Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 58
46 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR Úrval Útsýn býður upp á ferðir á alla heimaleiki arsenal í vetur og eru miðarnir okkar í Club level stúkunni og er innifalið í verði 3 rétta hlaðborð á Club level hæðinni. nánari upplýsingar um Club level miðana er að fi nna á www.uu.is leikirnir sem í boði eru fram að áramótum eru sem hér segir 10-13 ágúst arsenal v fulham 73.500 kr. 24-27 ágúst arsenal v Man.City 73.500 kr. 31/8 - 3/9 arsenal v Portsmouth 73.500 kr. 21-24 sept. arsenal v Derby 73.500 kr. 5-8 október arsenal v Sunderland 79.500 kr. 19-22 okt. arsenal v bolton 79.500 kr. 2-5 nóvember arsenal v Man.utd 92.500 kr. 23-26 nóv. arsenal v Wigan 79.500 kr. 14-17 des. arsenal v Chelsea 92.500 kr. Verðin eru á mann í tvíbýli og er eftirfarandi innifalið: fl ug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, miði á leikinn á Club level hæð og 3 rétta máltíð (án drykkja) fyrir leik á Club level hæðinni Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti tonsport@uu.is, í síma 585-4000 eða á heimasíðu okkar www.uu.is Ferðir á heimaleiki Arsenal Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu FóTbolTI Fyrir leik HK og Vals í gær höfðu HK-menn aðeins feng- ið á sig eitt mark á heimavelli og unnið alla sína þrjá leiki þar. En í gær fóru Valsmenn illa með leik- menn HK. Þeir skoruðu fjögur mörk gegn einu sem Valsmaður sá reyndar um að skora líka. Gestirnir áttu fyrri hálfleik- inn með húð og hári. Þeir voru ekki lengi að skapa sér hættu við mark HK-inga og áttu samtals tíu skot að marki í fyrri hálfleik. Það mikilvæga er að þeir nýttu tvö þeirra en mörkin komu með þriggja mínútna millibili. Það fyrra skoraði Birkir Már Sævarsson en boltinn barst til hans hægra megin í vítateignum eftir aukaspyrnu Guðmundar Benediktssonar og skoraði hann með viðstöðulausu skoti. Næsta mark kom einnig eftir aukaspyrnu. Baldur Aðal- steinsson kom HK-ingum í opna skjöldu með því að taka spyrn- una fljótt og sendi inn á Helga Sigurðsson sem vippaði boltan- um laglega í markið. Heimamenn mættu mun sprækari til leiks í síðari hálfleik en þeir voru í þeim fyrri. Þeir byrjuðu að spila boltanum skyn- samlega á milli sín og reyndu að byggja upp sóknir. Eftir eina slíka sendi Rúnar Páll Sigmundsson stungusendingu inn fyrir vörn Vals en Gunnar Einarsson sendi boltann í eigið mark er hann ætl- aði að bægja hættunni frá. Valsmenn vöknuðu við þetta og fengu dauðafæri skömmu síðar. Það var svo á 65. mínútu að Birk- ir Már átti sendingu inn á teig, Guðmundur Benediktsson fram- lengdi boltann á Pálma sem stóð einn í teignum og þrumaði knett- inum í netið. Hafþór Ægir Vil- hjálmsson kláraði svo verkið með fjórða marki Vals á 77. mínútu. „Við þurftum að svara sigri FH með sigri hér í dag. Við viljum vera í toppbaráttunni og höfum verið á góðu róli undanfarið,“ sagði miðjumaðurinn Baldur Bett hjá Val eftir leik. „Það var mjög sterkt að klára þennan leik svona vel í dag og við misstum aldrei einbeitinguna.“ Gunnar Guðmundsson, þjálf- ari HK, vildi ekki viðurkenna að heimavígi sitt væri fallið. „Engu að síður var þetta ekki flókið í dag, Valsmenn voru miklu betri og áttu sigurinn skilið. Við þurf- um að taka okkur tak en málið er að við erum nýir í deildinni og þurfum að læra heilmikið. Ég held að það sé margt sem við getum lært af þessum leik.“ - esá HK tapaði sínum fyrsta heimaleik í deildinni: Létt verk hjá Vals- mönnum gegn HK FóTbolTI Óhætt er að segja að þeir tæplega 2.000 áhorfendur sem borguðu sig inn á Fylkisvöllinn í gær hafi fengið lítið annað en gott sólbað fyrir peninginn. Leikurinn olli í heildina miklum vonbrigðum og þvert á það sem margir bjuggust við náðu KR- ingar ekki að nýta meðbyrinn sem þeir fengu eftir fyrsta sigurleik- inn gegn Fram í síðustu umferð. Í fyrri hálfleik voru leik- menn KR í sama gamla farinu og áður, sparkandi löngum sending- um fram völlinn þar sem mottó- ið virðist vera að vona það besta. KR-ingum til happs voru heima- menn í Fylki litlu skárri og eins og svo oft áður gekk leikur þeirra út á langar sendingar úr vörninni fram völlinn. „Þessi leikstíll er al- gjörlega öfugur við það sem við erum að reyna. Á æfingum gengur stutta spilið mjög vel en við náum ekki að sýna það í leikjum. Ég veit ekki hvað veldur,“ sagði David Hannah, varnarmaður Fylkis. „Við erum hins vegar góðir í vörninni og náðum að halda hreinu, sem er jákvætt. En við verðum að skapa okkur fleiri færi.“ Heimamenn voru þó ívið hættu- legri framan af fyrri hálfleik en bestu færi þeirra í leiknum komu til vegna misskilnings í óöruggri vörn KR. Gestirnir úr Vestur- bænum voru sterkari í síðari hálf- leik og fengu nokkur ágætis færi en eins og svo oft áður voru leik- mönnum liðsins mislagðir fætur fyrir framan markið. Umdeilt atvik varð um miðjan síðari hálf- leik þegar Hauki Inga Guðnasyni var brugðið innan teigs en dómar- inn Magnús Þórisson dæmdi ekk- ert. „Hann fór klárlega í löppina á mér og klippti mig niður. Þetta var víti, svo einfalt er það,“ sagði Haukur Ingi við Fréttablaðið eftir leik. Leikmenn Fylkis voru flestir langt frá sínu besta, hreyfingin í sókninni var lítil og má liðið una vel við að hafa hlotið annað stig- ið. Sem fyrr var lítið um almenni- legan samleik hjá KR-ingum en greinilegt var að áherslan er orðin meiri á varnarleikinn. Teitur sagði þessa taktísku breytingu ekkert leyndarmál. „Við spiluðum blúss- andi sóknarbolta í upphafi móts en ekkert datt fyrir okkur. Nú getum við ekki tekið neina sénsa lengur og því hef ég skipt aftur í kerfið sem gafst okkur svo vel í fyrra. Varnarboltinn hefur skilað okkur fjórum stigum í tveimur leikj- um sem er vel ásættanlegt. Við munum því halda þessu áfram.“ - vig Fylkir og KR gerðu steindautt markalaust jafntefli í Árbænum í gærkvöld: Algjör ládeyða í Árbænum barátta Það var ekki áferðarfalleg knattspyrna í Árbænum í gær en baráttan var til staðar. fréttablaðið/anton hafþór ægir fagnar hér fjórða og síðasta marki Valsmanna í Kópavoginum í gær. fréttablaðið/anton FóTbolTI Síðara mark Bjarna Guð- jónssonar, sem tryggði ÍA sigur á Keflavík, á eftir að vera mikið rætt næstu daga. Þá héldu Kefl- víkingar að Bjarni myndi afhenda þeim boltann þar sem leikur hafði stöðvast en Bjarni skaut frá miðju og skoraði glæsilegt mark. Það mark skildi liðin að þegar upp var staðið. Fyrri hálfleikur var ákaflega tíðindalítill framan af. Skaga- menn lágu í skotgröfunum og leyfðu Keflvíkingum að koma upp völlinn og freistuðu þess síðan að sækja hratt. Það var sama hvað hið vel spilandi lið Keflavíkur reyndi, Skagamúrinn brotnaði ekki og lítið sem ekkert gekk að klífa hann. Skyndisóknir Skagamanna voru aftur á móti stórhættulegar þar sem Þórður og Svadumovic voru líflegir og það var einmitt eftir góða skyndisókn sem Svadumov- ic nældi í víti er Ómar markvörð- ur braut á honum. Bjarni skoraði örugglega úr vítinu og tryggði ÍA forystu eftir fyrri hálfleik. Þar sem Keflavík gekk ekkert að brjóta niður vörnina tóku þeir upp á því að skjóta langskotum í síðari hálfleik en Páll Gísli varði flest þeirra vel. Skagamenn pökk- uðu svo gott sem öllu sínu liði við teiginn í síðari hálfleik. Keflavík fékk dauðafæri 11 mínútum fyrir leikslok og markið lá í loftinu. Þegar níu mínútur lifðu leiks skoraði Bjarni síðan markið um- deilda. Undirritaður sá ekki alveg aðdragandann að markinu en ef rétt reynist að Bjarni hafi átt að afhenda Keflavík boltann þá er hátterni hans mjög óíþróttamanns- legt og honum til mikils vansa. Í kjölfarið varð allt vitlaust og leik- menn gerðu aðsúg að Bjarna. Síðustu mínútur leiksins voru æði skrautlegar. Hallgrímur minnkaði muninn og í kjölfar- ið var Páli Gísla vikið af leikvelli fyrir ruddaskap. Strax í kjölfar- ið fékk Einar Einarsson Keflvík- ingur að fjúka sömu leið fyrir að tækla Bjarna og allt á suðupunkti. Kristján Guðmundsson, þjálf- ari Keflavíkur, var ómyrkur í máli gagnvart Bjarna Guðjónssyni í viðtali við Þorstein Gunnarsson á Sýn eftir leikinn. „Bjarni kallaði á boltann í stað þess að boltanum væri kastað beint á okkar menn. Hann lítur upp, sér hvar Ómar stendur og tekur skot á markið. Þetta er Bjarna Guðjóns- syni til skammar, enn eina ferð- ina, og Skaganum til háborinnar skammar.“ Kristján var einnig óánægður með vítadóminn sem færði Skaga- mönnum fyrra mark sitt. „Það eru lög og reglur settar um knattspyrnuleiki. Þau gilda um alla þá sem eru í kringum leik- inn. Síðan eru það dómararnir sem eiga að sjá til þess að reglun- um sé fylgt. Það gerðist ekki hér í kvöld.“ Strax og leiknum lauk hljóp Bjarni ákveðnum skrefum í átt að búningsherbergjum. Guðmund- ur Steinarsson hljóp í humátt á eftir honum og þar á eftir fylgdu nokkrir liðsfélagar hans. Þeir vildu allir fá að ræða málin ítar- lega við Bjarna. „Bjarni skammaðist sín svo mikið að hann ákveður að hlaupa þarna inn. Þvílík er skömm hans. Hvað gerðist svo veit ég ekki.“ Helgi Pétur Magnússon varði Bjarna eftir leikinn. „Þetta hlýt- ur að vera óviljaverk. Getur þetta ekki skrifast sem mistök á mark- manninn? Það eiga sér stað mis- tök í fótbolta og þetta voru ein af þeim.“ Hann var svo spurður hvort ekki hefði komið til greina að gefa Keflvíkingum mark. „Þetta eru mistök og við getum ekki lag- fært þau í leiknum. Slíkt gengur aldrei.“ Eftir því sem sjá mátti úr blaða- mannastúkunni voru hendur látn- ar skipta við innganginn í bún- ingsklefana og Guð má vita hvað gekk á þar fyrir innan. Þar var allt í hers höndum og í raun stríðs- ástand á Akranesi. - hbg / - esá Stríðsástand á Skaganum Það sauð upp úr á Akranesi þegar ÍA lagði Keflavík, 2-1, í skrautlegasta leik síðari tíma í Landsbankadeildinni. Tvö rauð spjöld voru gefin og leikmenn voru klárir í slagsmál í leikslok. Þjálfari Keflavíkur sagði leikinn hafa verið ÍA til skammar. víti Ómar Jóhannsson brýtur hér á Vjekoslav Svadumovic innan teigs og vítaspyrna var dæmd. Úr henni skoraði bjarni Guðjónsson örugglega. fréttablaðið/eiríKur KriStÓferSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.