 1996 að eignast annað barn. Debbie fékk alvarleg ofnæm­ isviðbrögð við frjósemislyfi og var nærri dáin. Það var ekki fyrr en sjö árum síðar að hún var tilbú­ in að reyna á ný og nú á hún hina litlu Lainu. Elsti fósturvísirinn að barni Ekki er algengt að geyma fósturvísa í jafn langan tíma og var gert í dæmi lainu litlu. Blóðnasir BlóðnaSIr Eru lEIðInlEGar En yfIrlEItt SkaðlauSar. n Í flestum tilvikum blóðnasa blæðir úr neðri hlutanum á miðsnesinu. Þar geta æðar auð- veldlega sprungið, til dæmis við högg eða hvassa fingurnögl, og þá fáum við blóðnasir. n Ekki er heldur óalgengt að þurrkur í nasa- göngunum valdi því að æð gefi sig. n aðrir algengar orsakir eru kvef og ofnæmi. Einnig geta blóðnasir verið merki um kalk- skort. n Í fáeinum tilfellum eru blóðnasir merki um alvarlegri kvilla, til dæmis of háan blóðþrýst- ing, kransæðasjúkdóma eða krabbamein. n linni blóðnösunum ekki á 30 mínútum eða ef blæða fer ofan í kokið þarf að leita læknis sem fyrst. Blóðnasir geta stundum verið merki um alvarlega kvilla. Njóttu lífsins me› Angelicu www.sagamedica.is Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl! Angelica er íslensk náttúruafur› úr ætihvönn sem færir flér tvenns konar virkni í sömu vöru. fiú fær› aukna orku og sjaldnar kvef. Í ætihvönn er fjöldi hollustuefna sem styrkja forvarnir og bæta heilsuna. Angelica jurtaveig hefur sta›i› Íslendingum til bo›a frá 2002 og nú bætist vi› n‡r valkostur, Anglica töflur. fiú tekur a›eins eina töflu á dag og pakkinn endist flér í 2 mánu›i. E N N E M M / S ÍA / N M 2 8 6 6 3 Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.